Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 24
Þjóðmál SUmAR 2012 23
bæjar skólann í Reykjavík .29 Ekki þótti við
eigandi að frambjóðendurnir kæmu sjálfir
fram á slíkum samkomum .30
Þremur dögum fyrir kosningarnar var
flutt í útvarpinu eina dagskráin sem helguð
var forsetakosningunum . Götur þétt býl
is staðanna tæmdust . Fyrst fluttu fram
bjóð endurnir þrír ávörp til þjóðarinnar .
Í kjöl far þeirra bauðst fulltrúum stjórn
mála flokkanna að „gera grein fyrir afstöðu
flokka sinna til forsetakosninga þeirra sem í
hönd fara,“ eins og það var orðað í ályktun
út varps ráðs .31 Framsóknarflokkur og Sjálf
stæðis flokkur þekktust boðið en ekki Al
þýðu flokkur og Sósíalistaflokkur .
Ekki munaði miklu
Íslenska þjóðin fékk að kjósa sér forseta í fyrsta sinn sunnudaginn 29 . júní
1952 . Bjart veður var syðra en dimmviðri
norðanlands og þar snjóaði í fjöll .32 Alls
greiddu 70 .447 manns atkvæði en það voru
82,0% kjósenda á kjörskrá .33
Talning atkvæða hófst eftir hádegi á þriðju
deginum og voru fréttir af henni birt ar í
29 Gylfi Gröndal: Ásgeir Ásgeirsson. Forlagið, 1992, bls . 344 .
30 Gylfi Gröndal: Ásgeir Ásgeirsson. Forlagið, 1992, bls . 331 .
31 Gylfi Gröndal: Ásgeir Ásgeirsson. Forlagið, 1992, bls . 341 .
32 Veðráttan, júní 1952, bls . 21 .
33 Forsetakosningar 1996, Hagstofan 1997, bls . 8 .
útvarpinu . Eftirvæntingin var mikil .34 Lengst
af mátti ekki á milli sjá hvor þeirra Ásgeirs
eða Bjarna yrði kjörinn . Úrslit in lágu fyrir
kl . 20 .40 . Ásgeir sigraði með 1 .883 atkvæða
mun . Hann hlaut 48,3% gildra atkvæða,
Bjarni hlaut 45,5% og Gísli 6,2% .35
Ásgeir hafði meira fylgi en Bjarni í
Reykjavík, stærsta kjördæminu, og einnig á
Reykjanesi og Vestfjörðum en Bjarni hafði
vinninginn í öðrum landshlutum .
„Eftir að fullnaðarúrslit forsetakjörsins voru
orðin kunn safnaðist múgur og marg menni
saman fyrir framan hús Ásgeirs Ásgeirs sonar,
Hávallagötu 32, og hyllti hinn nýkjörna
forseta,“ sagði Alþýðublaðið .36 Heimili Ásgeirs
og Dóru Þórhallsdóttur fylltist af blómum .
Sérstaka athygli vakti stór blómakarfa sem
gefandinn sagðist hafa fengið á góðu verði
vegna þess að hún hafði verið gerð samkvæmt
pöntun ríkis stjórnarinnar — til að senda
Bjarna eftir sigur hans .37
Ásgeir gegndi forsetaembættinu í sextán
ár, var sjálfkjörinn 1956, 1960 og 1964 .
Síðast þegar hann gaf kost á sér var hann
orðinn 70 ára .
34 Gylfi Gröndal: Ásgeir Ásgeirsson. Forlagið, 1992, bls . 350 .
35 Forsetakosningar 1996, Hagstofan 1997, bls . 20 .
36 Ásgeir Ásgeirsson kosinn forseti Íslands . Alþýðublaðið,
2 . júlí 1952, bls . 1 .
37 Gylfi Gröndal: Ásgeir Ásgeirsson . Forlagið, 1992, bls . 346 .
Forsetaframbjóðendurnir 1952: Gísli Sveinsson, Ásgeir Ásgeirsson og Bjarni Jónsson .