Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Qupperneq 38
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201134
Cecilie Björgvinsdóttir, cissy@hjukrun.is
NÝTT Í KJARASAMNINGUM 2011
Á liðnu sumri undirritaði samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
miðlæga kjarasamninga við alla viðsemjendur sína. Hér er sagt frá helstu
breytingum frá því sem áður var.
Viðsemjendur FÍH eru: fjármálaráðherra
f.h. ríkissjóðs (ríkið), Samband íslenskra
sveitarfélaga (SNS), Reykjavíkurborg,
Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu
(SFH) og Reykjalundur. Auk þess eru
gerðir stofnanasamningar við allar
stofnanir þar sem hjúkrunarfræðingar
starfa. Það verður svo verkefni haustsins
að endurnýja alla stofnanasamninga.
Breytingar á kjarasamningum FÍH
við ríkið, SFH og Reykjalund
1. júlí 2011 var greidd eingreiðsla að
upphæð 50.000 kr. miðað við fullt
starf til allra þeirra sem voru við störf á
tímabilinu marsapríl 2011. Þeir sem voru í
hlutastarfi eða höfðu starfað skemur fengu
hlutfallslega greiðslu.
Launahækkanir verða með eftirfarandi hætti:
1. júní 2011: 4,25%
1. mars 2012: 3,50%
1. mars 2013: 3,25%
Þann 1. mars 2014 verður greidd
eingreiðsla að upphæð 38.000 kr. miðað
við fullt starf í janúar 2014. Þeir sem
eru í hlutastarfi eða hafa starfað hluta úr
mánuði fá hlutfallslega greiðslu.
Orlofsuppbótin verður sem hér segir:
Á árinu 2011 26.900 kr. auk sérstaks álags
að upphæð 10.000 kr.
Á árinu 2012 27.800 kr.
Á árinu 2013 28.700 kr.
Persónuuppbót (desemberuppbót) verður
sem hér segir:
Á árinu 2011 48.800 kr. auk sérstaks álags
að upphæð 15.000 kr.
Á árinu 2012 50.500 kr.
Á árinu 2013 52.100 kr.
Frí í stað yfirvinnu: 5 daga hámark afnumið,
nú er starfsmanni með samkomulagi við
vinnuveitanda heimilt að taka hluta eða
alla yfirvinnu út í fríi. Ef yfirvinna er tekin út
í fríi þá tekur starfsmaðurinn klukkustund á
móti klukkustund og fær yfirvinnuálag greitt
næstu mánaðamót á eftir unninni yfirvinnu.
Yfirvinnuálag er 39,3% af yfirvinnutaxta
starfsmanns.
Vaktskrá lögð fram: Frá 16. júní 2011
breyttist grein 2.6.2 um breyttar vaktir og
er nú: „Ef vaktskrá er breytt með skemmri
fyrirvara en 24 klst., skal viðkomandi
starfsmanni greitt aukalega 3 klst. í
yfirvinnu. Sé fyrirvarinn 24168 klst. (ein
vika) skal greiða 2 klst. í yfirvinnu. Hér er
eingöngu átt við breytingu á skipulagðri
vakt en ekki aukavakt.“
Matar og kaffitímar vaktavinnumanna:
Frá 1. mars 2012 breytist grein 2.6.9
og verður svohljóðandi: „Starfsmenn í
vaktavinnu hafa ekki sérstaka matar og
kaffitíma. Starfsmönnum er þó heimilt að
neyta matar og kaffis við vinnu sína á
vaktinni ef því verður við komið starfsins
vegna. Vegna takmörkunar þeirrar sem að
ofan greinir á matar og kaffitímum, skal
greiða 25 mínútur á yfirvinnukaupi fyrir
hverja vakt óháð lengd vaktar.“ Var 15
mínútur áður.
Fæðisfé: Frá 1. júní 2011 fá starfsmenn
í hálfu stafi eða meira, sem ekki hafa
aðgang að matstofu en ættu að hafa það,
greidda fæðispeninga 380 kr. fyrir hvern
vinnuskyldudag. Auk þess skulu frá 1.
mars 2012 þeir starfsmenn, sem eru á
vakt þegar matstofa vinnustaðar er ekki
opin, fá það bætt með fæðispeningum
sem nema 380 kr. fyrir þá vakt.
Fatapeningar: Frá 1. júní 2011 geta
hjúkrunar fræðingar á heilbrigðis stofnunum,
þar sem þess er krafist vegna sérstakra
meðferðarúrræða að starfsmaður noti
eigin fatnað í stað vinnu slopps eða álíka
hlífðarfatnaðar, fengið í stað þess greidda
sérstaka fatapeninga að upphæð 3.800 kr.
á mánuði miðað við fullt starf í dagvinnu.
Greiðsla þessi skal breytast á þriggja
mánaða fresti í samræmi við breytingu
fataliðar í vísitölu neysluverðs.
Auk þess var samið um eftirfarandi:
• aukin réttindi verði starfsmaður
fyrir líkams eða munatjóni í starfi
sínu af völdum einstaklinga sem að
takmörkuðu eða engu leyti geta borið
ábyrgð á gerðum sínum
• auknar álagsgreiðslur vegna brottfarar
og komutíma vegna ferða erlendis sem
farnar eru að frumkvæði vinnuveitanda
• hækkun á framlagi vinnuveitanda í
starfsmenntunarsjóð
• hækkun á framlagi vinnuveitanda í
fjölskyldu og styrktarsjóð
• lengdan uppsagnarfrest fyrir 55 ára og
eldri eftir 10 ára samfellt starf hjá sömu
stofnun ef uppsögn er að frumkvæði
vinnuveitanda.
Breytingar á kjarasamningi FÍH við
Samband íslenskra sveitarfélaga
Þann 1. júlí 2011 var greidd eingreiðsla
að upphæð 50.000 kr. miðað við fullt
Cecilie Björgvinsdóttir.