Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 27
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 23 Edda Björg Sverrisdóttir, eddab@heilhus.is Ég útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri árið 2003. Ég hafði alltaf haft hug á að vinna á landsbyggðinni og þegar ég var í verknámi á heilsugæslusviði á Heilbrigðis­ stofnun Þingeyinga á Húsavík sótti ég um vinnu þar á sjúkrahúsinu. Vinnuna fékk ég en var beðin um að byrja á því að leysa af hjúkrunarfræðinginn á Þórshöfn á Langanesi í 6 vikur þegar hún færi í sumarfrí. Ég ákvað að láta slag standa þótt ég hefði aldrei á Þórshöfn komið og hafði því ekki mikla hugmynd um hvað ég væri að taka að mér. Það kom sér því vel að ég gat farið eina viku til Þórshafnar sem hluta af verknáminu á heilsugæslusviðinu og kynnst staðnum aðeins. Eftir útskriftina um vorið fékk ég að vera nokkrar vaktir á bráðamóttökunni í Fossvogi til að skóla mig aðeins til í bráðatilfellum áður en ég færi til Þórshafnar. Þar sá ég margs konar tilfelli sem ég hafði aldrei séð áður og fékk frábæra tilsögn og góð ráð. Á Þórshöfn og nágrenni búa rúmlega 400 manns. Þar er vel búin heilsugæslustöð og læknir á staðnum. Ég átti að sinna hefðbundnum heilsugæsluverkum, eins og heimahjúkrun, lyfjatiltektum, aðstoða á skiptistofu og sinna hverju því sem upp á gat komið. Auk þess átti ég að hafa umsjón með öldrunarheimili einn dag í viku og þess utan ef eitthvað sérstakt kom upp á. Ég mætti á sunnudagskvöldi spennt yfir því sem koma skyldi og daginn eftir var ég með hjúkrunarfræðingi fram að hádegi. Þá fékk ég lyklana afhenta og var orðin sjálfstæður hjúkrunarfræðingur með rúmlega vikugamalt hjúkrunarleyfi. Ég var nú bara nokkuð roggin með mig og alveg staðráðin í að standa mig. Það sem ég ekki vissi fyrr en þennan dag var að það var enginn læknir á staðnum og yrði ekki fyrstu vikuna mína. Hann hélt til á Raufarhöfn sem er um það bil 45 mínútna akstur í burtu. Mér leist ekki alveg á það svona í fyrstu og kláraði þennan fyrsta vinnudag með nokkur fiðrildi í maganum. Eftir vinnudaginn buðu krakkar úr sveitinni mér á hestbak. Það voru bestu móttökur sem ég gat fengið, bláókunnugt fólk að bjóða mér á bak. Reiðtúrnum var rétt lokið þegar vinnusíminn minn hringdi því kona hafði slasað sig. Ég dreif mig að skoða það mál og leysti það í samráði við lækninn á Raufarhöfn. Ég var rétt komin heim þegar síminn hringdi aftur og maður hafði skorið sig í andliti. Þessi tilfelli gengu vel fyrir sig í samráði við lækninn og ég fór í háttinn um kvöldið dösuð og hissa yfir því hvað væri mikið að gera á svona litlum stað. Dagurinn á eftir var mjög hefðbundinn þar til venjulegum vinnutíma var lokið. Þá var slysaútkall sem enn fór vel en ég var nú orðin svolítið stressuð yfir ábyrgðinni sem ég bar. Um Edda Björg Sverrisdóttir er hjúkrunarfræðingur á sjúkrasviði við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík og við Reyksímann 8006030. nóttina, aðra nóttina mína á Þórshöfn, hringdi starfsmaður af öldrunarheimilinu og sagði mér að íbúi þar væri eitthvað skrítinn. Ég hraðaði mér yfir til þeirra og þegar ég kom að einstaklingnum var hann hættur að anda og við nánari skoðun að fara í hjartastopp. Ég hafði aldrei séð manneskju í hjartastoppi eða orðið vitni að viðbrögðum við því og 45 mínútur í lækninn. Ég gerði mitt besta en það fór þó svo að stuttu eftir að læknirinn kom var sjúklingurinn úrskurðaður látinn. Þegar ég kom heim í háttinn undir morguninn ætlaði ég aldrei að geta sofnað. Fleira hafði gerst á þessum fyrstu tveim dögum en mig hafði órað fyrir þegar ég réð mig í þessa vinnu. Vikurnar, sem á eftir komu, voru ekki alveg svona viðburðaríkar en það var mikið að gera og mjög lærdómsríkt. Ég minnist þess ekki að hafa á einhverjum tímapunkti fundist ég ekki ráða við aðstæður. En þegar ég lít til baka núna átta árum síðar finnst mér hálfglannalegt að senda óharðnaðan hjúkrunarfræðing einan á afskekktan stað. Mér þætti líka gaman að vita hvað íbúum á smærri stöðum úti á landi finnst um það að reynslulítill hjúkrunarfræðingur sé einn á vakt. Á móti var þetta ómetanleg reynsla. Ég varð sjálfstæðari bæði í vinnubrögðum og samskiptum við fólk. Fyrir það er ég óendanleg þakklát. Ég hvet alla sem fá tækifæri til að vinna sjálfstætt á landsbyggðinni að grípa það, það er gaman að koma sjálfri sér á óvart. Ég skora á Arnrúnu Höllu Arnórsdóttur, hjúkrunarfræðing við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki, að skrifa næsta þankastrik. ÞANKASTRIK AÐ ÖÐLAST SJÁLFSTÆÐI Í VINNU Eftir að ég útskifaðist sem hjúkrunarfræðingur fékk ég vinnu á litlum stað úti á landi. Vinnan krafðist mikils sjálfstæðis og mig langar að segja frá fyrstu dögunum.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.