Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 53

Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 53
52 Þjóðmál SUmAR 2012 lögum, Bjarni Benediktsson, sagði eitt sinn á fundi, þegar umræðan í efnahagsmálum snerist um það hvernig ástandið væri ef ríkisstjórnin hefði gert þetta eða hitt, að það væri endalaust hægt að segja „Ef og ef og hefði hefði“, en það hefði enga raunverulega þýðingu . Stjórnvöld yrðu að taka afstöðu til raunverulegra viðfangsefna þegar þörf væri á en ekki fyrr . Það væri síðan pólitískt viðfangsefni hvort það hefði gengið vel eða ekki og stjórnmálamenn yrðu að sætta sig við dóm kjósenda í þeim efnum . Sá merki lagamaður Bjarni Benediktsson hefði sennilega aldrei látið sér til hugar komið að eftirmaður hans á stóli for­ sætis ráðherra yrði ákærður og sakfelldur á forsendum „Ef og ef og hefði hefði“­ sjónar miða . Slíkar forsendur og niðurstaða meirihluta landsdóms eru raunar mjög gagn rýnis verðar . Nú, þegar niðurstaða landsdóms liggur fyrir, fer því fjarri að eitthvert uppgjör við „Hrunið“ hafi átt sér stað . II . Landsdómsákæran byggði á því að fyrr­verandi forsætisráðherra hefði bakað sér refsiábyrgð með aðgerðaleysi í átta mán­ uði á árinu 2008, þ .e . frá febrúar til þess tíma að bankahrunið varð . Talað var um van rækslu á starfsskyldum forsætisráðherra gagn vart stórfelldri hættu sem vofði yfir íslensk um fjármálastofnunum og ríkis­ sjóði . Þá var gengið út frá því að ákærða hefði mátt vera kunnugt um þessa hættu . Ákæruliðirnir voru upphaflega sex . Tveim var vísað frá dómi áður en til aðalmeðferðar málsins kom . Af þeim fjórum ákæruliðum sem eftir stóðu var forsætisráðherra sýkn­ aður af þrem, en sakfelldur fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að halda ráðherra fundi um þessi málefni á tímabilinu . Í góðri grein sem Róbert R . Spanó, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, skrifar í Fréttablaðið 15/5 2012 segir hann m .a .: „Meiri­ og minnihlutinn voru aftur á móti einnig sammála því að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að sýna fram á að hugsanlegar athafnir ákærða hefðu getað dregið úr hættunni þannig að skapað hefði refsiábyrgð . Var ráðherrann því með nokkuð sannfærandi rökum sýknaður af þessum hluta ákærunnar .“ Fyrr í greininni vekur prófessor Róbert athygli á því að þess misskilnings hefði gætt í þjóðfélagsumræðunni að skilyrði refsi­ ábyrgðar í þessu tilviki sé, að ákæruvaldinu tækist að sýna fram á að forsætisráðherra hefði beinlínis getað komið í veg fyrir bankahrunið . Þá vekur hann athygli á því að miðað við þau refsiákvæði sem gildi um meint brot af þessu tagi megi refsa þótt ekkert tjón hafi hlotist af verknaði . Svigrúm landsdóms til að sakfella á grund velli huglægra viðhorfa dómara var því mjög rúmt . Landsdómur sýknaði samt Geir H . Haarde af þeim ákæruliðum sem skiptu efnislega máli . Sú niðurstaða dæmir í raun ákærendurna á Alþingi . III . Sakfelling meirihluta landsdóms yfir forsætisráðherra byggir á því að hann hafi látið farast fyrir að hlíta fyrirmælum 17 . gr . stjórnarskrárinnar um að halda ráðherrafundi til að takast á við þann mikla vanda sem honum hafi hlotið að vera ljós frá því í febrúar 2008 . Meirihluti landsdóms gefur sér að hefði slík stefna verið mörkuð megi leiða rök að því að draga hefði mátt úr tjóni sem hlaust af falli bankanna og einnig að greiða hefði mátt úr vanda Glitnis á yfirvegaðri hátt en gert var . Minnihluti landsdóms vildi sýkna Geir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.