Jökull


Jökull - 01.12.1984, Page 132

Jökull - 01.12.1984, Page 132
eru aðskildar af malareiningu (Mynd 2). Neðri leireiningunni lýsti hann sem bugðóttum og sprungnum leir, og vakti athygli á því að víða er grjótdreif í leirnum. Efri leireiningunni lýsti hann sem lagskiptum leir, oft með þunnum lögum af fínum sandi. Hann ályktaði að upphleðsla neðri leireiningarinnar hefði átt sér stað er jöklar voru að hörfa inn til Borgarfjarðardala, en upphleðsla þeirrar efri um það leyti er jöklar hurfu endan- lega úr héraðinu. Guðmundur G. Bárðarson fjal- laði enn fremur um sjávarstöðubreytingar í Borg- arfirði og dró saman niðurstöður sínar í línuriti (Mynd 3). Að síðustu fjallaði hann um myndun- araðstæður fomskeljalaga á svæðinu, og bar saman við fornskeljalög í Breiðafirði. Verk Guðmundar G. Bárðarsonar stóð óhagg- að um áratuga skeið, en ýmsir urðu þó til að bæta við mynd hans. Má þar nefna Jóhannes Áskels- son, Guðmund Kjartansson og Sigurð Þórarins- son sem bættu við ýmsum athugunum á jökulrofi, útbreiðslu jarðlaga og jarðlagaskipan. Sænski jarðfræðingurinn Ebba Hult De Geer var fyrst til að vekja athygli á þeim möguleika að setja upp tímatal fyrir setlögin í Borgarfirði. Það er þó ekki fyrr en með geislakolsaðferðinni sem raunhæfur möguleiki til þess skapast. Á svipuð- um tíma og aldursákvarðanir á fornskeljum fara að birtast (sjá Töflu 1) fara að koma fram and- stæðar kenningar um jarðsögu Borgarfjarðar á síðjökultíma. í dag eru uppi þrjár meginkenn- ingar: Porleifur Einarsson telur að ísaldarjöklarnir hafi hörfað inn fyrir núverandi strönd á Borgar- fjarðarsvæðinu fyrir tæplega 13000 árum. Sjór hafi fylgt jöklunum fast eftir og sjávarset tekið að hlaðast upp á núverandi láglendi Borgarfjarðar. Framrás jökla á Álftanesskeiði, er hófst fyrir um 12300 árum, hafi orsakað myndun jökulgarða í mynnum Borgarfjarðardala. Jökull er gekk fram Svínadal og Hvalfjörð hafi myndað áberandi jökuigarð þvert um láglendi Leirársveitar (Skor- holtsmelar). Fyrir um 12000 árum hafi jöklarnir hörfað á nýjan leik, og sjór náð hæstu mörkum sínum um svipað leiti. Þorleifur Einarsson telur að jökulframrása á Búðaskeiði, fyrir um 11000 árum hafi lítt eða ekki gætt á láglendi Borgar- fjarðar. Pessi mynd Þorleifs Einarssonar er um margt lík hugmyndum Guðmundar G. Bárðar- sonar. Breski landfræðingurinn Ian Ashwell telur að fyrir um 13000 árum hafi Borgarfjarðarhérað allt, utan hæstu tinda Skarðsheiðar, verið hulið jökli er skriðið hafi mót suð—suðaustri mót ystu mörk- um landgrunnsins. Fyrir um 12500 árum hafi þessi jökulbreiða skiptst upp í nokkra stóra skriðjökla vegna þynningar meginíssins. Skrið- jöklarnir hafi sameinast í láglendi Borgarfjarðar. Vegna hækkandi sjávarborðs hafi jöklarnir flotið upp, og setmyndun hafi átt sér stað á hafsbotni undir jökulbreiðunni. Hugmynd Ashwells gerir mikið úr þætti bræðsluvatns er runnið hafi í og undir jöklunum. Hún gerir enn fremur ráð fyrir að leysing jöklanna hafi verið næsta samfelld, án framrásarskeiða. Guttormur Sigbjarnarson telur að á síðjökul- tíma hafi jöklar gengið fram Borgarfjarðardali frá jökulmiðju er staðsett hafi verið norðan við núverandi Langjökul. Er jöklarnir hörfuðu hafi jökulmiðjan færst til austasta hluta Snæfellsness. Guttormur Sigbjarnarson telur að tvær aðskildar jökulframrásir hafi átt sér stað á síðjökultíma er náð hafi fram á láglendi Melasveitar. Hann telur Skorholtsmela vera jökulgarð er hlaðist hafi upp í tengslum við þessar framrásir. Fyrri framrásina telur hann að hafi átt sér stað á Álftanesskeiði, en þá síðari á Búðaskeiði. Hann telur enn fremur að Borgarfjarðardalir hafi verið íslausir undir lok jökultíma, en verið fylltir jökulstífluðum lónum. Þegar þessar mismunandi hugmyndir um jarð- sögu Borgarfjarðar á síðjökultíma eru skoðaðar nánar og forsendur þeirra kannaðar, kemur í Ijós að þær eru byggðar á mjög lauslegum athugun- um. Jarðlagaskipan svæðisins er illa þekkt, og varhugavert að byggja um of á athugunum Guð- mundar H. Bárðarsonar, sem eru barn síns tíma og standast ekki nútíma kröfur um hlutlægni og nákvæmni. Könnun Ólafs Ingólfssonar á jarð- lagaskipan setlaga í Mela- og Leirársveit (Mynd 4) leiddi til niðurstöðu sem er töluvert frábrugðin niðurstöðu Guðmundar H. Bárðarsonar. Aldursákvarðanir á fornskeljum frá svæðinu gefa aðeins hugmynd um aldur á litlum hluta setlaganna, og vafasamt að nota þær til að skjóta stoðum undir viðamikið tímatal. Sjávarstöðubreytingar í Borgarfjarðarhéraði eru illa þekktar, og nákvæmar mælingar á fornum strandlínum eru fáar. Einnig skortir gögn til að unnt sé að tengja sjávarstöðubreytingar við ein- staka hluta jarðlagastaflans. Setfræðilegar athuganir á byggingarlagi, mynstri og bergvafi eru fáar, og gögn skortir til að hægt sé að setja fram trúverðuga mynda af forn- umhverfi. Þá eru ekki allir á eitt sáttir um tilvist, magn né útbreiðslu jökulminja á svæðinu. 130 JÖKULL 34. ÁR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.