Sagnir - 01.06.1998, Blaðsíða 86
holdet skulle dennem Jorderne hiemmelt vere udi deris
Lifstid.10
Segja má að vel hafi verið gengið frá málum af hálfu
Heidemanns og Gottrups gagnvart leiguliðunum, því um leið
og hver bóndi sagði sín leigukjör og skrifaði undir
samninginn án athugasemda, mátti skilja það svo að hann
væri sáttur við sín kjör. Þann 6. október 1684 lét Gottrup lesa
upp á Sveinsstaðaþingi veitingu sína frá konungi fyrir
Þingeyraklaustri og Vatnsdals- og Strandajörðum,
veitingabréf sitt frá Heidemann fyrir hálfu Húnavatnsþingi.
Ennfremur hafði hann meðferðis kaupbréf fyrir nokkrum
jörðum Hinriks Bjelkes og umboðsbréf sitt
yfir öllum jörðum Bjelkes hér á landi,
sem útgefið var af erfingjum hans í
Kaupmannahöfn.11 Gottrup gegndi störf-
um landfógeta á meðan Heidemann var
utanlands veturinn 1684 og aftur 1687 og
með þeim var góð vinátta.
Fyrsti amtmaður hér á landi var
Christian Müller sem tók við embætti árið 1688.12 Þeir
Gottrup urðu góðir vinir og eftir tillögu amtmanns var hann
skipaður lögmaður norðan og vestan með konungsbréfi 16.
apríl 1695. Þetta var í fyrsta skipti sem landsmenn kusu ekki
sjálfir lögmann. Samt sem áður tóku allir því þegjandi þegar
skipun Gottrups var tilkynnt á Alþingi, en hann hélt fyrri
embættum sínum eftir sem áður.13 Þannig hófst valdaferill
hans í Húnaþingi og á Íslandi. Hann var stórtækur þegar jarðir
Hinriks Bjelke voru seldar í kringum 1680 og keypti um 170
hundruð í jörðum Húnavatnssýslu. Samkvæmt gósseigenda-
tali Braga Guðmundssonar átti Gottrup 628 hundruð í jörðum
um 1700.14 Hann gerðist því mikill uppgangsmaður og auðg-
aðist stórum, sennilega átti klausturhaldaraembættið sinn þátt
í því.15
GLÍMA GOTTRUPS VIð
BÆNDUR
Flestar jarðir í fremri og neðri
Vatnsdalshreppi (nú Ás- og Sveinsstaða-
hreppur), voru í eigu konungs og lágu til
Þingeyraklausturs. Fleiri býli voru í einkaeign í
Vatnsdalshreppi fremra en hinum neðra, þar var veldi
SAGNIR ‘ 9885
Guðrún Bjarnadóttir
Þetta var í fyrsta
skipti sem landsmenn
kusu ekki sjálfir lögmann.
Samt sem áður tóku allir því
þegjandi þegar skipun
Gottrups var tilkynnt