Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 67

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 67
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 63 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER ekki á lyfjum að óþörfu. Þátttakendur voru almennt í sambandi við sinn lækni en ekki í annarri meðferð en lyfjameðferð á rannsóknartímanum. Þátttakendur töluðu ekki um að meðferðin truflaði áhrifin af lyfjatöku þeirra. Í þessari rannsókn fengu báðir hópar sömu meðferð og því ekki þörf á að beita blindun fyrir þátttakendur, hins vegar vissu græðarar ekki um skiptingu í hópa. Að síðustu má nefna að engir brestir komu fram við framkvæmd og skipulag rannsóknarinnar. Engin skilyrði voru sett um kyn en aðeins einn karl valdist í úrtakið (6%) og getur það ekki talist þversnið af þunglyndum og kvíðnum einstaklingum. LOKAORÐ Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að hægt sé að hafa umtalsverð áhrif á líðan þunglynds og kvíðins fólks með svæðameðferð. Rannsóknin er liður í því að bæta við og efla þekkingargrunn um áhrif og árangur svæðameðferðar á kvíða og þunglyndi en slíkur grunnur er mikilvægur til að viðhalda notkun á meðferðinni innan hjúkrunar. Skilningur og aðgangur að gagnreyndum upplýsingum um óhefðbundna meðferð á borð við svæðameðferð getur hjálpað hjúkrunarfræðingum að velja viðeigandi meðferð. Þunglyndi hefur í för með sér mjög neikvæð áhrif á líf einstaklinga og fjölskyldur þeirra og sjúkdómurinn er einnig erfiður samfélaginu vegna meðferðarkostnaðar og neikvæðra áhrifa á þjóðarframleiðslu (Landlæknisembættið, 2007). Að geta boðið upp á fjölbreytt meðferðaúrræði án hliðarverkana er því mikilvægt fyrir samfélagið í heild. Niðurstöður rannsóknarinnar eru hvatning til frekari rannsókna á áhrifum svæðameðferðar. Vonast er til að þessi rannsókn nýtist sem grunnur til frekari þekkingaröflunar á þessu sviði. Rannsaka mætti hve lengi áhrif svæðameðferðar vara á þunglyndi og kvíða og hvernig svæðameðferð vinnur með viðtalsmeðferð eða hugrænni atferlismeðferð. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingar um að svæðameðferð gagnist einstaklingum með þunglyndi og kvíða. Svæðameðferð er því góður valkostur, sem viðbótarmeðferð eða sjálfstæð meðferð, til að bæta almenna líðan og líf einstaklinga með þunglyndi og kvíða. Þakkir Höfundar þakka þátttakendunum 17 fyrir að miðla af reynslu sinni en gögnin hefðu ekki orðið til án þeirra. Græðurum á Ísis heilsuhofi og læknum er þakkað gott samstarf. Þakklæti er skilað til ráðgjafa og annarra sem veittu rannsókninni brautargengi. Heilsuklasa vaxtarsamnings Eyjafjarðar, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkrahúsinu á Akureyri eru þakkaðir veittir styrkir. Heimildir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (2007). Depression, chronic diseases, and decrements in health: results from the World Health Surveys. Lancet, 370, 851­858. Alderson, M.F. (2007). Total reflexology: The reflex points for physical emotional and psychological healing. Rochester, Vermont: Healing Arts Press. Barnes, L.L.B., Harp, D., og Jung, W.S. (2002). Educational and psychological measurement: reliability generalization of scores on the Spielberger State­Trait anxiety inventory. Educational and Psychological Measurement, 62, 603­618. Byron, J., og Kenward, M.G. (1989). Design and analysis of cross­over trials. London: Chapman and Hall. Dougans, I. (2001). Complete illustrated guide to reflexology (2. útg.). London: HarperCollins. Guðmundur Þorgeirsson (2003). Framskyggn slembuð meðferðarprófun. Í Sigríður Halldórsdóttir og Kristján Kristjánsson (ritstj.), Handbók í aðferðafræði og rannsóknum í heilbrigðisvísindum (357­370). Akureyri: Háskólinn á Akureyri. Gunnarsdottir, Þ.J., og Jonsdottir, H. (2010). Healing crisis in reflexology: becoming worse before becoming better. Complementary Therapies in Clinical Practice, 16, 