Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 64

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 64
Múlaþing en við eyna. Þá veiddu líka í flóanum menn frá Jökulsárhlíð. Þeir héldu til í Múlahöfn, landmegin suðvestur frá Bjarnarey. En svo vil eg minnast á gamla bæinn við Suður- borg. Þar voru bara grasigrónir veggkarmar þegar eg sá þá fyrir 60 árum. Þó mun vera heldur lengra síðan. Björn póstur var þá búinn að búa þar í mörg ár. Hann bjó í nýlegum bæ sem eg held að hann hafi sjálfur látið byggja. Bær þessi stóð við borgimar Gullborg og Miðborg, þó nær Miðborg nálægt honum stóð lítill kofi byggður fastur við Miðborg og mig minnir vera hænsakofi. Þessi kofi held eg hafi staðið þegar eg var þar síðast, vestan við borgimar, og heyrði oft getið um stein í eynni sem átti að hafa verið með rúnaletri og átti einhver sem var með að byggja bæinn [að] hafa brotið hann sundur til hleðslusteina í bæjarveggina. Við bræð- urnir leituðum einu sinni eftir broti úr steininum innan veggja og utan en fundum ekki. Þá var búið að rífa húsið. Ur því var byggt þverhúsið sem stóð og máski stendur ennþá áfast við efri bæinn í Fagradal. Hinu megin við sundið milli eyjar og lands gengur langur tangi í sjó fram í norður frá Standandanesi. Með fram honum efst að innanverðu er vogur og heitir Sauðavogur. Þar er uppganga á nesið en tanginn var kallaður Flestjartangi. Fremst og upp eftir honum em sléttar klappir. Þegar efst er komið í tangann verður fyrir klettahæð, upp á þeirri hæð er Gullbjörn heygður. Haug- urinn er eins og efri partur af sykurtopp í laginu. Nálægt efri brún haugsins er tanginn klofinn frá landi og er standbjarg beggja megin. I gegnum þetta sund er hægt að komast á litlum bát á flóði. Sund þetta var kallað Ormurinn. Gullbjarnarhaugur sést langa leið úr fjarlægð. Hann var hafður fyrir hákarlamið frá Fagradal og var þá látinn bera í Svartnestanga. Það er nokkuð langt utan við Fagradal. Þetta er nú orðinn nokkuð langur útúrdúr hjá mér og vík eg nú aftur til þess er frá var horfið. Mig minnir það vera sumarið eftir að eg reif skúrinn að eg bjó mig undir að fara út í Bjarnarey til fiskjar á bátnum mínum Neptún. Elís léði mér íbúð í sjómanna- skúrnum. Sem fyrr tók eg skúrinn sem eg var í áður. Tvo menn fékk eg með mér upp á hlut. Þeir voru atvinnulausir eins og eg og fleiri. Menn þessir hétu Höskuldur, Guð- mundur og Einar Pálsson, sem eg hef áður getið um (Einar og Sveinn Jónsson í Fagradal voru systrasynir). Þeir voru farnir að eldast, Höskuldur og Einar, en duglegir til vinnu og voru góðir fiskimenn og alltaf glaðir og kátir og oft glatt á Hjalla hjá okkur. Konuna og drenginn skildi eg eftir heima. Eg var þá búinn að kaupa húsið af Villa sem hann áður bjó í og hann búinn að byggja sér annað. I eynni hafði eg þann sið að á kvöldin þegar við vorum búnir að gera að fiski, ganga frá öllu og borða. Lét ég gömlu mennina fara að sofa. Eg fór þá að útbúa og elda mat til næsta dags, sérstak- lega hafragraut og hafa tilbúið kaffi því venjulega fórum við á sjóinn klukkan fjögur á nóttunni. Einstöku sinnum heyrði eg bankað á hurðina en nú var farið mjög fínt í það. Stöku sinnum leit eg út en ekki sá eg neitt hvað eða hver það var. Eg þóttist vita hvað þetta var og að þetta voru hrekkja- brögð til þess að narra mig út. Þá var það eitt sinn að eg fór seint að hátta og sofnaði fljótt. Ekki veit eg hvað lengi eg var búinn að sofa þegar mig dreymir að til mín kemur stúlka á að giska sextán ára eða vel það því hún var stór. Hún segir við mig: „Þú mátt ekki vera hræddur þó þú heyrir barið í hurðina. Það er hann litli bróðir minn og þegar þú kemur út er hann alltaf búinn að fela sig í gryfjunum sem hérna eru í kring.“ Svo þegir hún. Þá segi eg: „Ekki hef eg 62
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.