Jökull


Jökull - 01.12.1985, Síða 95

Jökull - 01.12.1985, Síða 95
ið eru geislakolsgreiningar á fornskeljum. Þær gefa vís- bendingu um aldur jökulgarðanna. Hér verða teknar saman aldursgreiningar fornskelja af Suðurlandi og úr Borgarfirði. Skeljar frá þremur stöðum af Suðurlandi hafa verið aldursgreindar. Hæstan aldur gefa skeljar úr leirbakka austan Brúarár, skammt ofan Spóastaða. Aldurinn mældist 9930±190 ár (Þorleifur Einarsson 1964). Skelj- arnar eru í um 55 m hæð yfir núverandi sjávarmáli og í bæli jökulsins, sem ýtt hefir upp Y-garðinum. Næst hæstan aldur gefa skeljar úr Hellisholtalæk í Hrunamannahreppi. Þær voru teknar úr leirbakka í um 75 m hæð yfir sjó og voru gerðar tvær aldursgreiningar á sama sýninu: 9580±140 og 9800±150 ár, sem gefa meðalaldur um 9690 ár (Þorleifur Einarsson 1964). í skýrslu um aldursgreiningarnar (Olsson og Piyanuj 1965) er þess getið, að hærri aldurinn sé úr innri hluta skeljar en lægri aldurinn úr ytra byrði hennar. Aldurs- greiningar úr miðri skel þykja áreiðanlegri og hærri aldurinn því nær lagi enda svipaður og aldur skeljanna við Brúará. Þessar skeljar eru á milli Y- og M-garðanna og því a.m.k. yngri en Y-garðurinn. Yngstar eru skeljar úr eystri bakka Hvítár vestur af Kópsvatni gegnt Bræðratungu. Þær gefa aldurinn 7970±180 ár (Nydal o.fl. 1964). Aldurinn er ótrúlega lágur og kemur vart til greina, að hann sé réttur, því að land var með vissu risið úr sæ fyrir um 9000 árum þegar Þjórsárhraunið rann í sjó fram milli Ölfusár og Þjórsár (Elsa Vilmundardóttir 1977). Aldursgreiningar fornskelja úr Borgarfirði gefa allt aðra niðurstöðu. Ólafur Ingólfsson (1984) hefir tekið saman rannsóknarsögu síðjökultímans í syðri hluta Borgarfjarðar. Þar kemur fram m.a., að allar aldurs- greiningar á skeljum liggja á bilinu 12100—12800 ár. Þetta er mun hærri aldur en á sunnlensku skeljunum. Allar skeljarnar, sem aldursgreindar hafa verið, eru í 5—30 m hæð yfir sjó utan skelja úr Stóra-Sandhóli í mynni Skorradals. Ashwell (1967, 1975) telur Stóra-Sandhól vera merki um mjög háa sjávarstöðu, a.m.k. 135 m yfir núverandi sjávarmáli og setið með skeljunum myndað við þær aðstæður. Þorleifur Einarsson (1968) telur aftur á móti, að jökull hafi ýtt efninu í Stóra-Sandhól með skeljunum upp úr botni Skorradals. Halldór Torfason (1974) at- hugaði Stóra-Sandhól og komst að svipaðri niðurstöðu og Þorleifur. ALDURJÖKULGARÐANNA OG HRAUNANNA Skeljarnar við Brúará og í Hellisholtalæk eru að baki Y-garðsins og því er hann eldri en 10.000 ára. Þær eru aftur á móti fyrir utan M-garðana. Sjór hefir því verið kominn inn fyrir Y-garðinn fyrir um 10.000 árum, eða um það leyti, sem Búðajökull Þorleifs Einarssonar (1968) á að hafa náð hvað mestri útbreiðslu. Upp úr því á hann að hafa hörfað hratt frá garðinum. Af því má draga þá ályktun, að Y-garðurinn sé ekki frá Búðastigi eins og Guömundur Kjartansson (1958b, 1970) og Þor- leifur Einarsson (1968) töldu. Af gögnum Guðmundar Kjartanssonar (1943, 1958b, 1970) má einnig sjá, að sjór hafi um svipað leyti verið kominn upp að og sumstaðar a.m.k. inn fyrir M-garð- ana. Þeir gætu hugsanlega hafa myndast við framrás jökla á Búðastigi. Nýleg aldursgreining á gróðurleifum frá Torfajökuls- svæðinu flækir málið enn. Ingibjörg Kaldal og Elsa G. Vilmundardóttir (1983) hafa kannað þykkar lónfyllur þar. Neðarlega í einni lónfyllunni eru gróðurleifar, sem þær hafa látið aldursgreina. Þær reyndust vera 10.000 + 480 eða -440 ára. Þetta eru elstu jurtaleifar frá nútíma, sem fundist hafa á íslandi. Við þetta er að bæta, að í lónfyllunni, neðan jurtaleifanna eru setlög sem sest hafa til í sama lóni en þykkt þeirra er óþekkt. Svæðið hefir því líklega verið orðið jökulvana nokkru fyrr en gróður- leifarnar mynduðust. Þessi niðurstaða stangast á við aldursgreiningar á fornskeljum á Suðurlandi ef þær eiga að vera jafnaldra M-görðunum. Tvær leiðir eru út úr þessum ógöngum. Annars vegar, að aldursgreiningar á skeljunum séu rangar, sem er vafasamt, eða að skeljarnar séu allar yngri en M-garðurinn. Hins vegar, að aldursgreiningin frá Torfajökulssvæðinu sé röng. Y-garðurinn á Suðurlandi mun að líkindum vera sá sami og nefndur er Álftanesgarður á Suðvesturlandi. Kristján Sœmundsson (1965) telur, að jökulgarðarnir við Þingvallavatn séu myndaðir á Álftanesstigi, en ekki Búðastigi. Hann dró þá ályktun af legu Búðaraðarinnar, eins og Þorleifur Einarsson (1964) og Guðmundur Kjart- ansson (1964) töldu hana vera. Jökullinn, sem ruddi upp Stóra-Sandhól í mynni Skorradals, hefir ekki náð nema út í mynni dalsins. Hann hefir gengið fram fyrir um 12.000 árum eða eilítið síðar. Skeljarnar í Melabökkum og undir Hafnarfjalli eru jafnaldra eða eldri en framrás jökulsins. Framrás, sem nefnd er Eldra Dryas mun hafa átt sér stað fyrir um 12.000 árum og hefir Þorleifur Einarsson (1968) heimfært hana upp á framrásina, sem ruddi upp Álfta- nesgarðinum. Jöklar hafa gengið fram í kjafta Borgar- fjarðardala fyrir um 12.000 árum, en ekki náð suður með Hafnarfjalli hvað þá suður í Melasveit. Daljöklar hafa þó efalítið teygt sig fram úr flestum smádölum á Skarðsheiðarsvæðinu og einnig út Hvalfjörð. Benda má á því til stuðnings, að Y- og M-garðarnir á Suðurlandi hljóti að vera frá Búðastigi, að engar skeljar JÖKULL 35. ÁR 93
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.