Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Side 30
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201126
hjúkrun en áður. Breytingar hafa orðið
í samsetningu mannaflans og verkefni
að einhverju leyti verið færð á milli
starfsstétta. Hlutfall hjúkrunarfræðinga af
mannafla á bráðadeildum hefur hækkað.
Meiri stöðugleiki er í mannafla en fyrr og
starfsmannavelta hefur víðast hvar lækkað
umtalsvert. Það eitt og sér ætti að leiða
til betri þjónustu og meiri gæða en áður.
Á hjúkrunarheimilum, þar sem laun eru
allt að 80% af rekstrarkostnaði, hafa
stjórnendur aftur á móti freistast til þess
að minnka hlutfall hjúkrunarfræðinga
af mannaflanum en auka hlutfall minna
menntaðra og lægra launaðra starfsmanna.
Slíkar breytingar eru eingöngu gerðar á
fjárhagslegum forsendum og ég er hrædd
um að í fæstum tilfellum hafi áhrif þessa
á gæði þjónustunnar og öryggi hinna
öldruðu verið metið.
Miklar breytingar hafa átt sér stað á
Landspítalanum. Skipulagi og skipuriti
hefur verið breytt. Í nýju skipuriti eru
þrjú stjórnunarstig í stað fjögurra áður.
Markmiðið er að stytta boðleiðir og stuðla
að dreifstýringu þannig að ákvarðanataka
verði sem næst þeim sem spítalinn þjónar.
Stjórnendum í hjúkrun hefur fækkað
meira en hjá öðrum fagstéttum við
þessarar skipulagsbreytingar. Það
skýrist af fækkun hjúkrunardeildarstjóra
við sameiningu deilda. Engu að síður
geta hjúkrunardeildarstjórar haft mikil
áhrif enda um öflugt stjórnunarstarf
að ræða, mitt í starfseminni þar sem
hjúkrun er veitt. Hjúkrunardeildarstjórar
hafa mikil áhrif á þróun hjúkrunar og
starfs þróun hjúkrunarfræðinga. Þeir
ákveða samsetningu mönnunar með
tilliti til þarfa skjólstæðinganna á hverjum
tíma og áherslna í faginu. Þeir þurfa
að forgangs raða í samræmi við umfang
starf seminnar en einnig í samræmi við
fjárlög. Hjúkrunardeildarstjórar geta því
haft mikil völd.
Í þessu sambandi er rétt að benda á
að lagalegur grundvöllur hjúkrunar á
Íslandi er sterkur. Sjálfræði (autonomy)
hjúkrunarfræðinga hefur verið lögbundið
frá 1978 og með nýjum lögum um
heilbrigðisþjónustu frá 2007 var það
styrkt enn frekar. Í nýju lögunum er
heilbrigðiskerfið skilgreint þannig að það
hvíli á tveimur meginstoðum, hjúkrun og
lækningum. Á öllum heilbrigðisstofnunum
skulu vera starfandi framkvæmdastjórar
hjúkrunar og framkvæmdastjórar
lækninga, auk forstjóra. Auk þess kveða
lögin á um að á sjúkradeildum beri
hjúkrunar deildarstjórar faglega ábyrgð á
þeirri þjónustu sem þar er veitt. Sam
kvæmt lögum bera því hjúkrunar fræðingar
á Íslandi fulla faglega ábyrgð á hjúkrun.
Áhrif efnahagskreppunnar á
heilbrigðisstarfsmenn á Íslandi
Á Íslandi voru 855 hjúkrunarfræðingar
starfandi á hverja 100.000 íbúa árið
2008, samkvæmt Health Statistics
in the Nordic Countries. Það eru færri
hjúkrunarfræðingar en á hinum Norður
löndunum. Læknar á Íslandi voru aftur
á móti næstflestir á Norðurlöndunum
eða 372 á hverja 100.000 íbúa. Miklar
breytingar hafa hins vegar orðið á fjölda
lækna á Íslandi frá efnahagshruninu
2008. Læknum starfandi á Íslandi hefur
fækkað um 7,5% frá árinu 2008 og nú
starfar þriðjungur íslenskra lækna erlendis
samkvæmt upplýsingum frá Læknafélagi
Íslands. Undanfarin misseri hefur gengið
erfiðlega að fá unga sérfræðinga aftur
til landsins að námi loknu. Stafar það
fyrst og fremst af lægri launum lækna á
Íslandi en á hinum Norðurlöndunum og
í Bandaríkjunum, þar sem flestir læknar
ljúka sérfræðinámi, en einnig fælir óvissa
og sífelldar breytingar á heilbrigðiskerfinu
þá frá því að koma heim. Sérgreinar
læknisfræðinnar eru yfir 40 og því augljóst
að fáir sérfræðingar eru í hverri sérgrein í
jafnlitlu heilbrigðiskerfi og á Íslandi. Fækkun
lækna er því farin að ógna þjónustu í
ákveðnum sérgreinum. Verulegur vandi
er að skapast í heilsugæslunni þar sem
læknar fást ekki til starfa. Læknar hafa
áhyggjur af, og stjórnvöld ættu að gera
það líka, að ný þekking berist ekki lengur
til landsins og að álagið vaxi sífellt á þá
lækna sem eru í starfi.
Hvað hjúkrunarfræðinga varðar eru tölur
um landflótta ekki jafnskýrar. Vikulegar
fyrirspurnir til FÍH gefa þó til kynna að
fjöldi hjúkrunarfræðinga sé að búa sig
undir að fara til starfa erlendis, til lengri
eða skemmri tíma.
Um mitt ár 2008 mat FÍH það svo að um
20% skortur væri á hjúkrunarfræðingum
á Íslandi. Nú er hins vegar atvinnuleysi
meðal hjúkrunarfræðinga, þó aðeins um
1%, en almennt atvinnuleysi á Íslandi er
um 78%. Segja má að á Íslandi eins og
víða annars staðar hafi efnahagskreppan
sett nokkurs konar plástur á áratuga
manneklu í hjúkrun. Engu að síður verður
að halda því til haga að nærri fjórðungur
starfandi hjúkrunarfræðinga á Íslandi er
á aldursbilinu 5564 ára og nálgast því
eftirlaunaaldur. Meðalaldur hjúkrunar
fræðinga við töku lífeyris hefur alllengi
Elsa bíður eftir að flytja erindi sitt.