Sagnir - 01.06.1998, Page 33

Sagnir - 01.06.1998, Page 33
Svo virðist að innan þingsins hafi ekki verið mikill ágreiningur um nauðsyn þess að taka lán til að greiða úr peningakreppunni, en helst var gagnrýnt hversu víðtæk láns- heimildin væri, þ.e. ekki væri um neitt hámark á henni að ræða.15 Það var svo í ágústmánuði sem ríkisstjórnin nýtti laga- heimildina til að taka lán í Englandi og er það fyrsta lánið sem ríkissjóður tók utan Danmerkur. Þess ber að geta að árið 1919 tók Landsbanki Íslands sitt fyrsta lán utan Danmerkur hjá Hambros banka í Englandi að upphæð 100 þúsund sterlings- pund, en Hambros banki átti eftir að verða einn helsti viðskiptabanki Íslands í Englandi.16 Svo virðist sem nokkrir aðilar hafi komið að því að útvega lánið, en Sveinn Björnsson sendiherra og Ludvig Kaaber bankastjóri Landsbankans hafi síðan séð um að ljúka málinu og skrifa undir fyrir Íslands hönd. Í endurminningum sínum sagði Sveinn Björnsson frá því hvernig hann kom að lántökunni: Hafði íslenzka stjórnin með milligöngu ýmsra manna fengið […] lán hjá bankafirma í London […] og skyldi nú undirrita lánssamningana. Tveir menn, sem komizt höfðu eitthvað í þessa milligöngu, en ég vissi þó ekkert um áður, eltu okkur Kaaber til London. Það var danskur maður, Andersen að nafni, og Páll J. Torfason frá Flat- eyri. […] Mun Páll Torfason, sem alltaf var að hugsa um íslenzk fjármál, hafa kynnzt Andersen, og komið honum í kynni við Jón Magnússon forsætisráðherra og þessa leið fengizt lánstil- boðið í London. Lá það fyrir og var samþykkt af stjórninni, þegar ég kom að málinu.17 Þó svo að innan Alþingis hafi ekki verið mikill ágreiningur, var mikil andstaða gegn lántökunni hjá Tímanum og Alþýðublaðinu. Þau viðhorf tengdust andstöðu flokkanna sem að þessum blöðum stóðu, við Íslandsbanka eins og áður hefur verið vikið að. Þannig var þeim orðrómi óspart komið á framfæri síðla sumars 1921 hjá þessum blöðum að lánskjör enska lánsins væru mjög óhagstæð.18 Þann 15. september 1921 sendi fjár- málaráðuneytið frá sér tilkynningu sem undirrituð var af Magnúsi Guðmundssyni fjármálaráðherra, þar sem lánskjörin voru birt. En af hálfu lán- veitanda hafði það skilyrði verið sett að lánskjörin væru ekki birt fyrr en seinni hluti lánsins hefði verið greiddur út og var það gert í byrjun september- mánaðar. Samkvæmt tilkynningunni hafði ríkisstjórnin tekið 500 þúsund sterlingspunda lán hjá fjármálafyrirtækjunum Helbert Wagg & Co. og Higginson & Co. í London. Það verður að segjast að lánskjörin voru ekki beint mjög hagstæð, afföll af láninu voru mjög há eða 15% og auk þess þá þurfti að greiða 1% vegna þess kostnaðar er var við að útvega lánið. Vextirnir greiddust eftir á og voru 7% á ári, gjalddagar voru tveir á ári, 1. mars og 1. september, en fyrsta afborgun var 1. september 1923. Lánið var til 30 ára og mátti greiða það upp að tíu árum liðnum, þó varð það að vera með sex mánaða fyrir- vara.19 Menn virðast fljótlega hafa gert sér grein fyrir því að þessi lánskjör hafi verið frekar óhagstæð. Valtýr Guðmunds- son minnist á lántökuna í bréfi sem hann skrifar til stjúpföður síns 30. september 1921, er hann var nýkominn heim til Kaupmannahafnar eftir ferð til Íslands, en þar segir m.a.: Fjárhagsástandið á Íslandi er mjög bágborið og margir að fara á hausinn, en samt virðast allir hafa nóga peninga í daglegu lífi, því nóg er bruðlið og eyðslan og skrautið. N ú hefur landið fengið stórlán í Englandi,  milljón punda eða 10-11 milljónir króna. En dýrt er það, 7% í vexti og hverjar 100 kr. borgaðar út með 85. Það verður nálægt 8%, sem þeir virkilegu vextir verða. Og toll- tekjurnar er sagt að landið hafi orðið að veðsetja sem pant fyrir láninu. En víðar er pottur brotinn nú með bágan fjárhag en á Íslandi. Ekki of glæsilegt hér hel- dur, og þá ekki í Þýzkalandi. Og ekki ætlar að ganga vel með síldina í ár fremur en áður.20 Ríkisstjórnin keypti að vísu ekki hlutabréf í Íslandsbanka fyrir lánsfjárhæðina eins og upphaflega var heimilt í lögunum, en í staðinn endurlánaði hún hluta þess aftur til bankanna. Stærsti hluti þess fór til Íslands- banka eða um 280.900 sterlingspund, en til Landsbankans fóru 88.819 sterlingspund og fengu bankarnir sína hluti á sömu kjörum og ríkisstjórnin hafði fengið. Afgangurinn af lánsfjárhæðinni rann síðan í ríkissjóð.21 Þar sem það var ríkisstjórnin sem tók lánið þá var það á ábyrgð ríkissjóðs. En tryggingin fyrir láninu var ákveðin með frekar klúðurslegu orðalagi, eða eins og segir í til- kynningu fjármálaráðuneytisins: ,,Ríkissjóður ábyrgist greiðslu lánsins og eru tolltekjurnar sérstaklega sem trygging, en veð ekki sett.“ Um þetta ákvæði urðu miklar deilur bæði í blöðum og inni á þingi. Töldu margir að hér hefðu landsfeðurnir farið illa að ráði sínu, veðsett tolltekjur landsins og þar með stefnt nýfengnu fullveldi landsins í voða. Enda sagði Tíminn í frétt sinni af lántökunni þann 17. september, 32 Páll Baldursson 19 18 - 1 99 8 SAGNIR ‘ 98 Það verður að segjast að lánskjörin voru ekki beint mjög hagstæð, afföll af láninu voru mjög há eða 15% Fyrir framan Íslandsbanka um 1922.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.