Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 36
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201132
Inger gat ekki sannað hvenær og hvar
hún smitaðist en hefur samt fengið
lifrarbólguna viðurkennda sem vinnu
tengd veikindi. „Clifrarbólga er ný veira
sem kom ekki fram fyrr en á tíunda
áratugnum. Vitað er að ég smitaðist fyrir
1997 og ég hef alltaf unnið á skurðstofu
þannig að það tókst að sannfæra yfirvöld
um að það sé langlíklegast að ég hafi
smitast á skurðstofu. Ég hef lifað mjög
heilsusamlegu lifi og hef aldrei fengið
blóðgjöf eða þess háttar,“ segir Inger.
Þar sem hún getur ekki tekið vaktir hefur
hún lækkað í launum. Því fær hún nú
uppbót frá sjúkratryggingunum. Fyrir utan
áfallið og veikindin, sem fylgja lyfja með
ferðinni, getur það verið mikil vinna að
standa í því að sækja sinn rétt. Inger
fékk ókeypis lögfræði aðstoð hjá norska
hjúkrunar félaginu en hún telur lögfræðing
félagsins eiga stóran þátt í að viðurkennt
var að hún hefði smitast í vinnu. „Ef
lögfræðingsins hefði ekki notið við veit ég
ekki hvort ég hefði ráðið við þetta sjálf. Ég
hef stóra möppu alveg fulla af pappírum
um þetta – vottorðum, bréfaskriftum
hingað og þangað,“ segir Inger.
Að sögn Inger telur læknir hennar að
hún geti lifað í mörg ár án þess að finna
fyrir veikindum. Hún er einkennalaus og
blóðprufur og ómun sýna að lifrin er í lagi.
En það getur líka breyst hratt. Nú er Inger
66 ára og stutt er í eftirlaunin. „Nú er bara
að vona það besta. En ég er gangandi
smitberi og ég þarf að hugsa um það, til
dæmis ef ég sker mig,“ segir hún.
Inger hvetur að lokum alla til þess að
hugsa vel um að vernda sig, nota tvöfalda
hanska, fara varlega með öll oddhvöss
áhöld og láta athuga sig strax ef svo illa
vill til að menn stinga sig.
Sá sem stingur sig á nál eða öðru oddhvössu áhaldi getur lítið gert annað
en að þvo sér vel og vona að sjúklingurinn hafi ekki verið smitaður. Ekki
er til bóluefni og lyfjameðferð hrífur yfirleitt ekki vel. Forvarnir eru því
úrslitaatriði.
Fyrir skurðstofuhjúkrunarfræðinga eins og aðra sem komast í snertingu við
blóð eru góðar vinnuaðferðir mikilvægar. Nota þarf réttu hanskana og fara
varlega með öll áhöld.
Bera þarf kennsl á sjúklinga sem geta verið smitaðir og íhuga að
rannsaka blóð þeirra fyrir aðgerð. Rætt hefur verið um að skima eftir
C-lifrarbólguveirunni reglulega hjá starfsfólki á skurðstofum.
Forvarnir við Clifrarbólgu