Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Blaðsíða 9
Guðfræðistofnun Háskóla íslands
Fyrir rúmum áratug hófst sú stefha í Háskólanum að koma
rannsóknvun og kennslu deilda í það horf, að sérstakar stofnanir störfuðu
við deildimar.
Guðfræðideild sá hér kjörið tækifæri til þess að efla og samhæfa
fræðastörf innan deildarinnar, og vonuðust menn einnig til þess, að með
því að koma á fót sérstakri rannsóknarstofnun við guðfræðideild mætti
efla tengsl deildarinnar við fræðastörf presta og annarra guðfræðinga.
Guðfræðistofnun Háskóla íslands var sett á stofn. Hlaut reglugerð
hennar staðfestingu 25. janúar 1975, og telst það afmælisdagur
stofnunarinnar.
Hlutverk stofnimarinnar er skilgreint í reglugerðinni sem hér segir:
1. að vera vísindaleg rannsóknarstofnun í guðfræði
2. að vera vísindaleg kennslustofhun í guðfræði fyrir kandídata og
stúdenta, er vinna að fræðilegum verkefnum, sem sinnt er í stofhuninni,
eftir nánari ákvörðun stjómar stofnunarinnar
3. að vera með sama hætti, eftir því sem aðstæður leyfa, vísindaleg
rannsóknar-, þjónustu- og kennslustofnun í greinum, sem skyldar em
guðfræði eða stunda ber í guðfræðideild.
Starfsmenn stofnunarinnar teljast fastráðnir kennarar deildarinnar í
fullu starfí, sem og kennarar í hlutastarfí, óski þeir eftir aðild.
Reglugerðin gerir og ráð fyrir tímabundinni aðild annarra sérfræðinga,
sem og kandídata og stúdenta, sbr. 2. tölulið hér að ofan.
Stjóm stofnunarinnar skipa þrír fastráðinna kennara auk eins fulltrúa
stúdenta.
Það hefur að sönnu staðið starfsemi stofhunarinnar mjög fyrir
þrifum, að það var ekki fyrr en á árinu 1986, að fé var veitt til hennar á
fjárlögum. Þrátt fyrir það hefur stofnunin að hluta til getað gegnt
hlutverki sínu, enda stjómarfundir haldnir sem og ársfundir skv.
reglugerð, þar sem rannsóknaráætlanir hafa verið lagðar fram og ræddar,
í von um betri tíð.
Þáttaskil verða í stuttri sögu Guðfræðistofnunar árið 1982, þegar
Gísli Sigurbjömsson fyrir hönd stjómar Elli-og hjúkrunarheimilisins
Gmndar færði stofhuninni minningargjöf að upphæð 100 þúsund krónur
á 60 ára starfsafmæli Gmndar. Jafnframt var settur á stofn Starfssjóður
Guðfræðistofhunar Háskóla íslands. Sömu aðilar hafa síðan styrkt sjóðinn
með rausnarlegum gjöfum. Nánar segir frá þessum merka þætti í sögu
stofnunarinnar á öðmm stað í þessu hefti.
Af rannsóknum á vegum Guðfræðistofnunar er það helst að frétta, að
nú fer fram úrvinnsla á könnun á trúarlífí og trúarlegum viðhorfum
íslendinga. Leitað var til 1000 manna á aldrinum 18-75 ára með ítarlegan
7