Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 38

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 38
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201134 Cecilie Björgvinsdóttir, cissy@hjukrun.is NÝTT Í KJARASAMNINGUM 2011 Á liðnu sumri undirritaði samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga miðlæga kjarasamninga við alla viðsemjendur sína. Hér er sagt frá helstu breytingum frá því sem áður var. Viðsemjendur FÍH eru: fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs (ríkið), Samband íslenskra sveitarfélaga (SNS), Reykjavíkurborg, Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) og Reykjalundur. Auk þess eru gerðir stofnanasamningar við allar stofnanir þar sem hjúkrunarfræðingar starfa. Það verður svo verkefni haustsins að endurnýja alla stofnanasamninga. Breytingar á kjarasamningum FÍH við ríkið, SFH og Reykjalund 1. júlí 2011 var greidd eingreiðsla að upphæð 50.000 kr. miðað við fullt starf til allra þeirra sem voru við störf á tímabilinu mars­apríl 2011. Þeir sem voru í hlutastarfi eða höfðu starfað skemur fengu hlutfallslega greiðslu. Launahækkanir verða með eftirfarandi hætti: 1. júní 2011: 4,25% 1. mars 2012: 3,50% 1. mars 2013: 3,25% Þann 1. mars 2014 verður greidd eingreiðsla að upphæð 38.000 kr. miðað við fullt starf í janúar 2014. Þeir sem eru í hlutastarfi eða hafa starfað hluta úr mánuði fá hlutfallslega greiðslu. Orlofsuppbótin verður sem hér segir: Á árinu 2011 26.900 kr. auk sérstaks álags að upphæð 10.000 kr. Á árinu 2012 27.800 kr. Á árinu 2013 28.700 kr. Persónuuppbót (desemberuppbót) verður sem hér segir: Á árinu 2011 48.800 kr. auk sérstaks álags að upphæð 15.000 kr. Á árinu 2012 50.500 kr. Á árinu 2013 52.100 kr. Frí í stað yfirvinnu: 5 daga hámark afnumið, nú er starfsmanni með samkomulagi við vinnuveitanda heimilt að taka hluta eða alla yfirvinnu út í fríi. Ef yfirvinna er tekin út í fríi þá tekur starfsmaðurinn klukkustund á móti klukkustund og fær yfirvinnuálag greitt næstu mánaðamót á eftir unninni yfirvinnu. Yfirvinnuálag er 39,3% af yfirvinnutaxta starfsmanns. Vaktskrá lögð fram: Frá 16. júní 2011 breyttist grein 2.6.2 um breyttar vaktir og er nú: „Ef vaktskrá er breytt með skemmri fyrirvara en 24 klst., skal viðkomandi starfsmanni greitt aukalega 3 klst. í yfirvinnu. Sé fyrirvarinn 24­168 klst. (ein vika) skal greiða 2 klst. í yfirvinnu. Hér er eingöngu átt við breytingu á skipulagðri vakt en ekki aukavakt.“ Matar­ og kaffitímar vaktavinnumanna: Frá 1. mars 2012 breytist grein 2.6.9 og verður svohljóðandi: „Starfsmenn í vaktavinnu hafa ekki sérstaka matar­ og kaffitíma. Starfsmönnum er þó heimilt að neyta matar og kaffis við vinnu sína á vaktinni ef því verður við komið starfsins vegna. Vegna takmörkunar þeirrar sem að ofan greinir á matar­ og kaffitímum, skal greiða 25 mínútur á yfirvinnukaupi fyrir hverja vakt óháð lengd vaktar.“ Var 15 mínútur áður. Fæðisfé: Frá 1. júní 2011 fá starfsmenn í hálfu stafi eða meira, sem ekki hafa aðgang að matstofu en ættu að hafa það, greidda fæðispeninga 380 kr. fyrir hvern vinnuskyldudag. Auk þess skulu frá 1. mars 2012 þeir starfsmenn, sem eru á vakt þegar matstofa vinnustaðar er ekki opin, fá það bætt með fæðispeningum sem nema 380 kr. fyrir þá vakt. Fatapeningar: Frá 1. júní 2011 geta hjúkrunar fræðingar á heilbrigðis stofnunum, þar sem þess er krafist vegna sérstakra meðferðarúrræða að starfsmaður noti eigin fatnað í stað vinnu slopps eða álíka hlífðarfatnaðar, fengið í stað þess greidda sérstaka fatapeninga að upphæð 3.800 kr. á mánuði miðað við fullt starf í dagvinnu. Greiðsla þessi skal breytast á þriggja mánaða fresti í samræmi við breytingu fataliðar í vísitölu neysluverðs. Auk þess var samið um eftirfarandi: • aukin réttindi verði starfsmaður fyrir líkams­ eða munatjóni í starfi sínu af völdum einstaklinga sem að takmörkuðu eða engu leyti geta borið ábyrgð á gerðum sínum • auknar álagsgreiðslur vegna brottfarar­ og komutíma vegna ferða erlendis sem farnar eru að frumkvæði vinnuveitanda • hækkun á framlagi vinnuveitanda í starfsmenntunarsjóð • hækkun á framlagi vinnuveitanda í fjölskyldu­ og styrktarsjóð • lengdan uppsagnarfrest fyrir 55 ára og eldri eftir 10 ára samfellt starf hjá sömu stofnun ef uppsögn er að frumkvæði vinnuveitanda. Breytingar á kjarasamningi FÍH við Samband íslenskra sveitarfélaga Þann 1. júlí 2011 var greidd eingreiðsla að upphæð 50.000 kr. miðað við fullt Cecilie Björgvinsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.