Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Blaðsíða 52
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 201148
ÚTDRÁTTUR
Mannauður í hjúkrun er dýrmætur. Síðustu áratugi hefur þörf fyrir
heilbrigðisstarfsfólk vaxið stöðugt og krafan um nýtingu fjármuna
og mannauðs orðið háværari. Leita þarf leiða til að nýta betur
þann mannafla sem fyrir er í heilbrigðisþjónustunni. Markmið
þessarar rannsóknar, sem gerð er grein fyrir hér, var að kanna
reynslu sjúkraliða af vinnu og vinnuumhverfi sínu og hvað betur
má fara svo veita megi sjúklingum skilvirkari hjúkrun. Notuð var
eigindleg rannsóknaraðferð þar sem myndaðir voru þrír rýnihópar
og rætt var við 21 sjúkraliða á bráðalegudeildum Landspítala.
Greind voru þrjú þemu sem lýsa reyslu þátttakenda: 1) samstarf
og nýting þekkingar; 2) styðjandi vinnuumhverfi; 3) umfang starfs.
Þær tilvísanir, sem fram komu í svörum þátttakenda og liggja til
grundvallar þemunum, voru flokkaðar í: a) samstarf, b) verkferla,
c) húsnæði, d) aðföng, e) sjúklinga. Þátttakendur skynjuðu álag
í vinnu sinni og bentu á þætti sem betur mættu fara. Þeir lýstu
misræmi í starfskröfum eftir því hvaða hjúkrunarfræðingur var á
vakt og fannst að vinnan væri ekki í fullu samræmi við nám þeirra.
Þátttakendum fannst skorta á stoðþjónustu þar sem þeir eyddu
oft miklum tíma í að flytja sjúklinga á milli deilda, svara í síma og
vinna í býtibúri, allt verkefni sem í flestum tilfellum krefjast ekki
fagþekkingar sjúkraliða. Töluverður tími fór í að leita að tækjum
til aðstoðar við umönnun sjúklinga. Skynjun þátttakenda var að
hjúkrunarþyngd væri að aukast þar sem sjúklingar eru eldri, veikari,
eiga oftar við fíkniefnavanda og ofþyngd að stríða og eru oftar
fórnarlömb ofbeldis en áður. Flestir þátttakendur voru sammála
um að margt í vinnuumhverfinu væri jákvætt og að stuðningur
við starfsfólk væri töluverður. Niðurstöður rannsóknarinnar benda
til þess að bæta megi vinnu og vinnuumhverfi sjúkraliða á
bráðalegudeildum með tilliti til samstarfs og nýtingar mannaflans,
styrkjandi vinnuumhverfis og umfangs og veikinda sjúklinga.
Lykilorð: Vinna, vinnuumhverfi, sjúkraliði.
INNGANGUR
Til að veita gæðaheilbrigðisþjónustu þarf vel menntað og hæft
starfsfólk. Samhliða því þarf þjónustan að vera skipulögð og skilvirk
þannig að þekking og færni hvers starfsmanns og faghóps fái notið
sín (Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytið, Landlæknisembættið,
2007; Institute of Medicine, 2011; International Council of Nurses
(ICN), 2006). Heilbrigðiskerfinu hefur staðið ógn af vaxandi þörf og
skorti á heilbrigðismenntuðu starfsfólki á síðastliðnum áratugum.
Síður en svo hefur dregið úr þeirri kröfu með yfirstandandi
alþjóðlegri efnahagslægð. Þar sem skortur er á heilbrigðisstarfsfólki
á alþjóðavettvangi og fé af skornum skammti hvetur Alþjóðaráð
hjúkrunarfræðinga (ICN) þjóðir heims til að leita leiða svo nýta megi
betur þá þekkingu og mannafla sem er til staðar. Varað er við því
að leysa vandann með því að búa til nýja hópa aðstoðarfólks í
heilbrigðisþjónustu eða nýjar heilbrigðisstéttir.
Alda Ásgeirsdóttir, Landspítala og Háskólanum í Reykjavík
Helga Bragadóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala
RANNSÓKN Á VINNU OG VINNUUMHVERFI SJÚKRALIÐA
Á BRÁÐALEGUDEILDUM LANDSPÍTALA
ENGLISH SUMMARY
Ásgeirsdóttir, A., and Bragadóttir, H.
The Icelandic Journal of Nursing (2011), 87 (5), 4855
A STUDY ON THE WORK AND WORK
ENVIRONMENT OF PRACTICAL NURSES IN
ACUTE CARE INPATIENT UNITS AT LANDSPITALI
UNIVERSITY HOSPITAL
Human resources in nursing are valuable. The need for
health care professionals has been growing steadily in
recent decades, with increasing demand for the efficient use
of human and monetary resources. Therefore it is important
to look for ways for better use of the existing manpower in
health services. The aim of this study was to explore the
experience of practical nurses (PNs) regarding their work
and work environment and identify potential ways to provide
patients with better and safer nursing. Qualitative research
methods were used with three focus groups, with a total
of 21 PNs from Landspitali University Hospital acute care
inpatient units. Three themes were identified from the data:
1) collaboration and the knowledge utilisation; 2) supportive
work environment; 3) extent of work. Underlying topics
from participants’ discussions were categorized into: a)
collaboration, b) workflow, c) accommodation, d) resources,
e) patients. Participants perceived a heavy workload
and identified factors which can be improved. To some
extent, participants expressed varying work requirements
depending on the registered nurse (RN) on duty and some
felt that their work did not conform to their education. They
also felt a lack of support services, as they spent a lot of
their time transporting patients between units, answering the
telephone and working in the pantry; all work that in most
cases does not require the knowledge of PNs. A significant
amount of time was spent looking for equipment for patient
care. Participants perceived an increased workload during
past years, with patients getting older, sicker, and more
often addicted or overweight. They also had to take care of
a growing number of victims of violence. Most participants
agreed that many things in the work environment were
positive and that staff support was considerable. The results
indicate that the work and work environment of PNs can
be improved in acute care inpatient units with regards to
collaboration, supportive work environment and patient load.
Keywords: Work, work environment, practical nurse.
Correspondance: aldaasg63@gmail.com.