Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Blaðsíða 73
Jónas Gíslason
ER ÞÖRF Á ENDURMATI
ÍSLENZKRAR KIRKJUSÖGU?
I
Er þörf á endurmati íslenzkrar kirkjusögu?
Þessi spuming kann að koma einhverjum undarlega fyrir sjónir.
íslendingar eru stundum við hátíðleg tækifæri kallaðir söguþjóðin; við
teljum oft ósjálfrátt, að við þekkjum náið sögu liðinna kynslóða í þessu
landi, svo að þar sé fátt á huldu.
Víst er það rétt, að fslendingar þekkja sögu sína betur og nánar en
flestar aðrar þjóðir; svo er fynr að þakka miklum og ómetanlegum
heimildum frá liðnum öldum. íslenzkar heimildir em meiri en margra
annarra þjóða frá fyrstu öldum byggðar í landinu.
Hitt er staðreynd, að mikið vantar á, að við kunnum full skil sögu
okkar; oft virðist næsta tilviljunarkennt, hvað hefur varðveitzt í
heimildum og hvað hefur glatazt eða aldrei verið skráð. Auk þess hefur á
allra seinustu tímum komið fram nýtt mat á mörgum þeim heimildum,
sem áður vom taldar óyggjandi eða að minnsta kosti sæmilega
trúverðugar.
Mönnum er nú orðið ljóst, að íslendingasögumar t.d. em alls ekki
sagnfræði í nútímaskilningi, heldur oft miklu fremur sögulegar
skáldsögur, þar sem ramminn er réttur, en höfundur fer frjálslega með
efnið, að ekki sé meira sagt; stundum hefiir hann jafnvel fjallað um eigin
samtíð í búningi frásagna frá löngu liðnum tímum. Þess vegna væri
jafnhæpið að telja þessar sögur sagnfræðilegar og ef farið væri að byggja
á sögulegum skáldsögum Halldórs Laxness sem sagnfræðilegum
heimildum, þegar hann notar ákveðna sögulega atburði sem uppistöðu í
bókum sínum.
í eftirfarandi ritgjörð langar mig til þess að fjalla um nauðsyn
endurmats íslenzkrar kirkjusögu. Jafnframt er rétt að minna á, að
langtímum saman er íslenzk kirkjusaga verulegur hluti almennrar
þjóðarsögu, miklu meir en raun ber vitni um sögu flestra annarra þjóða.
Island hafði aldrei innlendan konung; biskupamir í Skálholti og á Hólum
vom jafnan í hópi voldugustu höfðingja landsins og áhrif kirkjunnar
mótuðu þjóðlífið í flestum greinum; má segja, að breyting hafi fyrst orðið
á þessu upp úr aldamótum 1800. Þess vegna er ljóst, að endurmat
íslenzkrar kirkjusögu hlýtur að leiða til vemlegs endurmats íslenzkrar
þjóðarsögu.
71