Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Blaðsíða 53

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Blaðsíða 53
Jón Sveinbjömsson LESTUR OG RITSKÝRING Drög að aðferðafræði Þrír meginþættir ritskýringar Þegar lesa á texta þarf að taka tillit til þriggja meginþátta, sem lesturinn felur í sér, og samspils þeirra. í fyrsta lagi þarf að gera sér grein fyrir höfundi textans og aðstæðum hans, en höfundur beitir textanum til þess að koma boðskap sínum til skila. í öðru lagi þarf að gera sér grein fyrir textanum sjálfum, málfari hans, byggingu og gerð, og hlutverki hans í þeim samfélögum þar sem hann er notaður. Athuga ber að hugtakið „texti“ er ekki eingöngu bundið við ritað mál. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir margbreytilegu formi texta, ekki síst nú á tímum þegar hægt er að tala um byltingu í fjölmiðlun. Texti er ekki aðeins prentað mál heldur einnig talað mál, kvikmynd, hljóðsnælda, myndband, tölvuskífa — og fleiri form mætti efalaust nefna.1 í þriðja lagi þarf að gera sér grein fyrir viðtakandanum, lesandanum eða áheyrandanum og aðstæðum hans. Lesandinn tekur ekki aðeins við textanum, heldur verður hann þátttakandi í textanum og notar hann til samtals við aðra lesendur. Lesandinn er þannig á vissan hátt einnig höfundur nýs texta sem hann skapar með því að nota texta sem er fyrir hendi.2 Allir þessir meginþættir, höfundur, texti og lesandi, em í órofa tengslum. Þeir verða ekki rýndir einir út af fyrir sig, heldur þarf að skoða þá saman þegar texti er lesinn. Texti er ekki til án höfundar og viðtakanda. Þegar texti er lesinn fer fram samspil þessara þátta. Textinn verður þá fyrst raunvemlegur þegar tekið er við honum, þegar hann er lesinn eða á hann hlýtt. 1 í þessu sambandi má benda á bókina The Oral and the Written Gospel, The Hermeneuúcs of Speaking and Writing in the Synoptic Tradition, Mark, Paul, and Q eftir Wemer H. Kelber — (Philadelphia: Fortress Press, 1983) og þær umræður sem bókin hefur vakið. Sjá t.d. greinar í 39. bindi ritsins Semeia. Orality, Aurality and Biblical Narrative (Society of Biblical Literature 1987). 2 í þessu sambandi má minnast á kenningar deconstructionista sbr. J. Culler, On Deconstruction. Theory and Criticism after Structuralism, (Ithaca NY: Comell University 1982); sjá einnig ýmsar greinir eftir amenska bókmenntafræðinginn J. Hillis Miller. 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.