Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 30

Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 30
 Þjóðmál SUmAR 2012 29 slíkan aga þarf ekki að skipta um gjaldmiðil til þess að ná fram stöðugleika, eins og vikið er að, að ofan . En jafnvel þó svo að landsmenn tækju upp agaðri vinnubrögð samhliða upptöku erlends gjaldmiðils yrði eftir sem áður mun erfiðara að bregðast við ytri áföllum, en saga liðinnar aldar geymir fjölda slíkra atvika . Til viðbótar bættist nýr óstöðugleikaþáttur við íslenskt efnahagslíf, þegar gengi gjaldmiðilsins, sem yrði fyrir valinu, hækkaði eða lækkaði verulega á móti gjaldmiðlum annarra helstu viðskiptalanda Íslands . Slíkar gengisbreytingar myndu leiða til meiri samdráttar eða þenslu innanlands . Íslendingar yrðu því að venjast því að bregðast við ytri áföllum og innbyrðisbreytingum á gengi erlendra gjaldmiðla með svokallaðri innri gengisfellingu . Greinarhöfundur efast um að landsmenn hafi gert sér fulla grein fyrir hvað innri gengisfelling gæti haft í för með sér fyrir íslenskt samfélag . Við getum horft til evrulandanna til þess að sjá dæmi um hvernig innri gengisfelling er framkvæmd og hver áhrifin geta orðið: Laun lækka, lífeyrisgreiðslur lækka, bætur lækka, atvinnuleysi eykst, fasteignaverð lækkar . Í sjálfu sér er þetta hið sama og Ís­ lend ingar hafa fengið að reyna síðustu fjögur árin, ef forskeytinu „raun“ er bætt framan við flest orðin (þ .e . raunlaun lækka, o .s .frv .) . Munur inn er hins vegar sá, í samanburði við gengis fellingu þjóðargjaldmiðils, að mun meiri raunlækkun lífskjara með innri gengis fellingu þarf til þess að leiðrétta viðskipta jöfnuðinn, dreifingin er ekki eins jöfn yfir samfélagið og það er mun líklegra að víta hringur samdráttar fari af stað, sem standi í vegi fyrir hagvexti . Verst af öllu er atvinnuleysið . Í apríl mæld­ ist atvinnuleysi ungs fólks í Grikklandi og á Spáni 51%, 36% í Portúgal og á Ítalíu og 30% á Írlandi . Líkur eru á að þessar tölur eigi eftir að versna til muna í náinni framtíð . Pólitísku áhrifin hafa m .a . orðið aukinn stuðningur við öfgaflokka í kosningum, svo sem kommúnista og nasista í Grikklandi . Óneitanlega minnir margt á síðustu misserum á efnahagsþróun og pólitíska þróun í Evrópu snemma á fjórða áratugi 20 . aldar, þegar menn fengust við efnahagsvanda uppgjörsins eftir fyrri heimsstyrjöldina og vandann sem fylgdi gullfætinum með innri gengisfellingum . Pólitískar afleiðingar urðu skelfilegasta styrjöld mannkynssögunnar . Innri gengisfelling evrulandanna hefur verið framkvæmd án viðskiptahafta, enda eru frjáls viðskipti með vörur og þjónustu hornsteinn ESB . Íslensk stjórnvöld beittu hins vegar viðskiptahöftum til þess að kalla fram innri gengisfellingu á árunum 1931–1939, þegar gengi krónunnar var fest við sterlingspundið . Í stað þess að gengi krónunnar fengi að fljóta og falla á móti gengi annarra gjaldmiðla var innri gengis felling framkvæmd með víðtækum innflutnings­ höftum og háum tollum á erlendar vörur, aðrar en þær sem stjórnvöld skilgreindu sem brýnustu nauðsynjar . Afleið ingin var ekki aðeins gríðarleg frelsis svipting landsmanna og mikil spilling, heldur leiddu höftin til uppbyggingar óhagkvæmra innlendra fyrirtækja sem aðeins gátu þrifist í skjóli hafta . Lífskjör landsmanna urðu lakari en annars hefði orðið, ef gengi krónunnar hefði tekið mið af viðskiptakjörum . Innri gengisfellingin var að nýju hert eftir síðari heimsstyrjöldina . Nokkuð var losað um inn flutningshöftin á sjötta áratugnum en það var ekki fyrr en um 1960 að snúið var af þessari braut . Mönnum kann að finnast í dag afar ólíklegt að haftastefna fjórða, fimmta og sjötta áratugs síðustu aldar verði nokkurn tíma endurvakin, þar sem allir vita hversu skaðleg hún var samfélaginu og öll hagfræðiþekking mælir gegn slíkum aðgerðum . Það ættu menn ekki að gefa sér . Þrátt fyrir að menn hafi í áratugi vitað og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.