Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Qupperneq 41
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 37
Hlutverk hjúkrunarfræðinganna var
að veita þeim sem höfðu verið fluttir
burt af hættusvæðinu aðstoð allan
sólarhringnum. Þeir mátu ástand
fólksins, veittu fyrstu hjálp eftir þörfum
og komu fólki áfram á sjúkrahús eða
heilsugæslustöð þegar svo bar undir.
Einnig sinntu þeir fræðslu um sóttvarnir
og gerðu það sem þeir gátu til þess að
bæta hreinlætisaðstöðu, sótthreinsa og
koma þannig í veg fyrir sýkingar. Hlutverk
þeirra var einnig að safna upplýsingum
um ástandið og koma á framfæri við
yfirvöld.
Vatnsforðinn var stórt vandamál en
flóðbylgjan bar með sér alls konar óhreindi
sem svo urðu eftir í vatnsbólum. Óhreint
vatn, til dæmis úr sundlaugum, var notað
til þess að sturta niður í klósett og þess
háttar. Á mörgum söfnunarsvæðum,
eins og skólum og leikfimissölum, höfðu
rúður brotnað og fyrir bragðið var hitinn
innanhúss mikill.
Ástandið í Japan var eindæma flókið og
erfitt fyrir hjálparstarfsmenn. Hús í Japan
eru vel byggð og hefði jarðskjálftinn einn
og sér líklega verið vel viðráðanlegur.
Hann átti hins vegar upptök sín úti á sjó
og því fylgdi honum mjög öflug flóðbylgja.
Ofan á það bættist kjarnorkuslys þegar
vatn flæddi inn í kjarnorkuver. Japanska
hjúkrunarfélagið brást við þessu meðal
annars með því að búa til fræðslumyndir
um geislavirkni handa sjálfboðaliðunum.
Með aðstoð Alþjóðaráðs hjúkrunar
fræðinga var komið af stað alþjóðlegri
söfnun sem gekk vel. Mörg hjúkrunarfélög
í heiminum lögðu hönd á plóg. Söfnuninni
var lokið í júní sl. en þá hafði safnast nóg
til þess að borga rúturnar sem notaðar
voru til þess að koma sjálfboðaliðum á
vettvang.
Hjúkrunarfélagið í Japan stendur nú
fyrir könnun á aðstæðum félagsmanna
í þeim þremur héruðum sem urðu
fyrir jarðskjálftanum. Kannað er öryggi
þeirra, hvort þeir hafa vinnu og hvernig
vinnuaðstæður eru.
Viðbragðsáætlun japanska
hjúkrunarfélagsins
Eftir jarðskjálftann í Kobe 1995 bjó
hjúkrunar félagið til viðbragðskerfi við
ham förum. Yfirstjórn er í höndum höfuð
stöðva félagsins í Tókýó en hver svæðis
deildanna 47 sér um að búa til viðbragðs
áætlun fyrir sitt hérað og leggja til
mannafla. Um 4.800 hjúkrunarfræðingar
hafa skráð sig sem sjálfboðaliðar. Þeir
hafa fengið þjálfun í hamfarahjúkrun og
þurfa að taka þátt í æfingu einu sinni
á ári. Hlutverk þeirra er að leysa af
hjúkrunarfræðinga sem vinna vanalega
á svæðinu þar sem hamfarir hafa átt sig
stað. Sjálfboðaliðarnir vinna yfirleitt í fjóra
daga, að ferðadögum meðtöldum.
Hver svæðisdeild getur ákveðið að leysa
úr minni hamförum á eigin spýtur, leita til
nágrannahéraða eða leita til hjúkrunar
félagsins. Á seinna stiginu taka höfuð
stöðvarnar að sér viðbragðs stjórnina.
Í kjölfar jarðskjálftans hefur japanska
hjúkrunarfélagið einnig opnað skrifstofu
sem mun aðstoða fólk við að koma lífinu
í eðlilegt horf.
Sjálfboðaliðar leggja af stað
frá skrifstofum japanska
hjúkrunarfélagsins.