Sagnir - 01.06.1998, Síða 67

Sagnir - 01.06.1998, Síða 67
SAGNIR ‘ 98 66 Leifur Reynisson 19 18 - 1 99 8 en hægt yrði að snúa sér að samfélaginu. Ef hver og einn breytti lífi sínu myndi samfélagið óhjákvæmilega fylgja í kjölfarið. Vesturlenskri lífsspeki skyldi kastað fyrir róða en í staðinn kæmi austurlensk dulspeki. Hugleiðsla var talin sérlega mikilvæg þar sem hún væri „uppspretta allrar hamingju.“58 Umdeildasti fylgifiskur hippamenningarinnar voru kannabisefnin en þau urðu fyrst áberandi um 1970.59 Sumarið 1972 var forsíða Stúdentablaðsins prýdd eftirfarandi yfirlýsingu: „GEFIÐ HASSIÐ FRJÁLST og hættið að berjast við vindmyllur!“60 Hipparnir hugðust segja neyslumen- ningunni stríð á hendur með því að sniðganga allar tískur og ganga þess í stað í druslum og hætta að fara í klippingu. Samfara þessu neyttu menn hass, LSD og hlustuðu á sýrutón- list til að gera upp við ríkjandi heimsmynd. Litið var á slíka neyslu sem leið til hugvíkkunnar.61 P o p p s ö n g v a r i n n Björgvin Halldórsson svaraði því til þegar hann var inntur eftir hvaða tíska það væri að vera með sítt hár, að um stefnu væri að ræða en ekki tísku.62 Með þeim orðum túlkaði hann hugmyndir róttækrar æsku um frjálslegan líf- stíl. Sítt hár, skrautleg föt, rokk- tónlist, róttækni og almenn ands- taða við kerfið myndaði eins konar bræðing sem æskumenningin samanstóð af. Ungdómurinn tók þessa þætti vissulega misalvarlega en allir voru þeir mjög áberandi í fari hans. RÓTTÆKNI VERðUR Að TÍSKU Þegar komið var fram á miðjan 8. áratuginn fór að bera á upplausn ýmissa hugmynda sem kenndar eru við ´68-kynslóðina. Alls kyns hópar mynd- uðust sem gerðu kröfu til að leiða byltin- guna áfram. Þeir vafasömustu mynduðu alls kyns kredduklíkur í nafni kom- múnismans eða jafnvel hryðjuverkahópa. Þjóðfélaginu skyldi bylt og í þeirri baráttu helgaði tilgangurinn meðalið. Mönnum mátti vera orðið ljóst að sú stefna sem Björgvin hafði orð á var lítið annað en tíska. Sú róttækni sem náði hámarki á götum Parísar 1968 átti eftir að birt- ast í ýmsum myndum í baráttu fyrir alls kyns velferðarmálum. Hér er til dæmis átt við baráttu fyrir umhverfisvernd og kvenréttindum sem enn lifir góðu lífi.63 Sú viðhorfsbreyting sem orðið hafði lei- ddi til þess að samfélagið varð á margan hátt lýðræðislegra en áður. Menn urðu betur á varðbergi gagnvart vald- inu en um leið meðvitaðri um réttindi einstak- lingsins. Háskólarnir urðu lýðræðislegri þar sem áhrif stúdenta jukust og alls kyns agareglum var kastað fyrir róða. Námsskráin var endur- bætt og boðið upp á fleiri áfanga. Einnig hafði baráttan gegn kynþáttafordómum og stríðinu í Víetnam eflaust jákvæð áhrif þó erfitt sé að segja til um hve mikil þau voru.64 Menn hafa hins vegar deilt um hvort einhvern tíma hafi verið um eiginlega stefnu að ræða. Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur, heldur því fram að markaðsöflin hafi nýtt sér mótþróahneigð og aukna kaupgetu æskunnar í eigin þágu með því að skapa nýja tísku.65 Hann heldur því fram að hin svokallaða uppreisn æskunnar hafi verið komið á af markaðsöflunum enda hafi róttæklingarnir einblínt á „ytra róttæknitildur“, einkum á sviði klæðaburðar og afþreyin- gar. Fyrir honum var uppreisn æskunnar ekki „annað en sá eðlilegi mótþrói, sem einhvern- tíma kemur yfir hvern heil- brigðan ungling og beinist gegn yfirráðum foreldra, kennara, lögreglu og annarra valdhafa á hverjum tíma.“66 Það væri óneitanlega kaldhæðnislegt ef barátta sem gengi út á að sniðganga neyslusamfélagið yrði markaðsöflunum að bráð. Ég lít hins vegar svo á Árni fari villu vegar varðandi skilning á '68 kynslóðina. Ég lít svo á að ´68 baráttan hafi fyrst og fremst verið andúð á valdi og forsjárhyggju. Æskan vildi ekki láta segja sér hvernig hún ætti að klæðast Sú róttækni sem náði hámarki á götum Parísar 1968 átti eftir að birt- ast í ýmsum myndum í baráttu fyrir alls kyns velferðarmálum. Hér er til dæmis átt við baráttu fyrir umhverfisvernd og kvenréttindum Víetnamstríðinu mótmælt fyrir utan bandaríska sendiráðið. Myndskeið sem birtist í Þjóðviljanum 1971 og sýna átti slagkraft herstöðvaandstæðinga. Fyrir neðan má sjá Gísla Gunnarsson próf- essor fjötraðan - þó ekki af vistarbandinu!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.