Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Page 26
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201122
bls. 97). Sigríður eignar því þeim Kolbrúnu
og Sigríði Síu rannsóknirnar þó svo það
sé skýrt tekið fram að undirrituð sé
ábyrgðarmaður og höfundur að þessum
rannsóknum. Sigríður fjallar einnig um
að aðferðafræðilega séu rannsóknir
Kolbrúnar og Sigríðar Síu vandaðar og er
það óneitanlega sérkennilegt því stuðst
er við sömu aðferðafræði í umfjöllun
þeirra Kolbrúnar og Sigríðar Síu og í
umfjöllun í köflum 1 og 2 sem undirrituð
er höfundur að. Sigríði hefði átt að vera
það ljóst að verið er að fjalla að hluta
til um sömu rannsóknir í fyrstu fjórum
köflum bókarinnar þó svo niðurstöðurnar
séu kynntar með ólíkum hætti. Um stórt
gagnasafn er að ræða þar sem verið er
að svara ólíkum rannsóknarspurningum
(kaflar 1 og 2 eru yfirlitskaflar þar sem
gefið er yfirlit yfir niðurstöður þessara
rannsókna). Aðferðafræðin er hins vegar
sú sama. Að lokum greinir Sigríður frá
þeirri skoðun sinni að ef við Brynja hefðum
í okkar rannsóknum stuðst við viðtöl
hefðu þær rannsóknir haft mun meira
gildi. Eins og áður hefur komið fram var
stuðst meðal annars við viðtöl á slysa
og bráðamóttökudeild og á Miðstöð
mæðraverndar en þeim niðurstöðum eru
meðal annars gerð skil í kafla 2.
Ofbeldi er alvarlegt heilbrigðisvandamál
sem fjalla þarf um af þekkingu, innsæi,
nærgætni og af virðingu fyrir þolendum
ofbeldis. Ég vil því hvetja lesendur
Tímarits hjúkrunarfræðinga til að lesa
sjálfir umrædda bók og að mynda
sér sjálfstæða skoðun á gildi þeirra
rannsóknaniðurstaðna sem þar eru
kynntar. Umfram allt er það mikilvægt að
hjúkrunarfræðingar og ljósmæður, sem
starfa innan heilbrigðiskerfisins, kunni
að bregðast faglega við þegar þeim er
tjáð að skjólstæðingur þeirra sé þolandi
ofbeldis en þá er það grundvallaratriði að
veita þolendum ofbeldis viðeigandi fyrstu
viðbrögð.
Erla Kolbrún Svavarsdóttir er ritstjóri bókar
innar Ofbeldi – margbreytileg birtingarmynd.
Heimildir
Erla Kolbrún Svavarsdóttir (ritstj.) (2010). Ofbeldi
– margbreytileg birtingarmynd. Reykjavík:
Háskólaútgáfan.
Erla Kolbrún Svavarsdóttir (2011). Notkun klínískra
leiðbeininga við að greina ofbeldi gegn konum
í nánum samböndum. Fyrirlestur haldinn
1. júní í Öskju Háskóla Íslands á ráðstefnu
um kynbundið ofbeldi, Drögum tjöldin frá.
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Ingólfur V. Gíslason (2008). Ofbeldi í nánum
samböndum: Orsakir – afleiðingar – úrræði.
Heilbrigðiskerfið. Reykjavík: Félags og
tryggingamálaráðuneytið.
Sigríður Halldórsdóttir (2011). Bókarkynning:
Margbreytileg birtingarmynd ofbeldis. Tímarit
hjúkrunarfræðinga, 87 (3), bls. 2627.
Skýrsla velferðarráðherra um aðgerðir
samkvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar
vegna ofbeldis karla gegn konum í nánum
samböndum. Lögð fyrir Alþingi á 139.
löggjafarþingi 20102011.
kynstrinoll.is
– fjör í orði og á borði!
Kynstrin öll er skemmtilegt og óvenjulegt
spurningaspil með forvitnilegum og fyndnum
spurningum. Spilið vekur eldfjörugar umræður
meðal leikmanna um allt milli himins og jarðar í
sambandi við samskipti kynjanna og
kynferðismál. Spilið er kryddað með
skemmtilegum fróðleik um málefni sem allir
ættu að þekkja. Spilið er hið fyrsta sinnar
tegundar hér á landi. Kynstrin öll er spurninga-
og partýspil fyrir vina- og kunningjahópinn,
fyrir konur og karla og kynhneigðir af öllu
tagi. Allir geta tekið þátt í spilinu, óháð
reynslu af nánum samskiptum.
HJÚKRUNAR- FRÆÐINGAR! TILBOÐ Á KYNSTRIN
ÖLL FRAM AÐ JÓLUM:5000 kr.(+ sendingarkostnaður í póstkröfu).PANTANIR:jona@kynstur.is