Þjóðmál - 01.06.2012, Síða 7
6 Þjóðmál SUmAR 2012
er þó enginn tími liðinn
síðan þá . . .
strönd
ekki á mælikvarða
þinn þar sem mannsævin
er ein og sama andráin
æ, niðurinn
allar þær öldur sem flætt hafa yfir
þessa einu ævi
síðan þá .
Stuttu áður en þetta hefti Þjóðmála fór í prentun barst sú sorgarfregn frá Ítalíu
að skáldið Jónas Þorbjarnarson hefði orðið
bráðkvaddur og verið jarðsettur þar í landi .
Hann var aðeins rúmlega fimmtugur þegar
hann lést .
Ofangreint ljóð, „Sandur“, er úr annarri
ljóðabók Jónasar, Andartak á jörðu (1992) .
Sú bók var tilnefnd til menningarverðlauna
DV með þeim orðum að Jónas væri kominn
„í fremstu röð ungra íslenskra skálda“ .
Jónas fæddist á Akureyri árið 1960 . Hann
varð fyrir slysi í æsku sem gerði það að
verkum að hann glímdi ævilangt við erfið
an sjúkdóm . En Jónas tókst á við það eins
og annað af karlmennsku . Hann var raunar
hreysti menni hið mesta, þrátt fyrir veikindi
sín, og stundaði m .a . sjó böð af kappi þegar
hann var á Íslandi, en á seinni árum dvaldi
Jónas langdvölum á Ítalíu .
Hann var fjölmenntaður, lærði klassísk
an gítarleik og stundaði háskólanám í
heimspeki, listasögu og frönsku, auk þess
sem hann lauk prófi í sjúkraþjálfun .
Jónas var mjög áhugasamur um stjórn
mál, þótt þess gætti lítt í ljóðagerð hans, og
hafði ákveðnar og vel ígrundaðar skoðanir .
Hann var góður vinur Þjóðmála . Í vorhefti
blaðsins 2008 birtist ljóðið „Bergmál“ úr
væntanlegri ljóðabók hans .
Blessuð sé minning Jónasar Þorbjarnar
sonar .
Jónas Þorbjarnarson
(1960–2012)