Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 18

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 18
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201114 með deildarstjórum á Landspítala og sýndi þeim kafla úr bókinni. Allir voru sammála um að það sem lýst var í bókinni væri einmitt það sem þau höfðu verið að tala um allan veturinn. Hún ræddi þetta fram og aftur við deildarstjórana og þeir voru alveg sammála um að leiðtoginn eigi að vera þjónn. Leiðtogarnir eiga að þjóna markmiðum spítalans og velferð skjólstæðinganna með því að þjóna starfsfólkinu og sinna þörfum þess. Þjónandi forysta Sigrún fór að leita sér upplýsinga um það sem seinna fór að kallast á íslensku þjónandi forystu. Hún komst að því að umfjöllun um þjónandi forysta var ekki endilega að finna í vísindatímaritum og kom því ekki fram í þeim gagnabönkum þar sem hún leitar gjarnan. Hún gerði þá leit á netinu. „Google var nú lunkinn, hann fann þetta fyrir mig eins og skot,“ segir Sigrún. Hún fann meðal annars í Bandaríkjunum samtök sem heita Greenleaf center for servant leadership. „Mér fannst þetta vera kjarni málsins, kom mér í samband við þessa miðstöð og gerðist félagi.“ Hún fór að fá fréttabréf og las sig meira til, pantaði bækur og kynnti sér hugmyndafræðina bak við þjónandi forystu. „Þetta smellpassaði við þessar áherslur sem ég lærði hér í hjúkrunardeildinni og hafði lært heima hjá mér þegar ég var stelpa. Því mamma mín var kraftmikill leiðtogi og íþróttakona og var alltaf að hugsa um það hvernig við gætum látið öðrum líða vel í kringum okkur. Þegar ég las bækur Roberts Greenleafs þá kom þetta allt saman fram. Þar er lögð áhersla á hvernig einstaklingnum líður og hvernig samfélagið hefur hag af störfum okkar. Ég hugsaði: Þetta er bara nákvæmlega eins og talað út úr mínu hjarta. Þetta er lýðheilsa, það er heilsa og vellíðan fjöldans með því að beina sjónum að samskiptum okkar og forystu. Alveg það sama og ég hafði verið að bauka við sjálf.“ Sigrún tók 2007 þátt í ráðstefnu á vegum samtakanna og kynnti fyrir ráðstefnugestum verkefni sem hún og deildarstjórar á Landspítala höfðu unnið saman. Hún setti fram þá tilgátu að þær hefðu verið að koma á fót þjónandi forystu án þess að vita hvað hún héti. Á ráðstefnunni kynntist hún fjölda fólks og því mikla hugsjónastarfi sem fer fram á vegum samtakanna. „Eftir ráðstefnuna fékk ég þá hugmynd að þetta væri nokkuð sem við ættum að vinna að hér á landi og að það væri mikil þörf fyrir þetta. Það eru margir sem fylgja þessu. En illu heilli hafa aðrar stjórnunaraðferðir gnæft yfir og haft óheppileg áhrif eins og við sáum í hnotskurn 2008. Rannsóknarskýrsla Alþingis um bankahrunið fjallar um það hvernig forystan og stjórnunin brást, hvernig það brást að hugsa um velferð fjöldans, að hugsa um langtímamarkmið og að gæta að hag skjólstæðinganna eða viðskiptavinanna. Þjónandi forysta gengur út á að hugsa fyrst og fremst um hugsjón starfsins og það hvernig hægt er að hjálpa starfsmönnum að hafa áhrif. Hvernig get ég miðlað upplýsingum þannig að allt hið góða komi fram og fólk geti skoðað upplýsingarnar, rýnt í þær, notað þekkingu sína og haft síðan áhrif til góðs? Því miður var þetta ekki tilfellið hér víða á árunum fyrir 2008. Í rannsóknarskýrslunni kemur berlega í ljós hvernig ákveðinn hópur stjórnenda þjappaði saman valdinu. Það varð valdaþjöppun í staðinn fyrir valdadreifingu og það varð leyndarhyggja í staðinn fyrir upplýsingaflæði. Þeir hugsuðu mest um hag fárra en hagur fjöldans var ekki inni í myndinni,“ segir Sigrún. „Hinn þjónandi leiðtogi er mjög hreinskilinn og blátt áfram en hann getur verið það vegna þess að fólk treystir honum og veit að leiðtoginn ber virðingu fyrir því. Hann er líka opinskár og veitir upplýsingar. Leyndarhyggja er ekki farsæl. Hún er til lengdar öfugsnúin hag fyrirtækjanna.“ „Rannsóknarskýrsla Alþingis um bankahrunið fjallar um hvernig stjórnunin og for ystan brást að hugsa um velferð fjöldans.“ Að sögn Sigrúnar sýndi bankahrunið hversu brýnt er að stjórnendur tileinki sér þjónandi forystu og styrki hana því hún sé nefnilega mjög víða í heilbrigðisþjónustunni en einnig í fyrirtækjum, skólum og leikskólum og í íþróttastarfinu. „Við sáum þetta til dæmis hjá handboltalandsliðinu sem kom heim með silfrið 2008. Þar voru tveir leiðtogar, þjálfarinn og fyrirliðinn, en báðir eru alveg sérstaklega lagnir við það að leyfa öðrum að njóta sín. Það birtist til að mynda þegar verið var að taka ljósmyndir af hópnum. Þá læddist fyrirliðinn bak við hópinn svo hinir fengju að njóta sín. Þetta er kúnstin í þjónandi forystu. Það snýst ekki um mig og hvernig ég get fengið allt ljósið á mig. Þetta snýst um það að dreifa athyglinni til þeirra sem eru að vinna verkin.“ Mikið frelsi Sigrún segir að með því að sleppa takinu af hinu sjálfmiðaða sjónarhorni verði hinn þjónandi leiðtogi frjáls. Þessu fylgir mikil vellíðan fyrir leiðtogann. Hann uppgötvar innra með sér hvað hann verður frjáls þegar hann skapar flæði hjá öðrum. Stjórnandinn hefur heildarábyrgðina og mikinn metnað fyrir hönd verkefnisins en hann er ekki upptekinn af eigin metnaði. Hann þarf ekki að hugsa um slíkt af því að hugsjónin er skýr. Hann veit hver er tilgangur starfanna sem um er að ræða, til dæmis hver er tilgangurinn með banka. Sé hann bankamaður hugsar hann ekki um eigin hlutabréf heldur um hag fólksins sem leggur peninga sína inn í þennan banka. „Það sama á við um stjórnanda á sjúkrahúsi. Ef hann hefur einbeitta sýn á hugsjónina, sem er velferð sjúklinganna, og lætur hana stjórna öllu þá verður hann frjáls. Ef athyglin er á hvernig hann kemst í betra starf og fær meiri völd og hærri tekjur þá er hann fangi þessara sjálfmiðuðu hugsana og markmiða. Þeir sem hafa notað þessa hugmynd í áratugi í fyrirtækjum og stofnunum segja að þegar leiðtoginn hefur athyglina á markmiðunum, samstarfsfólkinu og skjólstæðingunum þá leysist allt annað af sjálfu sér. Leiðtoginn verður frjáls eins og fuglinn vegna þess að hann þarf ekki að eltast við að fá mestu athyglina sjálfur. Hann hefur skipt um gír og er farinn að sjá að innri starfshvöt er það sem skiptir mestu máli. Ytri starfshvöt og ytri umbun virka hvort eð er takmarkað.“

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.