Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 63

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2011, Síða 63
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 87. árg. 2011 59 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER hvort tímabil, eins og biðtími í rannsóknarferlinu, hafi áhrif eða ekki, með öðrum orðum að safna mikilvægum upplýsingum á mismunandi tímum í rannsóknarferlinu en slíkar upplýsingar geta sagt mikið um heildartímann (Byron og Kenward, 1989). Framkvæmd svæðameðferðar Svæðameðferðaráætlun var sett fram af reyndum kennara í svæðameðferð. Áherslusvæði í meðferð voru samkvæmt meðferðaráætlun svæði, orkubrautir og punktar sem taldir eru hafa áhrif á þunglyndi og kvíða. Auk þess fengu þátttakendur heilnudd á fætur, en í því felst meðhöndlun á öllum líffærakerfum líkamans, og hringnudd á fætur sem í fólst yfirferð yfir taugaviðbragðssvæði hryggjar (Alderson, 2007; Dougans, 2001; Kristján Jóhannesson, 1994). Ákveðinn hluti áherslusvæða og punkta á orkubrautum var tekinn fyrir í hverri meðferð: miðtaugakerfi (heili og mæna), innkirtlakerfi (heiladingull, heilaköngull, skjaldkirtill, hóstarkirtill, bris, nýrnahettur og kynkirtlar), möndlungur, slökunarsvæði (hjarta, lungu, þind og sólarplexus), svæði þekkt fyrir þráláta kvilla og tilfinningasvæði og punktar á innkirtlabraut, gallblöðrubraut, hjartabraut og gollurshússbraut. Hver þátttakandi fékk meðferð í 10 skipti á 8 vikum og tók meðferðin í hvert skipti 50­60 mínútur með hvíld. Græðari eða meðferðaraðili bjó um þátttakanda, hlustaði eftir líðan og ástandi hans og setti það í samhengi við fyrirhugaða meðferð. Í hvert sinn, sem þátttakandi kom í meðferð, voru áherslusvæði og punktar meðhöndlaðir í 30­35 mínútur, síðan var tekið mið af líðan og umkvörtunarefni hvers þátttakanda og hann meðhöndlaður á einstaklingsbundinn hátt. Sex viðurkenndir græðarar veittu meðferð í rannsókninni. Þátttakendur gátu ekki valið um græðara. Matstæki Þunglyndiskvarði Beck. Einkenni þunglyndis voru metin með þunglyndiskvarða Beck (Beck Depression Inventory­II (BDI­II)). Þetta er listi með 21 spurningu sem tekur um það bil 10 mínútur að svara. Þátttakendur svara með því að gefa stig (0­3) sem verða samtals á bilinu 0­63 stig, fleiri stig lýsa meira þunglyndi. Þunglyndiskvarðinn er staðlaður spurningalisti sem hefur verið í notkun í 35 ár. Íslensk þýðing á BDI­II var notuð í rannsókninni en Jón Friðrik Sigurðsson og samstarfsmenn hans þýddu og endurgerðu kvarðann með leyfi útgefanda (Jakob Smári o.fl., 2008). Í þessari rannsókn var notuð nýjasta útgáfa kvarðans, BDI­ II, sem er endurskoðuð útgáfa upprunalega kvarðans og var gefin út árið 1996 (Nezu o.fl., 2000). Þær prófanir, sem gerðar hafa verið á áreiðanleika BDI­II, leiða í ljós alfa­áreiðanleikastuðul upp á 0,92­0,93. Í þessari rannsókn mældist alfa­áreiðanleikastuðull þunglyndiskvarða Beck 0,91. Um réttmæti kvarðans er til yfirgripsmikið efni og samanburður við aðra þunglyndiskvarða staðfestir réttmæti hans (Nezu o.fl., 2000). Kvíðakvarði Spielberger. Kvíði var metinn með kvíðakvarða Spielberger (State­Trait Anxiety Inventory (STAI)) (Spielberger, 1983). Kvarðinn skiptist í tvennt og mælir annar hlutinn ástandskvíða og hinn lyndiskvíða. Báðir geyma spurningar með fjögurra punkta jafnbilakvörðum, hver spurning hefur fjóra svarmöguleika sem gefa 1­4 stig, fleiri stig tákna meiri kvíða. Það tekur um það bil 10­15 mínútur að svara spurningalistanum. Ástandskvíði eða stundarkvíði (state anxiety) er sá kvíði sem einstaklingur finnur fyrir á hverju gefnu augnabliki, til dæmis á meðan spurningalistinn er lagður fyrir. Lyndiskvíði (trait anxiety) er stöðugur kvíði sem hefur staðið í lengri tíma og endurspeglar einstaklingsbundin viðbrögð við ástandskvíða þegar ógn er yfirvofandi. Lyndiskvíði gefur einnig til kynna hversu oft og hversu alvarlega ástandskvíða hefur orðið vart og líkurnar á því að hans verði vart í framtíðinni (Spielberger o.fl., 1983). Spielberger­kvarðinn hefur alfa­áreiðanleikastuðul á bilinu 0,83­0,92 (Spielberger o.fl., 1983; Barnes o.fl., 2002). Í þessari rannsókn mældist alfa­áreiðanleikastuðull kvíðakvarða Spielberger 0,73 í heildina en alfa­áreiðanleikastuðull ástandskvíðakvarðans var 0,84 og 0,40 fyrir lyndiskvíðakvarðann. Júlíus Björnsson, sálfræðingur við geðdeild Landspítalans, sá um íslenska þýðingu kvarðans en breytingar gerði Marga Thome, prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ, í samstarfi við 4. árs hjúkrunar­ og sálfræðinema. Bætt var við spurningalistann spurningum um aldur, kyn, hjúskaparstöðu, menntun og starf. Rannsóknarleyfi Vísindasiðanefnd veitti leyfi fyrir rannsókninni (nr. 07­113­S1) og rannsóknin var tilkynnt til Persónuverndar. Framkvæmd gagnasöfnunar Fyrsti höfundur lagði matstæki fyrir þátttakendur og safnaði gögnum á öllum þremur tímaskeiðunum í rannsóknarferli hvers þátttakanda. Rannsóknartímabil stóð frá janúar til ágúst 2008. Tölfræðileg úrvinnsla Notuð var lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði við greiningu gagna sem unnin voru í SPSS­forriti, útgáfu 14. Matstæki rannsóknarinnar voru línuleg aðhvarfsgreining og stikað, parað t­próf (Wilcoxon­próf). Dreifing svara milli hópa var skoðuð með Mann­Whitney­prófi. Ósvöruðum spurningum var gefið meðaltal út frá stigafjölda annarra svara á viðkomandi spurningalista. Marktektarmörk voru sett við p<0,05. Tafla 1. Víxlsnið rannsóknarinnar. Tími 1 8 vikur Tími 2 8 vikur Tími A­hópur Fyrirlögn Meðferð Fyrirlögn Biðtími Fyrirlögn B­hópur Fyrirlögn Biðtími Fyrirlögn Meðferð Fyrirlögn Tími 1, 2 og 3 sýna hvenær spurningalistarnir voru lagðir fyrir þátttakendur. Meðferð var svæðameðferð í 10 skipti.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.