Jökull


Jökull - 01.12.1985, Page 85

Jökull - 01.12.1985, Page 85
Um endasleppu hraunin undir Eyjafjöllum og jökla síðasta jökulskeiðs HAUKURJÓHANNESSON Náttúrufrœðistofnun Islands INNGANGUR Árið 1958 birti Guðmundur Kjartansson grein í Náttúrufræðingnum um endaslepp hraun undir Eyja- fjöllum. Hraunin nefndi hann Hamragarðahraun og Kambagilshraun (2. mynd). Guðmundur áleit, að Kambagilshraun hefði runnið út á jökul á Búðastigi og jökullinn flutt hluta þess með sér og því virðist það endasleppt. Guðmundur taldi að Hamragarðahraun hefði annað hvort runnið út á sama jökul eða fram af sjávarhömrum. Kambagilshraunið er miklu lengra en Guðmundur hélt og er kafið í jökulaur neðst. Frekari athuganir hafa því vakið spurningar um útbreiðslu jökla á svæðinu áður og eftir að hraunin runnu. ELDFJALLIÐ EYJAFJÖLL Eyjafjallajökull rís upp í 1666 m hæð, nær beint frá sjó. Hann er hrygglaga séður frá suðri og norðri en keilulaga séður úr vestri. Eldfjallið er um 30 km langt frá austri til vesturs, en breiðast um 15 km á móts við toppgíginn. Berglög sem teljast til Eyjafjalla eins og eldstöðin verður nefnd hér eftir, eru að rúmmáli nálægt 260 km3. Eldgos verða á um 5 km breiðri rein, sem liggur frá vestri til austurs eftir eldstöðinni endilangri, frá Markar- fljóti austur í Mýrdalsjökul. Svipaðar gosreinar fylgja fleiri eldfjöllum í þeirri þyrpingu eldfjalla, sem ein- kenna syðsta hluta Eystra gosbeltisins (1. mynd) (Sveinn P. Jakobsson 1979). Flestar stefna þær NA-SV, t.d. Hekla og Katla. Eyjafjöll og Tindfjöll stefna þó A- V. Syðsta eldstöðin, Vestmannaeyjar, sker sig nokkuð úr. Meginstefnan virðist vera NA-SV, en í nyrsta hluta hennar virðist upphleðslan hafa átt sér stað á A-V belti. Hún er því tvíátta og má vera að hún sé ekki enn búin að gera upp við sig hvorri stefnunni hún eigi að fylgja. A-V stefnan í Eyja- og Tindfjöllum gæti verið tengd A-V brotabelti því, sem liggur um Suðurland, frá Hengli austur í Heklu. f Eyjafjöllum er stór toppgígur eða lítil askja, sem er 2,5-3 km í þvermál. Hún er nær barmafull af ís og hefur afrennsli til norðurs, í Falljökli. Fegar gýs í háfjallinu, koma hlaup undan Falljökli. Síðast gaus í jöklinum á 1. Mynd. Megineldstöðvar og sprungureinar í sunnan- verðu Eystra-gosbeltinu. Nafngiftir eru þær sömu og Sveinn P. Jakobsson (1979) notar. Fig. 1. Volcanic systems in the Eastern Volcanic Zone. Nomenclature after Sveinn P. Jakobsson (1979). árunum 1821—23. Óljósar heimildir eru í einum annál um gos árið 1612, en sama ár gaus Katla og er líklegt að átt sé við það gos. Eyjafjöll hafa hlaðist upp á síðari helmingi ísaldar. í fjallinu skiptast á hraunlög runnin á hlýskeiðum og móbergs- og kubbabergslög mynduð við gos undir jöklum á jökulskeiðum. Elsta bergið er neðst í fjallinu sunnan megin, á milli Steina og Kaldaklifsár. Þar er að finna öfugt segulmagnað berg, líklega frá síðasta skeiði Matuyama segultímabils, en því lauk fyrir um 700 þús- und árum. Útbreiðsla þessa bergs er sýnd á nýlega útgefnu jarðfræðikorti af Suðurlandi (Haukur Jóhannes- son o.fl. 1982). í fjallinu hafa fundist merki um 9 jökulskeið og 9 hlýskeið. Á núverandi segulskeiði (Brunhes), sem spannar síðustu 700 þús. árin, hafa þar gengið yfir 8 jökulskeið. Jökulhetta hefir líklega haldist á hátindi fjallsins, eftir að það náði 1200—1300 m hæð. Stutt JÖKULL35. ÁR 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.