Glóðafeykir - 01.11.1972, Page 61
GLOÐAFEYKIR
61
greinds manns um það, með hvaða ráðum örðug'eikamir yrðu sigr-
aðir hverju sinni“. (Kolb. Kr.).
Vilhelm Lárusson, bóndi á Sævarlandi á Laxárdal ytra, lézt þ. 22.
nóvember 1963.
Hann var fæddur að Skarði í Gönguskörðum 15. febrúar 1902.
Foreklrar: Lárus bóndi í Skarði Stefánsson,
bónda í Vatnshlíð o. v„ Einarssonar bónda í
Holtskoti, Jónssonar, og síðari kona hans
Sigríður Sveinsdóttir bónda á Steini á
Revkjaströnd o. v., Sigvaldasonar. Kona
Sveins og móðir Sigríðar var Ingibjörg
Hannesdóttir bónda á Brenniborg o. v.,
Jónatanssonar.
Vilhelm ólst upp í Skarði með foreldrum
sínum. Reisti bú á Dalsá (Heiðarseli) í
Gönguskörðum 1923 og bjó þar til 1929;
brá þá búi og fór í húsmennsku að Skarði
og síðan til Sauðárkróks. Fór aftur að búa
1931 og þá í Tungu (Skollatungu) í Skörðum og bjó þar til 1935,
fór þá byggðum að Sævarlandi og bjó þar óslitið til lokadags.
Arið 1923 kvæntist Vilhelm Baldeyju Reginbaldsdóttur, alsystur
Margrétar, sjá Glóðaf. 1968, 8. h., bls. 47. Lifir hún mann sinn
ásamt með bömum þeirra hjóna 5, en þau eru: Sigríður Björk, húsfr.
í Keflavík suður, Sigurður Kristján, bóndi á Sævarlandi. Lára, húsfr.
og ljósmóðir í Ólafsfirði, Regína, heima í foreldragarði og Guð-
mundur Vignir, bóndi á Sævarlandi.
,,\'ilhelm á Sævarlandi var í meðallagi á hæð, mikill um brjóst
og herðar, enda karlmenni til burða; dökkur á hár, vel farinn í
andliti". (G. Á.). Hann var myndarmaður, mikill á yfirbragð, kapp-
drægur ef því var að skipta, en yfirlætislaus, skoðanafastur, eindreg-
inn samvinnumaður. „\hlhelm var biiþegn góður, umhirðu- og
þrifamaður við öll störf, er hann kom að, hagleiksmaður við bygg-
ingar og ýmsa smíðavinna. Ágætur nágranni, hjálpsamur, greiðvik-
inn og gestrisinn heim að sækja, skrafhreifinn og viðmótsgóður“.
(Guðm. Ámason).
Vilhelm Lárusson
Kristrún Tómasdóttir Schram, fv. húsfr. á Sauðárkróki, lézt þ.
2. des. 1963.
Fædd var hún að Bólstað í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu 14.