Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Side 60
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201156
ÚTDRÁTTUR
Rannsókn þessi var gerð til að kanna áhrif svæðameðferðar
á þunglyndi og kvíða. Þunglyndi er algengt og veldur meiri
röskun á högum einstaklingsins en flestir aðrir sjúkdómar.
Rannsóknir hafa rennt stoðum undir að svæðameðferð dragi úr
kvíða en áhrif hennar á þunglyndi eru óþekkt. Rannsóknin var
framskyggn, slembuð meðferðarprófun með víxlsniði þar sem 19
þátttakendum, sem greindir höfðu verið þunglyndir af lækni, var
skipt með tilviljunaraðferð í tvo hópa.
Þátttaka í rannsókninni tók 16 vikur. Rannsóknartíminn skiptist í 8
vikna biðtíma og 8 vikna meðferðartíma en röðun í hópa réð því hvort
byrjað var á meðferð eða bið. Hver þátttakandi fékk svæðameðferð
10 sinnum og voru áhrif meðferðar mæld með þunglyndiskvarða
Beck og kvíðakvarða Spielberger. Hver þátttakandi svaraði
spurningalistunum þrisvar, við upphaf rannsóknartímabils og síðan
eftir 8 og 16 vikur. Rannsóknartímabilið stóð frá janúar til ágúst 2008.
Breyting á stigafjölda á biðtíma var lítil en það bendir til
þess að einungis svæðameðferðin hafi breytt stigafjölda eftir
meðferðartíma. Ekki reyndist marktækur munur milli hópa hvað
varðar stigafjölda þunglyndis eða kvíðakvarða eftir 8 vikur þegar
einungis annar hópurinn hafði fengið meðferð. Niðurstöður úr
pöruðu Wilcoxon tprófi sýndu að svæðameðferð dró marktækt úr
þunglyndi miðað við svörun á þunglyndiskvarða Beck hjá báðum
hópum eftir meðferð (p<0,001). Meðferðin dró einnig marktækt úr
ástandskvíða (p<0,001) en lyndiskvíði jókst (p<0,014).
Rannsóknarniðurstöður gefa vísbendingar um að beita megi
svæðameðferð sem sjálfstæðri meðferð eða viðbótarmeðferð við
þunglyndi og kvíða. Niðurstöður gefa jafnframt tilefni til frekari
rannsókna um hvernig meðferðin þjóni best skjólstæðingum innan
sem utan heilbrigðiskerfisins.
Meginhugtök: Svæðameðferð, óhefðbundin meðferð, þunglyndi,
kvíði, framskyggn meðferðarrannsókn.
INNGANGUR
Kostnaður vegna geðsjúkdóma eins og þunglyndis eru bæði
þjóðfélögum og einstaklingum dýr og því hefur verið spáð að
svo verði áfram, jafnt í þróuðum ríkjum sem og í þróunarlöndum
(Landlæknisembættið, 2007; Alþjóðaheilbrigðismálastofnun
in, 2007). Þunglyndi birtist ekki einungis sem geðsjúkdómur,
þunglyndi kemur fram á mismunandi hátt í birtingarmynd annarra
sjúkdóma. Það á því þátt í sjúkdómsbyrði og örorku hjá fólki með
marga og langvinna sjúkdóma eins og hjartakveisu, sykursýki,
astma og gigt (Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, 2007). Þunglyndi
er nátengt kvíða og talið er að u.þ.b. 2530% þeirra sem hafa
almenna kvíðaröskun séu einnig þunglyndir og 2030% þeirra
sem greindir eru þunglyndir uppfylla einnig greiningarviðmið fyrir
almenna kvíðaröskun (Magnús Baldursson, 2007).
Hólmfríður Margrét Bjarnadóttir, Sjúkrahúsinu á Akureyri
Árún K. Sigurðardóttir, heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri
ÁHRIF SVÆÐAMEÐFERÐAR Á ÞUNGLYNDI OG KVÍÐA:
SLEMBUÐ, FRAMSKYGGN MEÐFERÐARRANNSÓKN
ENGLISH SUMMARY
Bjarnadottir, H.M., and Sigurdardottir, A.K.
The Icelandic Journal of Nursing (2011), 87 (5), 5663
THE IMPACT OF REFLEXOLOGY ON
DEPRESSION AND ANXIETY
This research was conducted to study the effect of reflexology
on depression and anxiety. Depression is common and
compared to other diseases it is highly influential in
weakening the health status of patients. According to
research reflexology can relieve anxiety but its effects on
depression is unknown. In this randomized controlled trial
with crossover experimental design, 19 participants with
diagnosis of depression were randomly divided into two
groups. The intervention time for each participant lasted
for 16 weeks. The intervention was divided into either 8
weeks therapy time or 8 weeks waiting time, depending
on how participants where randomized into groups. Each
participant received ten reflexology therapies. The effect
of the treatment was measured by two questionnaires,
the Beck Depression Inventory and the Spielberger State
Trait Anxiety Inventory. Each participant answered the
instruments three times, in the beginning of the intervention,
after 8 weeks and after 16 weeks. The intervention lasted
from January until August 2008.
There were little changes in scores after the waiting time,
which indicates that the therapy itself affected changes
in scoring. None significant differences between groups
were found in scorings of depression or anxiety after 8
weeks when only one group had received treatment. Paired
Wilcoxon test showed that reflexology reduced depression
significantly, both immediately following treatment and after
16 weeks measured with the Beck Depression Inventory
for both groups, (p<0,001). The therapy also reduced
state anxiety significantly, (p<0,001), while trait anxiety
increased, (p<0,014).
The results indicate that reflexology can be used as
an independent and/or complementary therapy relieving
depression and anxiety. The results of this research should
also motivate further research on how reflexology might
benefit clients within and outside the public health care
system.
Keywords: Reflexology, complementary and alternative
therapy, depression, anxiety, randomized controlled trial.
Correspondance: hmb@simnet.is