Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Side 49
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 45
Einstaklingsmiðuð hjúkrun
Megintilgangur SE skiptist í þrjá þætti sem
þó eru allir hver öðrum háðir. Sá fyrsti er
einstaklingsmiðuð hjúkrun. Með þessari
þjónustu er lögð áhersla á „sjúklinginn
sem einstakling“ og gerð krafa til
þess að sjúklingurinn sé í brennidepli
hjá öllum aðilum heilbrigðisteymisins. Í
einstaklingsmiðaðri hjúkrun er tekið tillit
til sjúklinganna, notenda þjónustunnar og
aðstandenda þeirra í allri ákvarðanatöku
og séð til þess að þeir fái aðstoð
við að taka upplýstar ákvarðanir um
meðferð og umönnun þannig að þeim
finnist þeir hafa fengið þjónustu við
hæfi. Einstaklingsmiðuð hjúkrun felur í
sér samkennd, tillitssemi og virðingu
fyrir reisn einstaklingsins auk þess sem
áhersla er lögð á að:
• þekkja sjúklinginn sem einstakling,
sem og gildi hans, skoðanir og
langanir, heilsufarslegar og félagslegar
þarfir og óskir og gera honum kleift að
velja sérstaka umönnun og þjónustu til
að fullnægja þeim þörfum og óskum,
• veita sérsniðnar, gagnreyndar
upplýsingar og aðstoð við að skilja
tæknilegar upplýsingar, niðurstöður
og flókin hugtök og stuðla þannig að
sjálfstæði og sjálfsforræði sjúklingsins,
• deila töku ákvarðana með sjúklingnum
og heilbrigðisteyminu frekar en að
stjórna sjúklingnum,
• tala máli skjólstæðingsins ef ein
staklingurinn er ekki fær um að gera
það sjálfur,
• framkvæma samfellt mat til að tryggja
að einstaklingurinn haldi áfram að fá
viðeigandi umönnun og þjónustu. Í
þessu felst að hvetja, hlusta og
bregðast við ábendingum sjúklinga og
notenda þjónustunnar.
McCormack og McCance (2010) hafa
unnið að frekari rannsóknum á ein
staklings miðaðri hjúkrun, þar með talið
mótun nauðsynlegra vísa til að leggja mat
á reynslu af einstaklingsmiðaðri hjúkrun.
Árangursrík hjúkrun
Annar megintilgangur SE er árangursrík
hjúkrun. Í árangursríkri hjúkrun byggir
hjúkr unar fræðingurinn störf sín á gagn
reyndri þekkingu og sýnir skilvirkni í
vinnu brögðum, hvort heldur sem einstakl
ingur eða sem hluti teymis. Rannsóknir
á yfirfærslu og beitingu þekkingar
hafa leitt í ljós að heilbrigðisstarfsfólk
og heilbrigðisteymi þurfa aðstoð við
að beita vísindareynslu í starfi (Kitson
o.fl., 2008) sem og við að samþætta
nýjustu vísindaþekkingu við eigin
þekkingu sjúklinganna, faglega reynslu
meðferðaraðila og þekkingu og reynslu
af nærumhverfinu (RycroftMalone o.fl.,
2004; RycroftMalone, 2004). Það eru
mörg ljón á veginum þegar kemur að
því að nýta niðurstöður rannsókna í
starfi. Alþjóðlegar rannsóknir í tengslum
við PARIHSverkefnið (Promoting
Action on Research Implementation
in Health Services) hafa sýnt fram á
að fagleg leiðsögn á vinnustað og
hjúkrunarumhverfið (stofnanabragur,
forysta og gildismat) eru mikilvægir
áhrifaþættir í þessu sambandi (Rycroft
Malone o.fl., 2004; RycroftMalone,
2004).
Skilvirk hjúkrun
Þriðji megintilgangur SE er að efla vitund
um skilvirkni sem viðheldur grund vallar
gildum einstaklingsmiðaðrar, öruggrar og
árangursríkrar hjúkrunar af hálfu einstakra
starfsmanna, teyma og stofnana. Mynd 1
sýnir dæmi um skilvirkan stofnana brag
þar sem allir geta vaxið og blómstrað
í fjölbreytilegu umhverfi. Hugtakið að
blómstra er nú notað um árangurinn af
öllum megin þáttum SE í þeim skilningi að
í skilvirku umhverfi á vinnustað blómstri
allir – sjúklingarnir jafnt sem starfsfólkið.
Hinum þríþætta tilgangi SE er ekki náð
af tilviljun. Til að hrinda honum í fram
kvæmd er þörf á að beita ákveðnum
grundvallarreglum og vinnuaðferðum.
Vegferð í átt að SE gæti til dæmis hafist á
því að kanna sameiginlegar skoðanir á því
Mynd 1. Umhverfi þar sem allt vex og blómstrar.
Kim Manley
Dr. Kim Manley hefur langa reynslu sem hjúkrunarkennari og rann sakandi. Hún var þar til nýlega kennslu- og þróunarstjóri
hjá Royal College of Nursing (RCN) sem er breska hjúkrunarfélagið. Hún hefur alþjóðlega reynslu af því að aðstoða við að
móta stofnanabrag í heilbrigðisþjónustu og er sér fræðingur í starfendaeflingu og námi á vinnustaðnum. Þá hefur hún einnig
mikinn áhuga á teymisvinnu og sam vinnu heilbrigðisstétta.
Í starfinu hjá RCN var Kim ábyrg fyrir að móta nýjar aðferðir við að læra í starfi og bæta þjónustu við sjúklinga. Í því fólst
meðal annars að beita gagnreyndri þekkingu, útbúa hæfnismat og staðla og fylgjast með gæðastarfi. Hún sá einnig um
kennsluefni á vef RCN og í tímaritinu Nursing Standard. Þá hefur hún verið gestakennari við háskólana í Bournemouth og
Brighton. Hún er nú gestakennari við Christ Church-háskólann í Canterbury og forstöðukona miðstöðvar um starfendaeflingu
þar við skólann.
Árið 2000 fékk Kim heiðursmerki Breska heimsveldisins fyrir afbragðs þjónustu við sjúklinga.