Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 22
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201118
starfs menn hennar hafa nú komið upp
rannsóknarhópi sem í samvinnu við
vísindamenn í Hollandi, Danmörku og
Svíþjóð rannsaka áhrif þjónandi forystu
á starfsánægju í heilbrigðisþjónustu og
víðar. „Núna erum við að reyna að festa
hönd á, með einhverjum mælingum sem
eru sambærilegar milli staða, hver sé
munurinn á þjónandi forystu og öðrum
stjórnunaraðferðum og reyna að sjá
hvað þyrfti að styrkja til þess að efla
mismunandi þætti.“ Núna eru um það bil
tíu meistaranemar að gera rannsóknir um
þjónandi forystu. Þeir koma ekki bara úr
hjúkrun heldur eru í hópnum til dæmis
kennari, lögfræðingur, viðskiptafræðingur,
félagsfræðingur og sálfræðingur í
mannauðsstjórnunarnámi. Allir nema einn
gera rannsóknir með spurningalistakönnun
en þær eru gerðar í samstarfi við höfund
matstækisins sem er Hollendingur. Metnir
eru þættir eins og efling, að vera til
staðar fyrir fólk, hugrekki, áreiðanleiki
og auðmýkt. „Það er athyglisvert hversu
sterkt auðmýkt stjórnandans tengist
starfsánægju. Fimm rannsóknum er
lokið og niðurstöðurnar komnar og þær
eru mjög áhugaverðar. Það er stunduð
þjónandi forysta til dæmis í skólum og
á heilbrigðisstofnunum en kannski ekki
alveg eins mikið í einkafyrirtækjum.
Rannsakendur hafa til dæmis sent
spurningalista til allra sjúkraliða og einnig
til starfsfólks í grunnskólum Norður
lands. Í haust verður gerð könnun hér í
Háskóla Íslands um viðhorf starfs fólks
og einnig verður könnun á Akureyri í
haust. Fljótlega mun liggja fyrir talsvert
af vísindaniðurstöðum og ég er þessa
dagana að taka þetta saman. Þegar við
berum saman við Holland þá er þetta
glettilega líkt en það er samt ákveðin
breidd í þessu. Þjónandi forysta tengist
marktækt starfsánægju en mismunandi
eftir þáttum.“
Ráðstefna í Skálholti
Sigrún hefur haft veg og vanda af því
að undirbúa ráðstefnu um ígrundun
og þjónandi forystu og fór hún fram
í Skálholti 14. október sl. Ráðstefnan
var tileinkuð minningu Vigdísar Magnús
dóttur en hún hefði orðið 90 ára á
þessu ári. „Við Íslendingar erum kannski
ekki sérfræðingar í því að staldra við
og hugsa. Við æðum svolítið áfram,
viljum bara kýla á þetta, og það er
auðvitað líka skemmtilegt. En stundum
þarf maður nú að íhuga og yfirskriftin er
sem sagt þjónandi forysta og ígrundun
í starfi,“ sagði Sigrún nokkrum vikum
áður en ráðstefnan fór fram. Frá Hollandi
kom Dirk van Dierendonck en það er
maðurinn sem bjó til spurningalistann
sem margir rannsakendur hafa notað
hér á landi. „Mér finnst þetta mælitæki
hafa þann kost að það er búið til út frá
evrópskum aðstæðum. Við vitum að það
er alltaf munur á milli menningarheima.
Dirk hefur gefið út að minnsta kosti tvær
bækur, eina um þjónandi forystu, og
er virtur á þessu sviði.“ Hinn gesturinn
var Kasper Edwards frá Danmörku en
hann er sérfræðingur í rannsóknum um
stjórnun og skipulag heilbrigðisstofnana
og hefur verið í samstarfi við Dirk van
Dierendonck og vísindamenn hér á landi
um rannsóknir á þjónandi forystu.
