Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 100

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 100
Múlaþing Nordal áttaði sig ekki á þessu atriði. „Orðskviðir eru hlutfallslega margir í sög- unni, og er þess stundum getið að þeir séu teknir af alþýðu vörum: það er forn orðskviður, minnist nú margur á fornan orðskvið, satt er flest það; sem fornkveðið er.“ En hér hefur hinum mæta fræðimanni skjátlast; honum tókst ekki að finna réttlega undirstöðu til orðanna forn og fornkveð- inn; þau varða engan veginn alþýðu varir heldur mikinn aldur; sum spakmælin voru orðin allt að því þúsund ára gömul þegar atburðir Hrafnkels sögu eru taldir hafa gerst. Víðar í ritum okkar frá þrettándu öld er orðið forn notað um Rómverja, Gyðinga og Grikki í löngu liðinni fortíð. Lærður stíll Sigurður Nordal gerir skarpan mun á tvenns konar stíl sem fornsögur spruttu af: „Annars vegar var hinn frumstæði frá- sagnarháttur munnmælanna [...]. Hins vegar var svo hinn erlendi klerkastíll, breiður, flókinn og umsvifamikill. Islend- ingum lánaðist, - bæði fyrir þekkingu sína á latnesku bókmáli og þýðingar úr því á íslenzku allt frá því um 1100, - að skapa sér sögustíl og sameina í honum mikið af einfaldleik hins daglega máls og fyllingu hins bóklega.“ (52-53). Sigurður telur að ýmsar málsgreinar í Hrafnkels sögu beri keim af klerklegum stíl, og vissulega er það rétt athugað að eftirfarandi glefsur standast illa samanburð við glæsilegt orðalag í hinum bestu Islendinga sögum: „mér þykir þetta verk í verra lagi víga þeirra, er eg hefi unnið [...] mér þykir þetta verk mitt verra en önnur þau, er eg hefi unnið.“ „Munuð þið hafa annaðhvort fyrir ykkar þrá, nökkura huggan eða læging enn meiri en áður og hrelling og skapraun.“ „Hann var linur og blíður við sína menn, en stríður og stirðlyndur við Jökulsdalsmenn." Hér bregður fyrir breiðum og flóknum stíl, enda eiga slíkar málsgreinar sér ærnar hliðstæður í klerklegum ritum. Þótt ummæli Sigurðar og annarra fræði- manna um hinn lærða stíl séu býsna at- hyglisverð, þá eru þau að því leyti einhliða og villandi að þau gefa rangar hugmyndir um ritþjálfun að fornu. Þeim íslendingum fyrr á öldum sem auðnaðist að komast á skólabekk munu hafa verið innrættar ýmsar reglur um meðferð móðurmálsins sem stinga mjög í stúf við staðhæfingar um lærða stílinn. Margt af því sem snúið var á íslensku á tólftu og þrettándu öld er býsna vel úr garði gert og harla ólíkt þeim útlenda klerkastíl sem Nordal nefnir. í slrku sam- bandi skal minna á setningar Prospers Aquitinusar,19 ýmsar hómílíur, þýðingar úr heilagri ritningu og veraldleg rit á borð við Hugsvinnsmál, Rómverja sögur, Leiðar- vísan lærisveins og Alexanders sögu. Þótt guðfræði fyrri alda sé nú fáum að skapi, þá er það blindur maður sem áttar sig ekki á þeirri fegurð og þeim einfaldleika, þeirri mýkt og þeim þrótti sem auðkennir fjöl- margar setningar í kristinfræðum Islendinga á tólftu og þrettándu öld. „Hvað merkir á nema fljótanda rás mannkyns þess es svo rennur frá uppruna sínum til dauða svo sem á til sævar?“ „Er enn og ógóðgjarnlegt að vilja heyra illa kvittu, en óspaklegt að trúa, allra helst ef þeygi er skylt að vita, þótt satt væri.“ „Hinn góði maður, þótt hann þjóni öðrum, þá er hann þó frjáls, en hinn illi þótt hann hafi konungs ríki þá er hann þó þræll fastur á fótum, eigi sem eins manns heldur jafn margra drottna sem hann á löstu marga.“ 19Sá tólftu aldar íslendingur sem sneri kjamyrðum Prospers (d. 455) á móðurmál sitt bar gott skyn á iatneska tungu og kunni íslensku út í ystu æsar: „Sá einn maður er við alla ómeinn er hvorki gerir mein sér né öðrum.“ „Svo skal mönnunum unna að þeygi séu misgerðir þeirra elskaðar.“ Leifar fornra frœða íslenzkra. Útg. Þorvaldur Bjamarson (Kaupmannahöfn 1878), bls. 2-18. 98 A
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.