Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Qupperneq 24
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201120
Bókin Ofbeldi – margbreytileg birtingar mynd kom út á
vegum Háskólaútgáfunnar í lok ársins 2010. Ritstjóri
bókarinnar er Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við
hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Bókin er rituð í þeim
tilgangi að kynna heilbrigðisstarfsfólki og nemendum
í grunn og framhaldsnámi í heilbrigðisvísindum,
niðurstöður fjögurra íslenskra rannsókna á ofbeldi
gegn konum sem undirrituð er ábyrgðarmaður að. Í
bókinni eru 5 kaflar þar sem niðurstöður fyrrnefndra
rannsókna eru tíundaðar auk þess sem í tveimur
viðaukum bókarinnar er greint frá leiðbeiningum í klíník
sem notaðar voru í rannsóknunum. Geta þær nýst
sem vegvísir fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem stendur
frammi fyrir því að konur, sem eru skjólstæðingar
þess, tjái því eða gefi til kynna að þær hafi verið eða
séu þolendur ofbeldis. Hver kafli í bókinni var ritrýndur
af tveimur sérfræðingum innan háskólasamfélagsins.
Bókin er samtals 185 blaðsíður að lengd og hafði
Kristín Björnsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands, umsjón með ritrýni fyrstu tveggja kafla
bókarinnar.
Í fyrsta kafla bókarinnar eru niðurstöður kynntar úr
tveimur rannsóknum þar sem kannað var hvaða þættir
hefðu áhrif á heilbrigði kvenna sem eru þolendur ofbeldis
í nánum samböndum úti í samfélaginu (niðurstöður
úr landskönnun/samfélagskönnun, n=2.738 konur)
samanborið við þann hóp kvenna sem eru þolendur
ofbeldis en leita eftir sértækri heilbrigðisþjónustu á
slysa og bráðadeild Landspítala í Fossvogi eða á
áhættumeðgöngudeild (niðurstöður rannsóknar á
slysa og bráðadeild og á Miðstöð mæðraverndar,
n=208 konur). Um er að ræða þversniðsrannsókn
sem náði til 2.946 kvenna bæði almennt í samfélaginu og á
klínískum vettvangi. Eins og fram kemur í inngangi bókarinnar sem
og í aðferðafræðilegri umfjöllun á niðurstöðum þessara fjögurra
rannsókna var gögnum safnað meðal annars með spurningalistum
sem og með hálfstöðluðum viðtölum.
Í umfjöllun Sigríðar Halldórsdóttur um þær rannsóknaniðurstöður,
sem kynntar eru í fyrsta kafla bókarinnar, fullyrðir Sigríður að
einungis 35% þátttaka hafi verið í fyrri rannsókninni og að undirrituð
hafi „gert lítið úr þeirri takmörkun og ekki nægjanlegrar varkárni
gætt í ályktun með tilliti til þessarar alvarlegu takmörkunar“ (Tímarit
hjúkrunarfræðinga, bls. 26). Hér fer Sigríður því miður með rangt
mál eins og svo víða annars staðar í umfjöllun sinni um ofangreinda
bók. Sigríður heldur áfram og vitnar í lokaorð undirritaðrar í
fyrsta kafla bókarinnar þar sem hún segir: „Til dæmis skrifar Erla
Kolbrún um meginniðurstöðu rannsóknarinnar: „Þótt ofbeldi gegn
konum sé að finna í öllum þjóðfélagsstéttum virðist hlutfallslega
RÉTT SKAL
VERA RÉTT
Erla Kolbrún Svavarsdóttir, eks@hi.is
Erla Kolbrún Svavarsdóttir gerir
hér athugasemdir við umfjöllun
Sigríðar Halldórsdóttur, prófessors
í hjúkrunar fræði við Háskólann á
Akureyri, um bókina Ofbeldi – marg
breytileg birtingarmynd sem kynnt
var í Tímariti hjúkrunar fræðinga,
3. tbl. 2011, bls. 2627.