Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 50
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201146
hvers konar umönnun heilbrigðisteymi vill
veita og hvernig æskilegt væri að haga
samstarfi innan teymisins og við sjúklinga
og notendur þjónustunnar. Annars
staðar gæti hvatinn átt rætur að rekja
til pólitískrar ákvarðanatöku eða stefnu
fyrirtækis eða stofnunar. Hvað sem því
líður þá liggja ávallt þrjár meginreglur til
grundvallar samstarfi innan teymis og við
hagsmunaaðila: samvinna, þátttaka og
sameining. Til dæmis komst ég að því
nýlega, þegar ég var að vinna að verkefni
í samvinnu við þrjú bráðasjúkrahús þar
sem starfa 400 hjúkrunarfræðingar með
sérmenntun, að í upphafi verkefnisins
gætti mikillar tortryggni og hræðslu um að
störfum gæti fækkað. Það bragð að draga
inn utanaðkomandi ráðgjafa væri einmitt
fyrsta skrefið í þá átt. Mér tókst þó að
breyta viðhorfum hjúkrunarfræðinganna
með því að fylgja meginreglunum þremur
og með því að beita aðferðum SE í
samvinnuverkefni um byggingu umgjarðar
fyrir einstaklingsmiðaða, örugga og
árangursríka hjúkrun og umhverfi sem
viðheldur þessum gildum. Eftir þrjá
mánuði höfðu hjúkrunarfræðingarnir lagt
upp í vegferð sem sýndi að þeir voru
á góðri leið með að eflast í starfi og ná
tökum á eigin málum, auk þess sem þeir
sáu fyrir sér hvernig þeir gætu verið virkir
þátttakendur í áætlanagerð stofnananna.
Nám í starfi
Auk áherslu á samvinnu felur SE í sér
hugmyndir um virkt nám sem tekur tillit
til ólíkra námsaðferða og námsvenja
(Dewing, 2008), svo sem ígrundunar,
vinnutengds náms (Manley o.fl., 2009) og
skapandi náms (Titchen og McCormack,
2008). Hið síðastnefnda gerir
einstaklingum kleift að nota skapandi
hugsun við að fjalla um og takast á
við aðsteðjandi heilbrigðisvandamál. Í
vinnutengdu námi verður vinnustaðurinn
helsta uppspretta náms og kerfisbundins
mats, en áherslan á kerfisbundið mat er
einmitt það sem greinir SE frá annars
konar þróunarvinnu sem ekki er hægt
að viðhalda vegna þess að mælanlegra
niðurstaðna hefur ekki verið aflað
(Garbett og McCormack, 2004). Svo
hægt sé að nýta hin margvíslegu tækifæri
til náms og mælinga þarf vinnustaðurinn
að hafa þjálfaða leiðbeinendur sem
hvetja til árangurs, þekkingaröflunar og
framþróunar (Manley og Titchen, 2011).
Mikilvægi þekkingaröflunar og þróunar
tengist verkefnum á vinnustaðnum fremur
en hefðbundnum aðferðum sem miða
nær eingöngu að því að miðla þekkingu
og skilningi til annarra. Í vinnutengdu
námi fær heilbrigðisstarfsfólk og heil
brigðis teymi leiðsögn við að skoða eigin
störf, vinna kerfisbundið að breytingum á
þeim og við að meta áhrif breytinganna
á sjúklingana og aðra. Þessi tegund
náms felur alltaf í sér að unnið sé með
hagsmunaaðilum við lausn á vandamálum
þeirra og áhyggjuefnum.
Enda þótt til séu nýlegri útfærslur á SE, þar
sem áhersla er lögð á að einstaklingurinn
fái tækifæri til að blómstra, hef ég viljandi
notað eldri útgáfu (Garbett og McCormack,
2004) til að draga upp sem einfaldasta
mynd af meginþáttum SE og hvernig þeir
tvinnast saman (sjá mynd nr. 2).
Hin alþjóðlega samstarfsnefnd um starf
endaeflingu (IPDC) hefur gert mikið til að
auka aðferðafræðilegan skilning okkar á
mikilvægustu hugtökum SE með frekari
mótun heildarhugmynda og fræðilegri
umfjöllun um þætti á borð við skilvirkan
stofnanabrag, framgang, mat og sköpun
og einnig niðurstöður og mælanlegan
afrakstur SE. Næsta verkefni er að
breiða aðferðafræðina frekar út meðal
stefnumótenda og stjórnenda í Bretlandi
sem og á alþjóðlegum vettvangi. IPDC
vinnur að því að skilgreina þau tæki sem
SE hefur að bjóða til að ná tilætluðum
árangri og viðhalda honum. Bent hefur
verið á mikilvægi greiningarinnar á
hugtakinu skilvirkur stofnanabragur í
þessu samhengi (Manley o.fl., 2011;
Manley o.fl., í prentun).
Hugtakagreiningin (Manley o.fl., í
prentun) hefur það markmið að skilgreina
birtinga rmynd hins skilvirka stofnana
brags, hvernig hægt er að skapa slíkt
starfsumhverfi og hversu mikilvægt
það gæti orðið. Greiningin tiltekur fimm
eiginleika skilvirks stofnanabrags:
• tíu gildi er varða meginsviðin þrjú
– einstaklingsmiðun, árangursríka
hjúkrun og starfshætti;
• reynsla af gildunum kemur fram í
starfi og þau endurspegla sameiginleg
áform;
• heilbrigðisteymi sýna aðlögunarhæfni
og beita skapandi aðferðum;
Mynd 2. Líkan af starfendaeflingu (Garbett og McCormack, 2004).
U
m
br
ey
tin
g
á s
tofn
anabrag og umönnunarum
hverfi
Gildi og viðhorf
Einstaklingsmiðuð
hjúkrun
Kerfisbundin og
nákvæm
Nám í starfi