Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Qupperneq 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Qupperneq 17
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 13 fyrsta hópinn sem stundaði meistaranám í hjúkrun við Háskóla Íslands. „Það var margt sem mótaði viðhorf mín til hjúkrunar,“ segir Sigrún. „Guðrún Marteinsdóttir hafði mikil áhrif á mig og áhugasvið mitt í hjúkrun. Ég fór fljótt eftir útskrift að vinna í heilsugæslunni. Þar héldu áfram að mótast hugmyndir mínar um það hvað við getum gert hvert gagnvart öðru til þess að okkur líði betur. Ég hafði nefnilega haft mikla reynslu af heilbrigðisþjónustunni persónulega og það var svo mikið að brjótast í mér þetta með sjúkdóma og hvað mikil takmörk þeir setja okkur. En möguleikar okkar til þess að vernda okkar eigin vellíðan og heilbrigði eru margir og fleiri en okkur grunar. Ég bæði fór í hjúkrun og kom úr námi með þessar hugmyndir enn betur mótaðar. Í heilsugæslunni fékk ég tækifæri til þess að vinna með þessar hugmyndir. Við byrjuðum þar með ýmislegt sem varðaði uppfræðslu skjólstæðinga okkar og að vinna með skjólstæðingum okkar að betri heilsu og lífsháttum.“ Sigrún fór seinna að vinna í heilbrigðis­ ráðuneytinu og kynnti ásamt öðrum hugtakið heilsueflingu. Hún skoðaði einnig í meistaranáminu möguleika fólks að finna innra með sér það sem getur styrkt heilsu fólks og varðveitt hana. Í Svíþjóð kynntist hún hugtakinu „salutogenesis“ sem hún kallar á íslensku uppsprettur heilbrigðis. „Það eru þessar uppsprettur heilbrigðis sem eru svo heillandi. Þær búa innra með okkur öllum og það er verkefni okkar hjúkrunarfræðinga að virkja þessar uppsprettur heilbrigðis hjá sjálfum okkur og hjá öðrum. Þó að Florence Nightingale hafi ekki notað þetta hugtak þá talaði hún um þessa orku sem er til innra með hverjum manni. Þetta er verkefni hjúkrunarfræðinga og mér fannst snemma svo heillandi við það að vera í hjúkrun að við höfum þetta frelsi til þess að skapa með skjólstæðingum okkar hugmyndir og verkefni sem vernda og efla heilsuna.“ „Það er verkefni okkar hjúkrunarfræðinga að virkja þessar uppsprettur heilbrigðis hjá sjálfum okkur og hjá öðrum.“ Samskipti vega þyngst Sigrún hefur mótað þessar hugmyndir og þroskað í vinnu á ýmsum stöðum, eins og í Félagi um lýðheilsu, í vinnuverndinni á Landspítala og í starfi sínu með deildarstjórum á Landspítala. „Þegar ég var búin að gera þessar tvær stóru rannsóknir á Landspítalanum um hvernig fólki líður sem þar starfar þá komu allir þræðirnir saman. Alveg frá því að ég var stelpa hef ég velt fyrir mér hversu góð áhrif sumar manneskjur hafa á mann, hjúkrunarfræðingar, læknar, kennarar og annað fólk, en aðrir hefðu kannski þurft að vanda sig meira og koma aðeins öðruvísi fram til þess að þessar uppsprettur heilbrigðis fengju að njóta sín og flæða fram,“ segir hún. Fram hefur komið í rannsóknum Sigrúnar að það sem hefur langmest áhrif á að fólk fái að njóta sín í starfi eru samskipti þess við næsta yfirmann. „Það er í gegnum yfirmanninn sem tækifæri okkar koma í ljós. Hvernig yfirmaðurinn talar við mann, hvort hann gefur starfsmanninum frelsi til þess að hugsa og ræða sínar hugmyndir, eða ná fram sínum hæfileikum þannig að hann njóti sín og komist hreinlega í samband við eigið frelsi. Því sá sem er frjáls hann fer að skapa, honum dettur eitthvað nýtt í hug og finnur lausnir. Oftar en ekki skapast þessar hugmyndir í samtali. Þess vegna er samtalið milli starfsfólks og milli starfsmannsins og stjórnandans svo dýrmætt. Ég sá það í þessum rannsóknum, bæði í þvottahúsinu og í eldhúsinu, að þar sem starfsfólkið hafði gott samband við verkstjórana og hvað við annað fann það ýmsar góðar lausnir varðandi hvernig það gat unnið vinnu sína sem er í eðli sínu þung, hávaðasöm og streituvaldandi færibandavinna. Fólkið naut sín. Það kom mér svo mikið á óvart. Ég hélt að ég myndi þar finna einhver augljós merki um vanlíðan og heilsubrest. En fólkið var bara með þetta alveg á hreinu. Það sagði: „Við erum svo frjáls hérna. Við ráðum okkur sjálf. Okkur er bara sagt hvað við þurfum að gera og við getum ráðið því hvernig við klárum það. Það var eins og fólkið myndaði litlar fjölskyldur við færibandið og styddi hvað annað.“ Sigrún tók þessar hugmyndir og skoðaði í ljósi ýmissa kenninga og rannsókna. Hana langaði að sjá hvernig þetta væri í starfi hjúkrunarfræðingsins gagnvart sjúklingum. Úr því varð doktors verkefni hennar og niðurstaðan var svipuð og í fyrri rannsóknum. Ef samband hjúkrunar fræðinganna og samstarf við deildarstjórann er gott og ef deildar­ stjórinn virðir hjúkrunarfræðingana og ljósmæðurnar og leyfir þeim að blómstra eru þeir ánægðir í starfi. „Þegar ég hafði skoðað þetta hugsaði ég: Hvað heitir þetta allt saman? Hvað heitir svona stjórnun? Það má kalla hana „organisational empowerment“ sem ég þýddi sem styrkjandi stjórnun. Ég talaði mjög mikið um þetta við vinkonu mína, Vigdísi Magnúsdóttur. Þetta er umhyggja í stjórnun, umhyggja stjórnandans um leið og hann er hugrakkur og kraftmikill og áræðinn og líka hógvær því að hann gefur hinum pláss og tækifæri. Hann gín ekki yfir verkefnunum heldur lyftir samstarfsfólki sínu upp og segir: Hvað kanntu, hvað viltu, hvernig get ég hjálpað þér að blómstra í starfi? Ég hugsaði: Jæja, köllum þetta bara styrkjandi stjórnun.“ Stuttu seinna var Sigrún stödd í Bandaríkjunum og fór í bókabúð. „Þar blasir við mér bók sem á stendur „The servant as leader“. Ég fer að blaða í bókinni og hugsa: Þessi bók er beinlínis um Vigdísi Magnúsdóttur og góða stjórnun á Landspítala.“ Hún keypti bókina og fór með hana heim. Á þeim tíma var hún að vinna leiðtogaverkefni Fyrsta bók Roberts Greenleafs hefur verið gefin út aftur og aftur. Hér er ein nýleg útgáfa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.