Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 48

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 48
Múlaþing 2/5, kúm um 1/5 og hrossum um 1/6. Talið var að hreindýrum hefði fækkað mikið á tímabilinu 1860-1870 og stórfallið 1867.20 Þær skoðanir hafa heyrst að veiðar hafi ráðið úrslitum um fjölda dýranna á 19. öld en það er mjög ólíklegt þar sem veiðar og drápstæki voru mjög frumstæð. Einnig bendir allt til þess að árleg veiði á 19. öld hafi verið mun minni en árleg veiði undan- farin ár. Lifnaðarhættir Hreindýrið tilheyrir hjartarættinni (Cervidae) og ber vísindaheitið Rangifer tarandus. Fyrra nafnið táknar hornbera og það síðara flakkara. Hreindýrin ganga víða á norðurslóð allt í kringum pólinn og eru stærstu villtu hjarðirnar í Alaska, Kanada og Sovétríkjunum. Hreindýrabúskapur er einkum stundaður í Skandinavíu og Sovét- ríkjunum. Hreindýrin bera í maí og nota yfirleitt sömu burðarsvæði ár eftir ár. A burðar- svæðunum eru nær eingöngu kelfdar kýr en tarfar, geldar kýr og ung dýr leita í sumarhaga í maflok og júníbyrjun. I sumarhögunum safnast þau saman í stærstu hópana en í ágúst og september- byrjun fara dýrin að leita út á heiðarnar og þá koma til móts við þau fullorðnir tarfar sem ekki gengu í hinum hefðbundnu sumarhögum. Þegar hreindýrin leita úr sumarhögunum hafa þau safnað fituforða fyrir veturinn og getur bakfita á fullorðnum törfum verið 5-10 sm. Fengitíminn hefst í septemberlok og stendur fram í miðjan október. Eftir fengitímann dreifast hreindýrin víða um heiðarnar en leita oft til byggða seinni part vetrar einkum ef snjóalög eru óhagstæð. Dýrin eru aðlöguð því að lifa við óblíðar aðstæður, þola kulda mjög vel og finna lykt af fæðu í gegn um allt að 60 sm þykkan snjó. Það sem dýrin hafa helst að óttast hér á landi eru jarðbönn seinni part vetrar en þau eiga sér engan náttúrulegan óvin eins og víðast hvar annars staðar s.s. úlfinn. Hreindýrið er eina hjartardýrið þar sem bæði kynin eru hyrnd og vaxa hornin árlega. Hornin eru klædd floskenndri húð sem fellur af þegar þau eru fullvaxin. Fullorðnir tarfar fella homin fljótlega eftir fengitímann, geldar kýr og ungir tarfar í janúar-mars, veturgömul dýr á vorin en kelfdar kýr ekki fyrr en eftir burð. Hornin eru stöðutákn hjá dýrunum og eru því kelfdar kýr hæst settar seinni part vetrar þegar helst þrengir að þeim, þannig að jafnvel stórir kollóttir tarfar láta í minni pokann fyrir þeim. Þannig tryggir náttúran kelfdum kúm mestar lífslíkur allra einstaklinga í stofninum á erfiðasta tíman- um.21 Um helmingur sumarfæðu hreindýr- anna em einkímblöðungar, einkum stinna- stör, en rúmur þriðjungur eru runnar þ.e. grávíðir og grasvíðir. Vetrarbeitin fer mikið eftir vetrarhögum þ.e. hversu mikið finnst af fléttugróðri. A Fljótsdalsheiði þar sem hreindýrin hafa gengið mjög nærri fléttum eru einkímblöðungar (vallarsveifgras, stinnastör, túnvingull) og runnkenndar plöntur (sauðamergur, krækilyng, holta- sóley) um 80% af fæðunni en fléttur aðeins 3%. A Jökuldalsheiði er gnægð fléttna og þar eru þær um helmingur af vetrarfæðu hreindýranna (þ.a. fjallagrös 38%) en einkímblöðungar (vallarsveifgras, túnving- ull, stinnastör) tæpur þriðjungur.22 Athuganir á fallþunga hreindýra á Fljótsdals- og Jökuldalsheiði árin 1979- ^Alþingistíðindi 1927 B, 316-322. Halldór Stefánsson, 1952. Þættir úr sögu Austurlands á 19. öld. Austurland. Safn austfirskrafrœða IV, 77. 21 Skarphéðinn Þórisson, 1983. "Hreindýrarannsóknir 1979-1981". Orkustofnun, 10-11. 46
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.