Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Page 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Page 47
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 43 Í tengslum við heilsuátak félagsins síðastliðinn vetur var hjúkrunarfræðingum boðið heilsueflingarnámskeiðið Veljum vellíðan (8 vikur fyrir vellíðan) sem var í umsjón Sólfríðar Guðmundsdóttur. Haldin voru þrjú námskeið í Reykjavík, eitt á Akureyri og eitt á Egilsstöðum. Alls sóttu 80 félagsmenn þessi námskeið. Í framhaldi af þeim hélt Sólfríður leiðbeinendanámskeið fyrir hjúkrunarfræðinga sem vildu verða heilsuboðar og ráðgjafar í samfélaginu. Tólf hjúkrunarfræðingar sóttu það námskeið. Hið sívinsæla námskeið Guðbjargar Pálsdóttur hjúkrunarfræðings um sár og sárameðferð var haldið í nóvember sl. og var það fullsetið. Stjórnarmenn og starfsfólk félagsins sóttu námskeið Sigríðar Arnardóttur Framsækni – að tjá sig af öryggi. Þar fengu þátttakendur þjálfun í framsögn og fengu meðal annars að æfa sig fyrir framan upptökuvél. Í framhaldinu var fjórum stjórnarmönnum félagsins boðið sem viðmælendum í útvarpsþátt Sirrýjar á sunnudagsmorgnum og einn fór í sjónvarpsviðtal á RÚV. Til að ýta undir og auðvelda hjúkrunarfræðingum að skrifa í blöðin var haldið námskeið þar sem skapandi skrif og sagnamennska voru í aðalhlutverki. Námskeiðið kallaðist Næring í sögunni og var haldið af Þorvaldi Þorsteinssyni. Ellefu félagsmenn sóttu námskeiðið og var góður rómur gerður að því. Í framhaldi af námskeiðinu hafa þátttakendur hist og stutt hverjir aðra við skapandi skrif. Í lok vetrar voru haldin tvö námskeið sem bæði fjölluðu um réttindi og kjör félagsmanna. Annað þeirra var Hver er sinnar gæfu smiður: Að standa með sjálfum sér á umbrotatímum. Hitt nefndist Við starfslok og var ætlað hjúkrunarfræðingum sem eru að því komnir að fara á lífeyri eða hafa hafið töku lífeyris. Námskeiðið, sem var haldið í samvinnu fagsviðs og kjara­ og réttindasviðs, var vel sótt og var ákveðið að halda slíkt námskeið árlega héðan í frá. Alls sóttu 206 hjúkrunarfræðingar námskeiðin sem í boði voru síðastliðinn vetur eða tæp 8% virkra félagsmanna. Námskeið vetrarins Fagsvið heldur áfram að bjóða félags mönnum námskeið í vetur. Að þessu sinni er hjúkrunarfræðingum boðið að halda námskeið fyrir félagsmenn og mun félagið líkt og síðasta vetur niðurgreiða þátttökugjöldin með því að leggja til rekstrarkostnað sem annars færi í þátttökugjaldið. Á haust misseri er félagið í samstarfi við Bráðaskólann sem er starfræktur af þremur svæfingahjúkrunarfræðingum og einum gjörgæsluhjúkrunarfræðingi. Skólinn skipuleggur tvö námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga, námskeið í bráða hjálp barna, sem haldið verður í október, og bráðahjálp fullorðinna í nóvember. Námskeiðið í bráðahjálp barna er sérstaklega sniðið að þörfum foreldra með ung börn og eru makar hjúkrunarfræðinga boðnir velkomnir. Á námskeiðinu fer fram kennsla í viðbrögðum við bráðaaðstæðum þar sem börn eiga í hlut, meðal annars slysum, bráðum veikindum og endurlífgun. Námskeiðið í bráðahjálp fullorðinna er sérstaklega sniðið að þörfum hjúkrunarfræðinga. Tveggja daga námskeið um samskipti verður haldið í október. Námskeiðið heldur Arnlaug Björg Hálfdanardóttir, hjúkrunarfræðingur og meistari í heimspekilegri markþjálfun frá Copenhagen Coaching Center. Arnlaug hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í Danmörku í mörg ár þar sem aðaláhersla hefur verið lögð á samskipti á sjúkrahúsum og stofnunum. Námskeið Guðbjargar Pálsdóttur um sár og sárameðferð verður endurtekið í nóvember og þá mun kjara­ og réttindasvið félagsins halda námskeið um laun og kjör í Reykjavík og á Akureyri í október. Námskeiðin eru auglýst á vefsvæði félagsins, hjukrun.is, og þar er hægt að skrá sig. Hafinn er undirbúningur vorannar. Hjúkrunarfræðingar, sem áhuga hafa á að halda námskeið eða koma með tillögur að námskeiðum, eru hvattir til að hafa samband við Aðalbjörgu, sviðstjóra fagsviðs FÍH. 11 nýjar fræðigreinar í ráðstefnublaði Nýlega kom út aukatölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga í tilefni ráð- stefnunar Hjúkrun 2011. Í því er að finna 11 nýjar fræðigreinar. Þær voru allar skrifaðar upp úr erindum á ráð- stefnunni. Tölublaðið var einungis prentað í 350 eintökum og dreift meðal ráðstefnu gesta en allar greinarnar eru aðgengilegar á vef tímaritsins. Efnistök eru mjög fjölbreytt. Til dæmis er grein um samvinnu í heimahjúkrun aldraðra og önnur um eftirlit með nýburum. Tvær greinar fjalla um starfs aðstæður hjúkrunarfræðinga og tvær eru aðferðafræðilegar en þær fjalla um forprófun á matstæki. Einnig eru greinar um tóbaksvarnir og um hjúkrunar greiningar. Sagt er frá stuðnings viðtölum við fjölskyldur einstaklinga með heila bilun. Þá eru greinar um líðan stóma þega og um reynslu ungra mæðra. Greinasafn þetta er verulegt framlag til hjúkrunarfræðanna. Það er í fyrsta sinn sem íslensk hjúkrunarráðstefna gefur af sér greinasafn og ekki ólíklegt að leikurinn verði endurtekinn á Hjúkrun 2013. Fr ét ta pu nk tu r

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.