Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 122

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2000, Page 122
Múlaþing beðið með að stíga dansinn. Harmónikkan var þanin. Hljómar hennar voru dásamlegir í okkar eyrum og var dansað af miklu fjöri. Meðfram veggjum í salnum voru bekkir sem setið var á en oft var hópur af karl- mönnum sem stóð frammi við dyr. En sá hópur minnkaði stórum þegar á dansleikinn leið því fleiri og fleiri tóku í sig kjark og svifu út á gólfið með dömu í fanginu. Þá var siður að flytja ræðu eða lesa upp á samkomum og fór það stundum fram í kirkjunni. Þá kom það fyrir að séra Vigfús og synir hans skemmtu með hljóðfæra- slætti. Spilað var á orgel og fiðlu og var það góð skemmtun. Þá var fiðlan ekki al- gengt hljóðfæri, en á Eydalaheimilinu man ég að einnig var til mandólín. Það var haldið áfram að dansa þegar skemmtiatriðum var lokið. Það var orðið skuggsýnt í salnum og nú var orðið þröngt á gólfinu því flestir voru farnir að dansa. Nú hljómaði dægurlag þess tíma sem einna mest var spilað: „Ljúfa Anna láttu mig vissu fá/ þú ein getur læknað mín hjartasár.“ Ljóðið var allt sungið en mér fannst bera mest á þessum ljóðlínum. Úti á döggvotu Stöðulbarðinu gengu saman pör öðru hvoru. í marsi rétt áður hafði skotist út par sem labbaði í næturhúminu og ræddist hljóðlega við, en í humátt á eftir þeim lædd- ust nokkrir strákatittir til að njósna. Eftir fá ár munu þessir sömu leiða dömu við hönd sér eftir þessum eða öðrum grundum og aðrir strákatittir á eftir þeim til að njósna. Þá segir herrann við sína dömu: „En hvað þessir strákar geta verið andstyggilegir að geta ekki látið okkur í friði. Ég held að þá varði lítið um þó við færum út.“ „Aldrei hefur þú verið svona leiðinlegur eins og þessir strákagemlingar“, segir unga stúlkan um leið og hún hallar sér þéttar að draumaprinsinum í hljóðu húmi næturinnar. Það var liðið á nóttina þegar lagt var af stað heim. Hestunum smáfækkaði í móun- um er fólkið tíndist af stað. Við heyrðum óminn af dansmúsíkinni þegar við vorum að fara, sennilega síðasti dans. Eftir stutta stund yrði allt orðið hljótt. Þessi stund var sem allar liðnar stundir orðin minning ein. Heim var haldið til að njóta minninganna áður en svefninn tók okkur í arma sína. Ég var ein af þessum hópi sem steig á bak góðhesti foreldra minna og hin léttu hófatök hans fylltu mig unaði og: „lund mín er svo létt eins og gæti ég gjörvallt lífið geysað fram í einum sprett.“ í húmi næturinnar slepptum við hestun- um í hagann, gengum frá reiðtygjunum og bjuggum okkur í rúmið. Nú var mín heitasta ósk að fá að sofa fram eftir en þurrkur á heyið hafði látið bíða eftir sér, svo nú var hans mikil þörf. Þennan mánu- dagsmorgun skein sólin glatt og besti þurrkur. Ég hrökk upp af værum svefni er móðir mín kallaði: „Vaknaðu, vaknaðu. Það er korninn brakaþurrkur og þú þarft að fara strax á engjarnar.“ Ég reis á fætur, klæddi mig og óskaði að nú væri ekki þurrkur og ég mætti sofa og njóta drauma minna. I staðinn fór ég með morgunmatinn handa fólkinu sem allt var farið að breiða hey og snúa í. Víða sást fólk við heyskap frá bæjunum í kring og var líflegt að líta á þetta iðandi líf. Fljótlega sendi pabbi mig að sækja hestana því strax var farið að flytja heim þegar búið var að binda upp á hestana. Áfram var haldið til kvölds og mörg ilmandi heytuggan var komin í hlöðurnar, en danslögin dunuðu í eyrum mér allan daginn og gerðu allt svo skemmtilegt. Já, þá var sól og sumar. 120
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.