Jökull - 01.12.1984, Side 179
um hinn 18. júlí. Sumarið hjá okkur hér mátti
heita gott. Suðvestanátt og nokkuð hlýtt marga
daga, einkum í júlí, þá komu 9 sólskinsdagar
heilir. Lengst af var sól hluta úr dögum.
Jökultungan er orðin þunn og flöt. Hún er lítið
sprungin og góð yfirferðar.
GLJÚFURÁRJÖKULL
Dalbotnajöklar á Norðurlandi eru nú á
haustnóttum 1983 þaktir snjó frá síðasta vetri og
ná hjarnbreiðurnar víðast hvar út fyrir sjálfan
jökulísinn.
Varðandi Gljúfurárjökul tekur Ingvi Eiríksson
fram: Snjór frá síðasta vetri er meðfram jöklinum
og með ánni út á miðjan dal. Jökuljaðarinn er þó
all greinilegur. Pessir stóru skaflar fara ekki á
þessu hausti og eiga því sennilega eftir að renna
saman við jökulísinn sem skríður.
Um Gljúfurárjökul skrifar Mr. G.J. Caseldine
o.fl. í Jökul 1981 (31 ár) og 1983 (33 ár).
HÁLSJÖKULL
í mælingaskýrslunni sýnir Þórir Haraldsson
teikningu af jökulmerkinu „sem er næst jökli“ og
tekur síðan fram: Það er reyndar 270 m inni á
hjarnbreiðunni. Erfitt er að átta sig á fjarlægðinni
að jaðri jökulsins sem er mjög „vogskorinn",
slitinn sundur af stórgrýti og urðarrönum. Svolitl-
ar urðir gægjast upp 150 m norðan við merkið,
síðan hverfur allt í hjarnbreiðuna aftur. Samfelld-
ari urðir koma loks upp úr fönninni (snjó síðasta
vetrar) 270 m norður af merkinu. Einstakar snjó-
breiður ganga þó lengra niður með ánni eða allt
að 1130 m frá jökuljaðrinum 1981.
Þórir telur eðlilegra að talað sé um að jökuljað-
ar hafi „færst fram“ heldur en að segja að hann
hafi „skriðið fram“.
LANGJÖKULL
Jökultungur Hagafellsjökuls liggja breyt-
ingarlausar eða a.m.k. hreyfingarlitlar eftir fram-
skriðið á árunum 1980 og 1981. Snjór síðasta
vetrar hefur sest að jöðrum þeirra, fyllt í gjár og
sprungur jökulsins og jafnað hann. Um Jökul-
krók í Pjófadölum tekur Theodór fram: Jökul-
jaðarinn er auðveldur uppgöngu. Drjúgar fannir
eru við jökuljaðar, þannig hefur jaðarinn færst
fram.
HOFSJÖKULL
Síðla vetrar og um vorið 1983 lét Landsvirkjun
mæla þykkt Hofsjökuls.
Um Lambahraunsjökul segir Bragi Skúlason:
Hjarn og nýís frá síðasta vetri liggur yfir jökul-
jaðri. Engin hreyfing er merkjanleg á sjálfum
jökulísnum, þess vegna er talið rétt að skrá jökul-
jaðar óbreyttan á þessu hausti.
Stefán Bjarnason tekur fram: Jökuljaðar
Nauthagajökuls er brattur og í senn sléttur og
ósprunginn. Svipaðan vitnisburð fær vesturjaðar
Múlajökuls. Suðurjaðarinn er áþekkur að öðru
leyti en því, að hann getur ekki talist brattur.
SÓLHEIMAJÖKULL
Valur Jóhannesson tekur fram: Áin kemur
undan vesturrönd jökulsins. Jaðarinn er brattur,
en ekki mjög sprunginn. Jökullinn hefur hækkað
mikið, er tignarlegur og genginn fram á Jökul-
haus.
TUNGNAÁRJÖKULL
Tungnaárjökull hjá Jökulheimum hljóp fram
1945 eða fyrir 38 árum og hefur legið síðan kyrr-
stæður að mestu að því er virðist, sjá nánar:
Sigm. Freyst.: Tungnaárjökull í Jökli 18. ár.
Nú eru liðin 28 ár síðan jökulmerki var sett upp
við Tungnaárjökul. Á þessu tímabili hefur jökul-
jaðar hopað um 2,3 km.
Gunnar Guðmundsson tekur fram: En sem fyrr
ber jökullinn merki hopjökuls. Nú var hægt að
ganga á auðu í nýja fellið, sem kom upp úr jökli
fyrir ári síðan skammt sunnan mælilínu. Nú virð-
ist byrjað að brjóta á nýjum haus ofar í jöklinum í
sömu stefnu.
SÍÐUJÖKULL
Síðujökull hljóp 0,5 km 1963/64 og hefur hop-
að síðan.
Björn Indriðason tekur fram: Jökullinn er
greinilegur hopjökull. Hann er sléttur og halla-
lítill. Skammt austan eystri mælilínu (M-177)
kemur austasta kvísl Brunnár undan jökli. Nú um
árabil mun kvíslin hafa fallið til Djúpár. Ef jök-
uliinn skriði fram á nýjan leik um 150 m tæki
kvíslin aftur að falla til Djúpár.
KVÍÁRJÖKULL
Flosi Björnsson tekur fram: Jökullinn er til
muna sléttari en árið áður.
HRÚTÁRJÖKULL
Flosi tekur fram: Þegar uppeftir kemur er hann
allur mjög sprunginn og fer hækkandi að því er
JÖKULL 34. ÁR 177