Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 85
84 Þjóðmál SUmAR 2012
Katrínar og benti á að ætlaði Huang Nubo
sér að leigja Grímsstaði á Fjöllum giltu um
það skýr lög . Leigusamningurinn mætti
ekki vera til lengri tíma en þriggja ára eða
hann væri uppsegjanlegur með minna en árs
fyrirvara . Að öðrum kosti þyrfti undanþágu
frá innanríkisráðuneytinu .
Þessi viðvörunarorð Ögmundar Jónas
sonar voru að engu höfð að áskorun iðn
aðar ráðherra .
Viðskiptablaðið sagði frá því 6 . mars 2012 að Bergur Elías Ágústsson, sveit
ar stjóri Norðurþings, hefði fyrir skömmu
verið í Kína þar sem hann fundaði með
Huang Nubo . Sagði blaðið að eftir að
Ögmundur Jónasson synjaði umsókn
Huangs um landakaupin hefði verið efnt til
viðræðna milli sveitarstjórnar Norðurþings
og Huangs, m .a . um að sveitarfélagið keypti
75% hlut jarðarinnar með láni frá Huang
og leigði honum hana . Samningur um kaup
á þessum hluta jarðarinnar hljóðaði upp á
um 800 milljónir króna . Ef af yrði mundi
fjárfesting Huangs Nubos nema nokkrum
milljörðum króna hér á landi .
„Við ætlum að fara yfir þá möguleika
sem eru í stöðunni og ætlum að leggja
fram ákveðna sviðsmynd fyrir alla þá sem
málið varðar . Við stefnum að því að ná fram
niður stöðu um þetta í mánuðinum,“ sagði
Bergur Elías Ágústsson í byrjun mars 2012 .
Hann ætlaði síðar í mars að funda með full
trúum atvinnuþróunarfélaga í Eyjafirði og
Þing eyjarsýslu og fleirum um þær leiðir sem
hann vonaði að opnuðu íslenskar dyr fyrir
Huang Nubo og umsvifamikilli uppbygg
ingu hans á Grímsstöðum á Fjöllum .
„Við þurfum að fá svigrúm til að fá að
vinna þetta vel og faglega . Við munum
sannar lega gera það, ef menn þurfa á ein
hverju að halda þá er það fjárfesting í náttúru
og menn ingar tengdri ferðaþjónustu,“ sagði
Bergur Elías við Viðskiptablaðið .
Samið var við Atvinnuþróunarfélag Eyja
fjarðar (AFE) og Atvinnuþróunar félag Þing
eyinga um að vinna að athugun máls ins . Í
lok mars lá fyrir skýrsla frá félögunum um
uppbyggingu, fjárhagslíkan og fram kvæmd
fjárfestinga Huangs Nubos á Gríms stöðum
á Fjöllum og var hún send til sveitar stjórna
á Norður og Austurlandi .
Á vefsíðu AFE var efni skýrslunnar lýst á
þennan hátt:
Markmið Zhongkun Investments [félags
Huangs Nubos] á Grímsstöðum á Fjöllum
er að byggja þar allt að 100 herbergja hótel
auk ígildi 100 herbergja fjölskylduhúsa,
samtals áætlað byggingarmagn um 20 .000
m2 . Fyrirhuguð uppbygging mun snúa að
ferðaþjónustu og afþreyingu þ .m .t . hesta
mennsku, golfi, laugum og annarri útivist .
Einnig er gert ráð fyrir fjárfestingu í styrk
ingu flugbrautarinnar sem er á jörðinni til
útsýnisflugs auk bifreiða og annarra farar
tækja .
Fyrirtækið mun kappkosta náið og gott
samstarf við aðra landeigendur jarðarinnar
Grímsstaða þ .m .t . íslenska ríkið sem er 25%
eigandi, sveitarfélagið og opinberar stofnanir
sem málið getur varðað s .s . Skipulagsstofnun,
Landgræðsluna, Umhverfisstofnun, Ferða
mála stofu og Vegagerðina samanber drög að
sam starfssamningi fyrirtækisins við íslenska
ríkið, Memorandum of Understanding og
samstarfssamning við sveitarfélagið Norður
þing .
Heildarfjárfesting fyrirtækisins á Gríms
stöðum á næstu árum er áætluð um 100
milljónir evra eða 16 milljarðar íslenskra
króna . Reiknað er með að veitt verði 400
frambúðarstörf, en að sú tala geti numið allt
að 600 á framkvæmdatímanum .
Fyrirtækið hyggst markaðssetja hótelið
sem áfangastað erlendra ferðamanna með
áherslu á útivist, náttúruskoðun, ráðstefnur
og menningu . Gert er ráð fyrir að hér sé að
verulegu leyti um nýjan markhóp í íslenskri
ferðaþjónustu að ræða, sem er líklegur til að
verða til þess að samgöngur til Norður og