Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 60

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 60
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201156 ÚTDRÁTTUR Rannsókn þessi var gerð til að kanna áhrif svæðameðferðar á þunglyndi og kvíða. Þunglyndi er algengt og veldur meiri röskun á högum einstaklingsins en flestir aðrir sjúkdómar. Rannsóknir hafa rennt stoðum undir að svæðameðferð dragi úr kvíða en áhrif hennar á þunglyndi eru óþekkt. Rannsóknin var framskyggn, slembuð meðferðarprófun með víxlsniði þar sem 19 þátttakendum, sem greindir höfðu verið þunglyndir af lækni, var skipt með tilviljunaraðferð í tvo hópa. Þátttaka í rannsókninni tók 16 vikur. Rannsóknartíminn skiptist í 8 vikna biðtíma og 8 vikna meðferðartíma en röðun í hópa réð því hvort byrjað var á meðferð eða bið. Hver þátttakandi fékk svæðameðferð 10 sinnum og voru áhrif meðferðar mæld með þunglyndiskvarða Beck og kvíðakvarða Spielberger. Hver þátttakandi svaraði spurningalistunum þrisvar, við upphaf rannsóknartímabils og síðan eftir 8 og 16 vikur. Rannsóknartímabilið stóð frá janúar til ágúst 2008. Breyting á stigafjölda á biðtíma var lítil en það bendir til þess að einungis svæðameðferðin hafi breytt stigafjölda eftir meðferðartíma. Ekki reyndist marktækur munur milli hópa hvað varðar stigafjölda þunglyndis­ eða kvíðakvarða eftir 8 vikur þegar einungis annar hópurinn hafði fengið meðferð. Niðurstöður úr pöruðu Wilcoxon t­prófi sýndu að svæðameðferð dró marktækt úr þunglyndi miðað við svörun á þunglyndiskvarða Beck hjá báðum hópum eftir meðferð (p<0,001). Meðferðin dró einnig marktækt úr ástandskvíða (p<0,001) en lyndiskvíði jókst (p<0,014). Rannsóknarniðurstöður gefa vísbendingar um að beita megi svæðameðferð sem sjálfstæðri meðferð eða viðbótarmeðferð við þunglyndi og kvíða. Niðurstöður gefa jafnframt tilefni til frekari rannsókna um hvernig meðferðin þjóni best skjólstæðingum innan sem utan heilbrigðiskerfisins. Meginhugtök: Svæðameðferð, óhefðbundin meðferð, þunglyndi, kvíði, framskyggn meðferðarrannsókn. INNGANGUR Kostnaður vegna geðsjúkdóma eins og þunglyndis eru bæði þjóðfélögum og einstaklingum dýr og því hefur verið spáð að svo verði áfram, jafnt í þróuðum ríkjum sem og í þróunarlöndum (Landlæknisembættið, 2007; Alþjóðaheilbrigðismálastofnun­ in, 2007). Þunglyndi birtist ekki einungis sem geðsjúkdómur, þunglyndi kemur fram á mismunandi hátt í birtingarmynd annarra sjúkdóma. Það á því þátt í sjúkdómsbyrði og örorku hjá fólki með marga og langvinna sjúkdóma eins og hjartakveisu, sykursýki, astma og gigt (Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, 2007). Þunglyndi er nátengt kvíða og talið er að u.þ.b. 25­30% þeirra sem hafa almenna kvíðaröskun séu einnig þunglyndir og 20­30% þeirra sem greindir eru þunglyndir uppfylla einnig greiningarviðmið fyrir almenna kvíðaröskun (Magnús Baldursson, 2007). Hólmfríður Margrét Bjarnadóttir, Sjúkrahúsinu á Akureyri Árún K. Sigurðardóttir, heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri ÁHRIF SVÆÐAMEÐFERÐAR Á ÞUNGLYNDI OG KVÍÐA: SLEMBUÐ, FRAMSKYGGN MEÐFERÐARRANNSÓKN ENGLISH SUMMARY Bjarnadottir, H.M., and Sigurdardottir, A.K. The Icelandic Journal of Nursing (2011), 87 (5), 56­63 THE IMPACT OF REFLEXOLOGY ON DEPRESSION AND ANXIETY This research was conducted to study the effect of reflexology on depression and anxiety. Depression is common and compared to other diseases it is highly influential in weakening the health status of patients. According to research reflexology can relieve anxiety but its effects on depression is unknown. In this randomized controlled trial with cross­over experimental design, 19 participants with diagnosis of depression were randomly divided into two groups. The intervention time for each participant lasted for 16 weeks. The intervention was divided into either 8 weeks therapy time or 8 weeks waiting time, depending on how participants where randomized into groups. Each participant received ten reflexology therapies. The effect of the treatment was measured by two questionnaires, the Beck Depression Inventory and the Spielberger State­ Trait Anxiety Inventory. Each participant answered the instruments three times, in the beginning of the intervention, after 8 weeks and after 16 weeks. The intervention lasted from January until August 2008. There were little changes in scores after the waiting time, which indicates that the therapy itself affected changes in scoring. None significant differences between groups were found in scorings of depression or anxiety after 8 weeks when only one group had received treatment. Paired Wilcoxon test showed that reflexology reduced depression significantly, both immediately following treatment and after 16 weeks measured with the Beck Depression Inventory for both groups, (p<0,001). The therapy also reduced state anxiety significantly, (p<0,001), while trait anxiety increased, (p<0,014). The results indicate that reflexology can be used as an independent and/or complementary therapy relieving depression and anxiety. The results of this research should also motivate further research on how reflexology might benefit clients within and outside the public health care system. Keywords: Reflexology, complementary and alternative therapy, depression, anxiety, randomized controlled trial. Correspondance: hmb@simnet.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.