Sagnir - 01.06.1998, Page 49

Sagnir - 01.06.1998, Page 49
SAGNIR ‘ 98 48 19 18 - 1 99 8 Þessi auglýsing er frá desembermánuði árið 1941. Hún var liður í viðleitni borgaryfirvalda til að bregðast við húsnæðiskreppu sem hafði orsakast af nær stöðugum fólks- flutningum á Suðvesturhornið frá upphafi þessarar aldar. Þessar þrengingar náðu hámarki á árum seinni heims- styrjaldarinnar. Á þeim tíma réðu persónuleg tengsl og rétt sambönd miklu um aðgang að takmörkuðum lífsgæðum. Tilkynning borgarstjóra ber öll merki þess og endurspeglar þá pólitísku fyrirgreiðslu sem ríkti hér á landi lengi framan af öldinni. BORGIN RÆðST Í BYGGINGA- FRAMKVÆMDIR Á kreppuárunum dró úr byggingaframkvæmdum og fjölgaði íbúðum árlega allan 4. áratuginn aðeins um 2,5%, en hafði fjölgað um 5,4% allan áratuginn þar á undan.2 Að sama skapi dró úr straumi fólks til Reykjavíkur og færri börn fæddust sem leiddi til þess að undir lok 4. áratugarins var komið visst jafnvægi á húsnæðismarkaðinn. Árið 1939 voru eftirfarandi meðaltöl í gildi: 3,3 einstaklingar um hverja 272 rúmmetra íbúð (sjá graf hér til hægri). Upphaf síðari heimsstyrjaldar markaði skýr skil á húsnæðismarkaði bæjarins. Nú skyldi gætt aðhalds í ríkis- búskap og lagði Þjóðstjórnin blátt bann við sölu sements, járns og timburs.3 Áhrif bannsins létu ekki á sér standa. Um veturinn 1939-1940 svarf atvinnuleysi að iðnaðarmönnum í bænum og nýbyggingar lögðust að mestu af.4 Fljótlega fór að þrengja meira að borgarbúum og náðu þrengslin hámarki á seinni hluta árs 1940. Stríðssósíalisminn hafði fleiri birtingarform. Lagt var bann við hækkun húsaleigu og uppsögn leigusamninga. Skipuð var sérstök húsaleigunefnd sem varð að samþykkja alla leigusamninga og fékk heimild til að taka allt autt húsnæði leigunámi og ráðstafa því til þurfandi.5 Flestir sem vettlingi gátu valdið héldu til Reykjavíkur í kjölfar hernámsins.6 Fólksfjölgunin var í engu samræmi við takmarkaðan húsakost bæjarins þar sem þrengingar voru þegar orðnar tilfinnanlegar. Ekki bætti úr skák að Bretar lögðu hald á nær allar lausar íbúðir ásamt mörgum opinberum bygg- ingum. Um þetta leyti höfðu einmitt margar leiguíbúðir í Reykjavík losnað. Margur Reykvíkingurinn hafði sagt upp leiguhúsnæði og sest að í sumarbústað sínum utan við bæjar- mörkin - Fífuhvammi, Selási, Vatnsenda, Bústaðavegi.7 Af þeim sökum fékk hernámsliðið allmargar lausar íbúðir í bænum til umráða á vormánuðum 1940.8 Á fardögum haustið 1940 ríkti neyðarástand í bænum. Nýr borgarstjóri, Bjarni Benediktsson, sá sig tilneyddan að grípa til aðgerða sem greinilega samræmdust ekki hugmynda- fræði hans um ríkisafskipti: „Varð þá að leita margra ráða, mismunandi haldgóðra og geðfelldra, til að bæta úr vand- ræðunum. Vegna þess neyðarástands hvarf ágreiningur um Sagnir 19 (1998) Húsnæði. Þeir bæjarbúar, er ætla að s ækja um íbúði r í bráðabirgðahúsnæ ði bæjarins, eru b eðnir að koma til viðtals í skrifstofu minni, Austurstræti 16 , 3. hæð (herber gi nr. 27) daganna 17-21. þ .m., að báðum me ðtöldum. Umsóknum er ve itt móttaka kl. 1-3 e.h. þessa daga, og þurfa menn að vera við því bú nir að gefa ský rslu um húsnæðisþörf sí na og ástæður til þess, að þeir eru húsnæðislausir. 1 Borgarstjóri Jón Ingvar Kjaran: Höfdaborgin Úrlausn á húsnæðisvanda fimmta áratugarins?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.