Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 91
90 Þjóðmál SUmAR 2012
Grímsstaðina alla undir sinn rekstur, en
svo virðist sem jörðin sé annað hvort öll
föl eða ekki“ . Finnst Hjörleifi „athugandi
fyrir Huang og hans fólk að láta á það reyna
hvort fá megi lóð út úr Grímsstaðatorfunni
en falast að öðrum kosti eftir jörð af normal
stærð fyrir uppbygginguna“ .
Þá segir Hjörleifur Sveinbjörnsson:
Margt í þessum Grímsstaðamálum er lost in
translation og þá á báða bóga . Það stendur
upp á Huang og samstarfsfólk hans um
fjárfestingar á Íslandi að útskýra hvernig þau
sjá hlutina fyrir sér . Þar hefur mikið vantað upp
á og fyrir bragðið hafa ýmsar bábiljur fengið
vængi . Það þarf að kynna fjárfestingarplön,
útskýra hvernig staðið verður að fyrirhugaðri
uppbyggingu og leggja fram sannfærandi
viðskiptaáætlanir og röksemdir fyrir því að
þessi rekstur fái staðist til lengri tíma litið .
Að öðrum kosti væri það ábyrgðarleysi af
sveitarfélögum á NorðAusturlandi að gambla
með sameiginlega sjóði . Síðast en ekki síst
þarf að fara yfir starfsmannamálin með
stéttarfélögunum á staðnum .
Næsta skref þarf að vera að Huang, eða náið
samstarfsfólk hans í Zhungkunfyrirtækinu,
komi til landsins, fari yfir alla mögulega fleti
á þessu máli og ræði við þá sem að því koma .
Ef vel tekst til getur fjárfesting Huangs orðið
mikil lyftistöng . En þá þurfum við líka öll að
vanda okkur .
Hjörleifur Sveinbjörnsson segir að sveitar
félög „gambli“ eða leiki áhættuspil af
ábyrgðarleysi með sameiginlega sjóði ef
Huang Nubo kynni ekki fjárfestingarplön,
hvernig hann ætli að standa að fram
kvæmdum og leggi fram sannfærandi við
skipta áætlanir og röksemdir fyrir þeim .
Ekkert af þessu hefur verið kynnt en svo
virðist sem félagið GáF ehf . eigi að ganga á
eftir þessu öllu auk annars .
Af því sem fram hefur komið má ætla
að atvinnuþróunarfélögum Eyfirðinga og
Þingeyinga verði falið að leiða starf GáF ehf .
á sama hátt og þau hafa unnið að málinu
fyrir sveitarfélögin frá því í mars 2012 .
Á stæða er til að spyrja hver sé viðmælandi hér á landi af hálfu Huangs
Nubos eftir að Hjörleifur Sveinbjörnsson
skrif aði sig frá honum með þessum hætti .
Halldór Jóhannsson arkitekt hefur verið
kynnt ur til sögunnar sem umboðsmaður
Huangs á Íslandi . Bloggarinn Lára Hanna
Ein arsdóttir, sem stundum lætur að sér
kveða með því að taka saman efni á vefsíðu
sína, birti hinn 10 . maí 2012 pistil þar sem
sagði meðal annars um Halldór Jóhanns
son:
Maður er nefndur Halldór Jóhannsson,
búsettur á Akureyri . Hann var m .a . kærður
fyrir miðaklúður vegna HM árið 1995,
og var hluthafi í frægri lakkrísverksmiðju
sem sett var á fót í Kína 1992 (hvernig
endaði það ævintýri?) . Halldór rak síðast
ráðgjafaþjónustuna Teikn á lofti sem — viti
menn! — gerði einmitt aðalskipulagið fyrir
Langanesbyggð sem um var fjallað í fréttunum
[…] með stórskipahöfn, alþjóðaflugvelli og
margföldun íbúafjölda . Teikn á lofti varð
gjaldþrota í ágúst sl .
Halldór Jóhannsson kemur víðar við . Hann
er skráður fyrir léninu www .drekiarea .is þar
sem norðausturhornið kynnir sig og mögulega
þjónustu sína . Allir sjá í hvað nafnið vísar –
Drekasvæðið . Þarna er meira að segja 16 síðna
bæklingur sem gerir ráð fyrir að aðalskipulagið
verði samþykkt með stórskipahöfn, flugvelli
og öllum pakkanum . Þótt gefin séu upp nöfn
tveggja sveitarstjóra á síðunni er á baksíðu
bæklingsins tilgreint hvern á að hafa samband
við ef áhugi er fyrir hendi — engan annan en
Halldór Jóhannsson .
En Halldór er stórtækari en þetta . Hann
er einnig skráður fyrir lénunum www .arctic
portal .org og www .arcticportal .is . Íslenskt
heiti fyrirbærisins er Norðurslóðagáttin ehf .
og þar kemur Halldór Jóhannsson vitanlega
við sögu . Eins og sjá má hér er hann einn