Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Blaðsíða 67
Lestur og ritskýring
Þátttakendur og samband þeirra innan textans og sjónarmið (e). Höfund
og lesanda í textanum (sögumann og áheyranda sögumanns ) (f).
Formgreiningu — stflbrigði (g). Röksemdafærsluna í frásögninni og
atriði sem vekja spumingar — hnökra (h).
2. Höfundur — lesendur:
a. Upplýsingar úr samtímaheimildum sem gætu varpað ljósi á
það samfélag sem textinn varð til í.
b. Upplýsingar um bókmenntaform og hlutverk þeirra í
samfélaginu sem gætu varpað ljósi á tilurð textans og hvemig
höfundur (innbyggður höfundur) beitir texta sínum til þess
að hafa áhrif á lesandann (innbyggðan lesanda).
c. Upplýsingar um upphaflega lesendur og samfélag þeirra sem
byggja á félagslegum könnunum á nútímasamfélögum.
Aðferðir félagsvísinda.
í öðrum þætti reynum við að gera okkur grein fyrir því hvemig
höfundur notar textann til þess að ná til og fá lesendur sína í samtal við sig
með texta sínum. Við reynum að afla okkur allra upplýsinga sem tiltækar
em um viðkomandi samfélög og lífsviðhorf þeirra bæði með því að leita í
samtíma heimildir, gyðinglegar og hellenískar,54 og eins með því að
styðjast við félagsfræðilegar kannanir á nútíma samfélögum og beita
líkönum, sem þar hafa verið gerð, á hin fomu samfélög.55
Rannsóknir í félagsvísindum og bókmenntafræðum hafa opnað augu
manna fyrir því hve vandasamt það er að ætla sér að lifa sig inn í fom
samfélög, og jafnframt hafa þessar fræðigreinar veitt biblíufræðum
ómetanlegan stuðning við rannsóknir á samfélögum Biblíunnar.
3. Textinn og við:
a. Hvemig getum við nálgast textann þannig að við finnum að
hann fjalli um lífsspumingar okkar?
b. Hvemig getum við notað textann til samtals við aðra, fengið
aðra til þess að glíma við hann með okkur?
c. Hvemig getum við búið til nýja texta út frá textanum?
d. Hvemig getum við kannað áhrifamátt íslensku þýðingar
54 Margar handbækur eru til um þessi efni, mætti t.d. nefna Theologisches Wörterbuch
zum Neuen Testament í útg. G. Kittels og Reallexikon f. Antike und Christentum.
Sjá nánar: S.B. Marrow, Basic Tools of Biblical Exegesis (Róm: Biblical Institute
Press, 1976) bls 74-82.
55 J. H. Elliott, „Social-Scientific Criticism of the New Testament and its Social World:
More on Method and Models,“ Semeia 35 (1986), bls. 1-33; O. C Edwards, Jr.,
„Sociology as a Tool for Interpreting the New Testament," Anglican Theological
Review LXV(1983), bls. 431-448.
65