Jón á Bægisá - 01.11.1994, Blaðsíða 8
Hann þýddi einnig mikið af sálmum áður en hann íluttist að Bægisá, m.a.
fyrir Magnús Stephensen á Leirá. Þegar Magnús var að safna sálmum í nýja
Messusöngs og sálmabók, sem kom út árið 1801, slettist heldur betur upp á
vinskapinn. Ástæðan var sú að Magnús breytti mörgum sálmum séra Jóns að
honum forspurðum. Þessu háttalagi svaraði séra Jón með kvæðinu Rustasneið
sem hefst þannig: Farvel Leirgerður, drambsöm drilla / drottnunargjörn og
öfundsjúk / þú skalt ei fleirufrá mér spilla... Spunnust af þessu hatrammar
deilur en síðar tókust þó fullar sættir og varð samband þeirra Magnúsar nánara
en áður hafði verið.
Jón er ekki fyrr kominn norður en hann sest niður og byrjar að þýða fyrsta
stórverkið. Á fyrstu árunum á Bægisá, 1789-96, þýðir liann verkið Essay on
Man eRir enska skáldið Alexander Pope (1688-1744). Verkið var prentað í
Leirárgörðum 1798 og gefið út undir heitinu Tilraun um manninn ífjórum
bréfum tilJóns lávarðar Bolingbrocks frá Alexander Pópa og tileinkað Stefáni
Þórarinssyni amtmanni sem talinn er hafa kostað útgáfuna. Verkið þýddi séra
Jón úr dönsku.
Tilraun um manninn þýddi séra Jón undir fornyrðislagi. Vafalaust hefur
þýðing Benedikts Gröndals eldra á ljóði Popes, The Temple ofFame (Musteri
mannorðsins, 1790) hafl þar sín áhrif en hann þýddi úr ensku undir
fornyrðislagi. Jón velur sama bragarhátt þótt frumtextinn sé í flmmliðahætti
(pentameter), hann snýr tvíhendunni í ferhendu og rímar hendingarnar á víxl.
En samtímis þýðir hann Paradísarmissi eftir enska skáldið John Milton.
Vinur hans Halldór Hermannsson á Hólum sendi honum danska þýðingu af
verkinu árið 1791 og þá þegar hefst hann handa, verkinu lýkur hann svo árið
1805. Lærdómslistafélagið birti þýðingu hans af fyrstu bók verksins árið 1793.
Vakti útkoman mikla og verðskuldaða athygli og sömuleiðis önnur bókin en
eftir það varð hlé á útgáfunni. Verkið kom svo út í Kaupmannahöfn í heild
sinni árið 1828 eða áratug eftir andlát skáldsins. íslenska útgáfan er fjögur
hundruð þéttprentaðar síður eða um þrjátíu og sex þúsund ljóðlínur.
Paradísarmissir fjallar um Adam og Evu, syndafallið og brottreksturinn úr
Edenslundi. En margt fleira kemur við sögu, m.a. goðsögnin um fall englanna
og framtíðarsýn þar sem hjálpræðisverkinu er lýst.
Séra Jón Þorláksson studdist ekki við enska frumtextann heldur við danska
og síðar þýska þýðingu. Jón forseti, sem ritað hefur æviágrip séra Jóns, segir
að hann nái sér betur á strik þegar hann þýðir úr þýsku en dönsku, ensku
hafði hann ekki á valdi sínu. Undir það sjónarmið hafa margir tekið. í
þýðingunni notar hann ekki sama bragarhátt og Milton, það er að segja
stakhendu (blank verse), heldur fornyrðislag þar sem ljóðlínurnar eru mun
styttri. Milton taldi rím aðeins hæfa minniháttar kveðskap og hafnaði því af
þeim sökum.
Þýðingin á Paradísarmissi er talin merkasta verk séra Jóns á Bægisá. Hins
vegar er það áreiðanlega rétt athugað hjá séra Sigurði Stefánssyni í ævisögu
skáldsins að þýðingin hafi aldrei náð lýðhylli hér á landi sökum þess hve verkið
er umfangsmikið og tormelt á köflum.
Þýðing séra Jóns hefur haft greinileg áhrif á Jónas Hallgrímsson, ekki hvað
síst bragarhátturinn sem Jónas beitir af mikilli snilld eins og Jón. Séra
d Jföap/iá - TÍMARIT ÞÝÐENDA 1994
8