Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 90
Þjóðmál SUmAR 2012 89
landsvæði eða 72,19% af 31 . 000 ha landi
Grímsstaða á Fjöllum . Þau stefna að því
að leigja 300 ha eða 1,4% landsins til 99
ára undir mannvirkjagerð . Leigutaki greiði
fyrirfram heildarfjárhæð leigu fyrir allan
tímann, 857 .218 .000 ISK . Leigugjald verði
óafturkræft standi leigusali við samn ings
ákvæði .
Gert er ráð fyrir að 98,6% verði fólk
vang ur, sbr . lög 44/1999 . Sveitarfélögin
skuld binda sig til að heimila ekki frekari
mannvirkjagerð á svæðinu en á 300 ha
svæðinu . Þar verði veitt heimild til að reisa
200 herbergja hótel auk þess sem leigutaki
hafi rétt til umráða og hagnýtingar á
auðlindum og landgæðum til eigin nota en
ekki til endursölu . Þá verði heimiluð afnot
af flugvelli sem er á svæðinu og frekari
uppbygging hans . Þarna verði áfangastaður
með áherslu á útivist, náttúruskoðun, ráð
stefnur og menningu . Leigutaka verði skylt
að græða upp og hlú að sjálfbæru lífríki
svæðisins án þess að hrófla við eða grípa inn
í náttúrulega þróun þess .
Talið er að af þessu leiði 400 heilsársstörf,
en 700 störf á framkvæmdatíma . Leigutaki
muni leggja sig fram um að ráða til starfa
fólk af „upptökusvæði“ fjárfestingarinnar .
Þessi fjárfesting muni skapa nýjan við
skiptamannahóp í íslenskri ferðaþjónustu
og leiða þar með til aukinna heildarumsvifa
greinarinnar . Allir starfsmenn muni vinna
samkvæmt íslenskum lögum, innan
stéttarfélaga og samkvæmt töxtum . Leitast
verði við að fá „passandi“ vinnuafl af
svæðinu . Eignarhald verði alfarið í íslenskum
höndum . Allar framkvæmdir verði að
standast skipulagsreglur og umhverfismat .
Ekki verði traðkað á þeirri ferðaþjón ustu
sem nú er veitt heldur komi nýr mark hópur
til sögunnar sem annars færi til annarra
landa en Íslands .
Í lok máls síns sagði Þorvaldur Lúðvík að
samningum við Huang Nubo væri ólokið
og yrði að ganga til viðræðna við hann á
ofangreindum forsendum en jafnframt
þyrfti að vinna að skipulagi og umhverfis
mati .
Hugmyndir um 300 ha lands til ráðstöfunar sérstaklega fyrir Huang Nubo
og rúmlega 30 .000 hektara fólkvang eru
allt aðrar en þær sem um var rætt árið 2011
þegar hann vildi kaupa 300 ferkílómetra
lands eða allt þetta svæði til ráðstöfunar fyrir
sig . Fleirum en eindregnum andstæðingum
fjárfestinga Huangs á Íslandi þótti hann
hafa verið of stórtækur og spillt fyrir sér .
Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi
hjá utanríkisráðuneytinu, er skólabróðir
Huangs Nubos . Hann kynnti Ísland fyrir
Huang og hefur komið að stjórn sjóðs sem
Huang stofnaði til að stuðla að samstarfi
Íslendinga og Kínverja í þágu ljóðlistar .
Haft var eftir Hjörleifi á visir. is 25 . ágúst
2011 að á næstu þremur til fjórum árum
hygðist Huang Nubo byggja upp 120
herbergja lúxushótel á Grímsstöðum, golf
völl og hestabúgarð og í Reykjavík tvöfalt
stærra lúxushótel . Þá væri hann að spá í flug
félag til að flytja fólk á milli hótelanna . Þetta
ætti að verða heilsársrekstur . Huang sæi fyrir
sér að Ísland yrði næsta ferðamannaparadís
heimsins enda væri hann að tala um tíu til
tuttugu milljarða fjárfestingu .
Hjörleifur skrifaði grein í Fréttablaðið
mið vikudaginn 23 . maí 2012 þar sem hann
kall aði samskipti Íslendinga og Huangs
vegna þessara fjárfestingaráforma hins kín
verska vinar síns „vandræðamál“ . Það ætli
ekki „að verða nein sátt um að Huang og
fyrirtæki hans leigi Grímsstaði, nú þegar
kaupin eru úr sögunni,“ segir Hjörleifur .
Hjörleifur segir „náttúrlega ómögulegt
fyrir metnaðarfullt ferðaþjónustufyrirtæki
að starta sinni starfsemi í illdeilum við
mann og annan“ . Fær Hjörleifur raunar
ekki séð að Huang „hafi neina þörf fyrir