Jökull


Jökull - 01.12.1984, Side 11

Jökull - 01.12.1984, Side 11
Ágrip Grímsvatnagosið 1983, atburðarás og efnagreining á gjósku. Karl Grönvold og Haukur Jóhannesson Norræna eldfjallastöðin, Náttúrufræðistofnun íslands Að morgni 28. maí 1983 varð vart við óvenju mikla skjálftavirkni á skjálftamælinum að Skamma- dalshóli í Mýrdal og upptök skjálftanna reyndust vera í Grímsvötnum eða grennd þeirra. Virknin hélt áfram allt til kl. 15.00 sama dag, en þá tók við svonefndur gosórói. Gosóróinn var mestur dagana 28. og 29. maí en hætti ekki alveg fyrr en upp úr miðnætti aðfaranótt 2. júní. Fyrstu sýnilegu merki um eldgosið sáust úr áætlunarvél Flugleiða frá Egilsstöðum að kvöldi hins 28. maí. Um kl. 21.35 sást hvítur gufustrókur rísa upp úr skýjaþykkninu við Grímsvötn, en hann hafði ekki sést á austurleiðinni fyrr um kvöldið. Gosstöðvarnar sáust fyrst kl. 10.30 að morgni 29. maí. Þá var Flugleiðavél á leið til Egilsstaða beðin að svipast um við Grímsvötn vegna hinnar óvenjulegu skjálftavirkni sem vart hafði orðið. Þá sást sporöskjulaga vök, um 300 m í þvermál, norðan undir Vestri-Svíahnjúk. Vökin stækkaði næstu daga og varð mest um 500 m í þvermál. Gosstöðvarnar voru við öskjurimann á sama stað og stærsti gígurinn 1934. Örþunnur öskugeiri lá um 5 km til suðurs frá vökinni og var hann mest um 1 km á breidd. Bryndís Brandsdóttir (pers. uppl.) telur, að hann hafi fallið milli kl. 12 og 18 daginn áður og þá einna helst eftir kl. 15 en þá hófst gosóróinn. Annar geiri, um 1 km langur og 500 m breiður, lá til norðurs frá vökinni. Hann var úr ösku, gjalli og bombum blandaður ís- stykkjum og geislaði frá vökinni. Jaðrar síðar- nefnda geirans voru skarpir gagnstætt jöðrum suðurgeirans. Hann hefur vafalítið myndast við, að bylgja hefur flætt úr vökinni út á íshelluna. Hún getur hafa myndast við gossprengingu eða hrun ofan í vökina úr hlíðinni eða af hvoru tveggju. Flogið var yfir gosstöðvarnar öðru hvoru frá 29. maí til kl. 16 31. maí. Allan þennan tíma var virknin svipuð, stöku sprengingar, sem sendu öskutrjónur um 50-100 m upp. Gufustrókur náði oftast 1—2ja km hæð yfir umhverfið. Síðast sást til gosstöðvanna milli kl. 15 og 16 hinn 31. maí og þá hafði ekki fallið aska utan vakarinnar nema það sem kom í upphafi. Síðari hluta dags 31. maí huldist Vatnajökull skýjum og gosstöðvarnar sáust ekki aftur fyrr en 5. júní. Úr flugvélum sást gufumökkur stíga upp úr skýjaþykkninu allan 1. júní en að morgni 2. var hann horfinn. Um kl. 10 að morgni 1. iúní var áætlunarvél frá Arnarflugi á leið austur á Fáskrúðsfjörð og flaug norðan við Grímsvötn. Þá náði skýjaþykknið upp í 3ja km hæð en gufustrókurinn í 5 km hæð. Gufu- bólstrar hnykluðust upp í hrinum, og kom nýr bólstri á um 2V5—3 mínútna fresti og hverri hrinu fylgdi svart öskuský, sem náði upp í 4300—4500 m hæð. Á baka leiðinni, milli 11.00 og 11.30, voru hrinurnar á 4—5 mínútna fresti. Einn farþega, Þorleifur Kristmundsson, tók röð af myndum á austurleiðinni þar sem öskubólstrarnir sjást vel. Á myndunum sést einnig, að gosmökkurinn leggst til austnorðausturs. Síðdegis 5. júní sást næst til Grímsvatna og var engin eldvirkni sjáanleg en aftur á móti var komin hálfmánalöguð gjalleyja í miðja vökina um 80 m í þvermál, og rauk upp af henni. Einnig var öskugeiri til austnorðausturs (2. mynd) og náði a. m. k. austur að öskjurimanum við Svíahnjúk eystri. Hann var um 1 km breiður næst vökinni. Telja má víst, að hann hafi fallið að morgni 1. júní. Öskusýni frá gosinu voru efnagreind. Glerhluti öskunnar var greindur í örgreini og reyndust öll sýnin hafa svipaða efnasamsetningu. Mjög svip- aða efnasamsetningu hafa og öskusýni frá Gríms- vatnagosunum 1934, 1922 og 1903. Bergtegundin er það sem kallað er þróað basalt eða á máli bergfræðinga, kvarts þóleiít. Það að bergtegund- in er þróuð táknar að hún hefur með einum eða öðrum hætti breytt efnasamsetningu sinni á leið til yfirborðs. Langlíklegasta orsök þessara JÖKULL 34. ÁR 9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.