Jökull


Jökull - 01.12.1985, Page 132

Jökull - 01.12.1985, Page 132
Á Steinþórsfelli. Þverártindsegg í baksýn. Ljósm. Valur Jóhannesson. Hópurinn við Esjufjallaskála. Ljósm. Valur Jóhann- esson. uppgöngustað. Var veður þá öllu skárra, en fremur rigningarlegt. Þarna fann Pétur gamlan vin, vísilinn Nagg, sem nýlega var framgenginn eftir nokkra daga dvöl á jöklinum. Klukkan 9 næsta morgun hófst svo gangan fyrir al- vöru í ágætis veðri þó að enn væri skýjað og var hópur- inn kominn á jökul um klukkustundu síðar. Brátt fór að sjást til sólar og var eftir þetta stanslaus sól og blíða alla göngudagana. í fyrstu var fylgt Mávabyggðaröndinni, en síðan hallað sér til austurs að Esjufjallarönd og með henni að Skálabjörgum. Jökullinn var nokkuð opinn eftir óvenju snjóléttan vetur og yfir allmargar sprungur að fara. Leikni fararstjórans og kunnátta í 'meðferð ísaxar kom nú að góðu haldi. Annars var færi gott og jökulþýfi ekki til trafala. Komið var að Tjaldmýri um fimmleytið og nágrennið skoðað um kvöldið. Útsýni frá Esjufjallaskála er þess virði að segja frá. Öræfajökull í suðvestri og utan í honum Þuríðartindur, Mikill, Heljargnípa og Saumhögg. Þá Vesturbjörgin með Snók og Snæhettu. I næsta nágrenni Steinþórsfell eða Lyngbrekkutindur og Skálahnúkar, en í austri Breiðabunga með sérkennilegri gulri slikju, þá Þverár- tindsegg og Veðrárdalsfjöll. Til suðurs ganga rendurnar eins og gríðarbreiðar hraðbrautir allt suður á jökul- sporð. „Andskoti er þetta flott“ sagði einhver. Þau orð voru síðan endurtekin æði oft meðan á ferðinni stóð. Næsta dag var gengið á Steinþórsfellið í stafalogni og sól. Allir komust upp. Á tindinum var lengi dvalist enda margt að sjá, og hrikalegur er kamburinn norðan við hann. Um kvöldið var dundað við að draga saman brakið úr gamla skálanum sem lá víða um vang eftir að hann fauk af grunni sínum, brenna það og urða. Síðast var eldur borinn að gólfinu og logaði vel í því. En viti menn! Þegar svotil allt var brunnið sem brunnið gat kom í ljós gamla gestabókin. Óskemmd en rennblaut og vel læsileg. Meginhluti nætur fór í að leysa sundur blöðin og hengja upp til þerris. Fararstjóri tók að sér að koma bókinni í vörslu félagsins. Næsta dag var gengið í Fossadal og skoðuð jökullón og fossar, sem nóg er þar af. Leiðangursmenn mæla ekki með því að stytta sér leið með klifri á þessum slóðum, líklegra er að menn stytti sér aldur ef það er reynt, því bergið er bæði laust og blautt, hálfgerður grautur. Þá var gengið í Esjudal, en ekki tími til að ganga á Esju sjálfa. Bíður það næstu ferðar. Um kvöld- ið var lagað til kringum skálann og grjótbekkur hlaðinn upp umhverfis hann. Um miðnættið læddist þoka upp jökulinn og færði hann í kaf allt uppundir skála, og kitlaði iljar leiðangursmanna, þar sem þeir sátu og hvíldust á hlaðinu. Á heimleið niður jökulinn daginn eftir hittum við fyrir snjóbíl. Þar var kominn Björn Ólafsson á Höfn, sem þá fóstraði í ellinni margan Vísilinn, sem áður gerði garðinn frægan. Létti hann bakpokum af göngu- mönnum og flutti að jökuljaðri. Við Breiðá skildu leiðir, og urðu þau Valur, Pétur, Kristjana og Árni eftir í sambýli við skúminn. Heim var haldið með rútubíl næsta dag. Vel heppnuð gönguferð og minnisstæð öllum sem þátt tóku. 130 JÖKULL 35. ÁR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.