Fjórir íslenskir fyrirlesarar sögðu svo
frá sínum hugmyndum. Einn þeirra var
Sigrún sjálf en hún talaði um þjónandi
forystu og hugsjón Vigdísar Magnúsdóttir.
Góður tími var gefinn í samtöl og var
þátttakendum boðið í umræðuhópa.
Reynt var að skapa samræður um þessar
hugmyndir og hvernig þær hafa reynst í
framkvæmd.
Þekkingarsetur um þjónandi
forystu
Hvað er svo fram undan, hvernig sérðu
fyrir þér framtíð þjónandi forystu á
Íslandi? „Fyrir nokkrum árum óskuðum
við sem vinnum að framgangi þessara
hugmynda eftir því að fá að stofna hér
miðstöð um þjónandi forystu. Við gerðum
samning við Greenleafstofnunina úti.
Sá samningur var undirritaður 2010
og við störfum samkvæmt honum.
Hlutverk miðstöðvarinnar, sem við köllum
Þekkingarsetur um þjónandi forystu, er
að miðla upplýsingum um hugmyndina
og vera reiðubúin til að sinna þörfum og
áhuga fólks á að kynnast hugmyndinni,
vinna með hana og hugsanlega taka
hana upp. Við erum komin áleiðis með
það og höfum kynnt þessar hugmyndir
víða fyrir mörgum starfshópum, til
dæmis í stjórnsýslunni, leikskólum,
framhaldsskólum og í hjúkrun. Við
höfum farið á vinnufundi og ráðstefnur
og líka boðið fólk á okkar ráðstefnur og
kynningarkvöld. Við höfum haldið málþing
og haft leshópa og erum reiðubúin að
gefa ráð um lesefni. Þá höfum við haldið
úti heimasíðu síðan 2008, hún er mjög
mikið notuð. Við höfum reynt að skrifa
í blöð og þurfum að gera meira af því.
Einnig höfum við gefið út rit sjálf og þýtt
rit erlendis frá. Svo erum við að vinna að
þessum vísindarannsóknum. Allt smitar
þetta út frá sér og draumur okkar er að
til verði margir sérfræðingar í þjónandi
forystu sem geta farið og talað við sína
faghópa.“
„Öll sönn hjálparlist hefst
með auðmýkt.“
Þjónandi forysta í hjúkrun
Hvernig er hægt að nota þessar
hugmyndir í beinni hjúkrun? „Svipað
og gagnvart nemendum. Nú höfum
við í mörg ár talað mikið um þetta
með að virkja sjúklinginn í meðferð.
Hann hefur bæði rétt á því og það
kemur líka meira út úr því. Þetta birtist
í fjölskylduhjúkrun og i sjúklingafræðslu
og líka í sjálfshjálparhópum fyrir fólk með
langvinna sjúkdóma. Náum í hugmyndir
fólksins, hlustum á hvað það segir.
Tökum dæmi um karlmann með hjarta
sjúkdóm. Það er ýmislegt sem hann
getur gert til að vernda sig. Á ég að segja
honum það eða byrja á að spyrja hvað
honum dettur í hug? Hvaða möguleikar
eru það sem hann sér helst? Vill hann
frekar auka hreyfingu eða vill hann fara á
jóganámskeið? Eða hefur hann sérstakan
áhuga á mat og eldamennsku? Ég byrja
á því að hlusta. Danski heimspekingurinn
Sören Kierkegaard sagði að ef maður
ætlaði að hjálpa einhverjum að gera
eitthvað yrði maður að byrja þar sem
hann væri staddur. Öll sönn hjálparlist
hefst með auðmýkt. Við erum jafningar
– ég þjóna sjúklingnum og hann ber á
sama tíma virðingu fyrir minni þekkingu.
Hann treystir mér, ég treysti honum
og við tölum saman. Sumt í þessu er í
rauninni mjög einfalt,“ segir Sigrún að
lokum.