Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 5 Nýlega lauk ráðstefnunni Hjúkrun 2011 en þar voru kynnt mörg rannsóknar­ og gæðaverkefni. Öll sýna þau kraft og þrautseigju hjúkrunarfræðinga við að móta stöðugt starf sitt. Á göngudeild lungnasjúklinga á Landspítala hafa hjúkrunarfræðingar unnið mjög merkilegt starf sem verðskuldar athygli. Tekist hefur að fækka talsvert bráðakomum vegna öndunarbilunar og bæta með sama móti líf lungnasjúklinga. Í blaðinu er ýtarleg grein þar sem lýst er starfsaðferðum hjúkrunarfræðinga á göngudeildinni en þessi aðferðafræði gæti örugglega nýst á öðrum göngudeildum. Á sviði stjórnunar eru einnig merkilegir hlutir að gerast. Í viðtali er sagt frá því sem kallað er þjónandi forysta en það er stjórnunaraðferð sem einkennist af auðmýkt og hógværð. Það eru orð sem við tengjum ekki vanalega við stjórnun en aðferðin hefur reynst árangursrík og samræmist vel nútímastarfsaðferðum. Hjúkrunarfræðingar slá ekki slöku við að skrifa fræðigreinar. Nýlega birtust í Tímariti hjúkrunarfræðinga ellefu fræðigreinar í sambandi við Hjúkrun 2011 og hér birtast tvær í viðbót. Þær fjalla annars vegar um vinnuumhverfi sjúkraliða, helstu samvinnustéttar hjúkrunarfræðinga í umönnun, og hins vegar um áhrif svæðameðferðar á þunglyndi og kvíða. Í desember mun birtast rannsóknargrein um slökunarmeðferð. Hjúkrunarfræðingar hafa að því er virðist tekið upp á sína arma ýmiss konar viðbótarmeðferð og vilja skoða slíka meðferð á gagnreyndan hátt. Þegar þetta tölublað kemur út hefur undirritaður ritstýrt fjórum árgöngum Tímarits hjúkrunarfræðinga. Ýmislegt hefur breyst í blaðinu á þessum fjórum árum en enn má gera betur. Til stendur að kanna viðhorf félagsmanna til þjónustu félagsins og meðal annars til Tímarits hjúkrunarfræðinga. Breytinga er því að vænta á næsta ári en eðli þeirra fer eftir hvað félagsmenn segja í könnuninni. Tímarit hjúkrunarfræðinga Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík Sími 540 6405 Bréfsími 540 6401 Netfang christer@hjukrun.is Vefsíða www.hjukrun.is Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Sími skrifstofu 540 6400 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Christer Magnusson Ritstjórnarfulltrúi: Sunna K. Símonardóttir Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu christer@hjukrun.is. Leiðbeiningar um ritun fræðslu­ og fræðigreina er að finna á vefsíðu tímaritsins. Ritnefnd: Árún K. Sigurðardóttir Brynja Örlygsdóttir Dóróthea Bergs Ingibjörg Jóna Friðbertsdóttir Kolbrún Albertsdóttir Sigríður Skúladóttir Þorsteinn Jónsson Ráðgjafi vegna handrits í ritrýni: Herdís Sveinsdóttir Fréttaefni: Aðalbjörg Finnbogadóttir, Christer Magnusson Ljósmyndir: Anders Olsson, Bjarni Eiríksson, Christer Magnusson o.fl. Próförk og yfirlestur: Ragnar Hauksson Auglýsingar: Þórdís Gunnarsdóttir, sími 866 3855 Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT Prentvinnsla: Litróf Upplag 4000 eintök Pökkun og dreifing: Póstdreifing ENN KOMIÐ HAUST Nú er sumarið búið og haustið tekið við með skinum og skúrum. Haustið er líka tíminn til að taka upp aftur vinnu að ýmsum verkefnum sem miða að því að bæta þjónustu við sjúklinga. Christer Magnusson. Ritstjóraspjall www.lysi.is Omega-3 F I S K I O L Í A Gjöf náttúrunnar til þín Omega-3 fiskiolía inniheldur hátt hlutfall Omega-3 fitusýra, einkum EPA og DHA sem eru okkur lífsnauðsynlegar. Fjöldi rannsókna víða um heim hafa sýnt fram á jákvæða eiginleika þeirra fyrir heilsuna. Má taka með lýsi. Omega-3 fiskiolía byggir upp ónæmiskerfið á marga vegu og hefur jákvæð áhrif á: sjón hjarta og æðakerfi blóðþrýsting kólesteról í blóði liði rakastig húðarinnar minni andlega líðan námsárangur þroska heila og miðtaugakerfis á meðgöngu Lysi prentauglysing a4 mm.ai 11/16/07 9:49:01 AM

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.