Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 43
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 39
Hún hafði náð skjótum frama og var
orðin yfirvarðstjóri og yfirmaður lögreglu
skólans. Við hana var ekki tekið viðtal
því að hún átti ekki afturkvæmt. Kathy
var kona sem vildi geta gert allt það sem
karlmenn gera. Þegar hún útskrifaðist úr
hjúkrunarskólanum neitaði hún að bera
kappa þar sem karlarnir fengu ekki slíkan
búnað. Hún fékk eiginmanninn til að
kenna sér að nota keðjusög. Þegar hún
heyrði af árásinni á turnana tvo fór hún
strax af skrifstofu sinni og beint inn í turn
númer eitt. Þegar hún var komin vel inn
sá hún að snúningshurð hafði stansað
þannig að dyrnar voru fullar af fólki.
Hún tók þá upp skammbyssu sína og
skaut í rúðurnar þannig að fólkið komst
út. Sjónarvottar sögðust hafa séð hana
á 26. hæð en hún hefur svo farið niður
aftur. Kathy fannst ekki fyrr en í febrúar
árið eftir, í anddyri turns númer eitt
ásamt fimm öðrum björgunarmönnum
og konu í hjólastól. Talið er að þau hafi
verið að reyna að koma konunni út þegar
sprenging varð.
Áhugavert hefði verið að sjá í bókinni
sögu Mariu Reginu Shane en hún er
hjúkrunarfræðingur og vinnur enn þá
við það í World Trade Center. Hún
var í vinnunni 11. september 2001
og einnig 26. febrúar 1993 en þá var
líka ráðist á bygginguna. En það er
líklega ósanngjarnt að krefjast þess að
bókin fjalli um hana. Hún átti alla tíð að
fjalla um lögreglu, sjúkraflutninga og
slökkviliðskonur þó að nokkrar aðrar hafi
fengið að fljóta með. Það væri hins vegar
óskandi að einhvern tíma yrði skrifuð
bók um þátt hjúkrunarfræðinga í þessum
björgunarstörfum.
Fulltrúi nema
og nýbrautskráðra
hjúkrunar fræðinga
Í lok ágúst var ráðin til félagsins
Eyrún Ösp Guðmundsdóttir en
hún mun í 20% starfshlutfalli
sinna málefnum hjúkrunarnema og
nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga.
Starfi hennar ber heitið „fulltrúi
nema og nýbrautskráðra hjúkrunar-
fræðinga“.
Eyrún Ösp lauk sjálf námi í júní
sl. og hefur því ferska reynslu af
því að vera hjúkrunarnemi. Hún
starfaði áður sem sjúkraliði og náði
að vinna á skurðstofunni í Fossvogi
og á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi sem hjúkrunarnemi. Hún
eignaðist svo barn á nematímanum þannig að starfsreynslan
varð stutt. Nú starfar hún sem skólahjúkrunarfræðingur.
Hún sótti um starfið sem fulltrúi nema þar sem henni fannst
það mjög spennandi tækifæri að kynnast nýju fólki og hafa
áhrif innan félagsins. „Mig langar að virkja unga fólkið,“ segir
hún. „Mitt hlutverk er að kynna félagið út á við, fá nema
og nýútskrifaða að verða virkir í félaginu, koma á fundi og
hafa áhrif. Það þarf að breikka rödd félagsins, oft er það
bara sömu raddirnar sem heyrast á fundum. Mitt markmið
er að fá ungt fólk að taka þátt. Einnig vil ég auka réttindi
hjúkrunarnema. Þeir hafa oft unnið mikið við útskrift en hafa
ekki kynnt sér réttindi sín.“
Hlutverk Eyrún Aspar er einnig að vera alþjóðatengiliður og
taka þátt í samstarfi hjúkrunarnemafélaga á Norðurlöndum.
Hún fór á sinn fyrsta fund um miðjan september sl. en þá var
rætt um samhæfingu hjúkrunarnámsins á Norðurlöndum og
einnig um Bolognasamkomulagið svokallaða.
Eyrún Ösp verður að jafnaði við á föstudögum en hægt er
einnig að ná sambandi við hana með tölvupósti. Netfang
hennar er eyrun@hjukrun.is.
Eyrún Ösp Guðmundsdóttir.
Fr
ét
ta
pu
nk
tu
r