239­243. Gunnarsdottir, Þ.J., og Jonsdottir, H. (2007). Does the experimental design capture the effects of complementary therapy? A study using reflexology for patients undergoing coronary artery bypass graft surgery. Journal of Clinical Nursing, 16, 777­785. Ingham, E.D. (1984). Stories the feet can tell thru reflexology: Stories the feet have told thru reflexology. Saint Petersburg: Ingham Publishing. Jakob Smári og Guðbjörg Erlendsdóttir (2003). Kvíðanæmi: hugtak og mælingar. Sálfræðiritið – Tímarit Sálfræðifélags Íslands, 8, 65­71. Jakob Smári, Daníel Þór Ólason, Þórður Örn Arnarson og Jón Friðrik Sigurðsson (2008). Mælitæki fyrir þunglyndi fullorðinna sem til eru í íslenskri gerð: próffræðilegar upplýsingar og notagildi. Sálfræðiritið – Tímarit Sálfræðifélags Íslands, 13, 147­169. Kober, A., Scheck, T., Greher, M., Lieba, F., Fleischhackl, R., Fleischhackl, S., Randunsky, F., og Hoerauf, K. (2002). Prehospital analgesia with acupressure in victims of minor trauma: a prospective, randomized, double­blinded trial. Journal of the Anesthesia Research Society, 95, 723­727. Kristján Jóhannesson (1994). Svæðameðferð, IV. hluti. Óbirt efni. Svæða­ og viðbragðsmeðferðarskóli Íslands. Landlæknisembættið (2007, 2. nóvember). Þjóð gegn þunglyndi. Sótt á http://www.landlaeknir.is/Pages/282. Launsö, L., Brendstrup, E., og Arnberg, S. (1999). An exploratory study of reflexological treatment for headache. Alternative Therapies in Health and Medicine, 5 (3), 57­65. Magnús Baldursson (2007). Þunglyndi – kvíði. Sótt 23. október 2008 á http://www.vefjagigt.is/grein.php?id_grein=108. Nezu, A.M., Ronan, G.F., Meadows, E.A., og McClure, K.S. (2000). Practitioner´s guide to empirically based measures of depression. New York: Kluwer Academic. Poole, H., Glenn, S., og Murphy, P. (2007). A randomized controlled study of reflexology for the management of chronic low back pain. European Journal of Pain, 10, 1016­1026. Quattrin, R., Zanini, S., Buchini, D., Turello, D., Annunziata, M.A., Vidotti, C., Colombatti, A., og Brusaferro, S. (2006). Use of reflexology foot massage to reduce anxiety in hospitalized cancer patients in chemotherapy treatment: methodology and outcomes. Journal of Nursing Management. 14, 96­105. Ross, C.S.K., Hamilton, J., Macrae, G., Docherty, C., Gould, A., og Cornbleet, M.A. (2002). A pilot study to evaluate the effect of reflexology on mood and symptom rating of advanced cancer patients. Palliative Medicine, 16, 544­545. Sigurður Thorlacius, Sigurjón B. Stefánsson og Stefán Ólafsson (2007). Algengi örorku á Íslandi 1. desember 2005. Læknablaðið, 93, 11­14. Spielberger, C.D., Gorsuch, R.L., Lushene, R., Vagg, P.R., og Jacobs, G.A. (1983). State­trait anxiety inventory for adults: Sampler set manual, test, scoring key. Palo Alto: Mind Garden. Spielberger, C.D. (1983). STAI manual for the State Trait anxiety inventory. Palo Alto: Consulting Psychologists Press. Stephenson, N.L.N., Welnrich, S.P., og Tavakoli, A.S. (2000). The effects of root reflexology on anxiety and pain in patients with breast and lung cancer. Oncology Nursing Forum, 27 (1), 67­72. Tryggingastofnun ríkisins (2008, mars). Lyfjakostnaður Tryggingastofnunar 2007. Sótt 8. nóvember 2008 á http://eplica.tr.is/media/skjolpdf/ Lyfjakostnadur_2007.pdf. Vicar, A.J.M., Greenwood, C.R., Fewell, F., Arcy, V.D., Chandrasekharan, S., og Alldridge, L.C. (2007). Evaluation of anxiety, salivary cortisol and melatonin secretion following reflexology treatment: a pilot study in healthy individuals. Complementary Therapies in Clinical Practice, 13, 137­145. Wang, M., Tasi, P., Lee, P., Chang, W., og Yang, C. (2008). The efficacy of reflexology: systematic review. Journal of Advanced Nursing, 62 (5), 512­520. Överbye, B.J. (1982). Frisk uten piller. En innföring i öre­akupunktur. Gjövik: Hjemmenes forlag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.