Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 22
Þjóðmál SUmAR 2012 21
lýð ræðis flokka .9 Í apríl voru Ásgeir, Gísli
og Sigurður Nordal helst í umræðunni .10
Svo virðist sem Alþýðuflokkurinn hafi
boðið samstarf við ríkisstjórnarflokkana
um framboð Ásgeirs Ásgeirssonar en ekki
um aðra frambjóðendur . Á það gátu þeir
ekki fallist .11
Í byrjun maí stóðu viðræður ríkis stjórn
ar flokkanna enn yfir . Yfirlýstur til gangur
þeirra var að ekki mætti gera forseta valið
flokks pólitískt .12 Þótti sumum að slík
vinnu brögð væru ekki lýðræðisleg .13
Framsóknarmenn höfðu stungið upp
á Birni Þórðarsyni fv . forsætisráðherra,
Jón at an Hallvarðssyni hæstaréttardómara,
Ólafi Lárussyni prófessor og Sigurgeir Sig
urðs syni biskupi, en um þá varð ekki sam
komu lag .14 Sagt er að formenn flokkanna
tveggja hafi verið búnir að koma sér saman
um Jón Ásbjörnsson hæstaréttardómara
en hann hafi neitað boðinu .15 Áður hafði
flokks ráð Sjálfstæðisflokksins skorað á Thor
Thors en hann sagðist ekki gefa kost á sér
„við þessar forsetakosningar“ heldur kjósa
9 Nær og fjær . Verkamaðurinn, 14 . mars 1952, bls . 4 .
10 Starkaður: Baðstofuhjal . Tíminn, 10 . apríl 1952, bls . 4 .
11 Gylfi Gröndal: Ásgeir Ásgeirsson. Ævisaga. Forlagið,
1992, bls . 326 .
12 Hvað gerist í undirbúningi forsetakjörs? Alþýðumaður
inn, 6 . maí 1952, bls . 1 .
13 Fokdreifar . Dagur, 7 . maí 1952, bls . 4 .
14 Gylfi Gröndal: Ásgeir Ásgeirsson. Ævisaga. Forlagið,
1992, bls . 321 .
15 Okkar á milli sagt . Alþýðublaðið, 11 . maí 1952, bls . 3 .
sér áfram haldandi þjónustu við Ísland á
erlendum vettvangi .16
Hafa má í huga að þeir flokkar sem mynd
uðu ríkisstjórn, Sjálfstæðisflokkur og Fram
sóknarflokkur, höfðu hlotið fylgi 64,0%
kjósenda í alþingiskosningum þrem ur
árum áður, Sósíalistaflokkurinn 19,5% og
Al þýðu flokkurinn 16,5% .
Þrjú framboð
tilkynnt sama kvöldið
Það dró til tíðinda föstudaginn 9 . maí, tveimur vikum áður en fram
boðsfrestur rann út . Þá var tilkynnt um
framboð Gísla Sveinssonar í kvöldfréttum
útvarpsins .17 Fyrir lok fréttatímans barst
yfirlýsing frá stjórnum Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks um að séra Bjarni Jónsson
hefði orðið við tilmælum flokkanna um að
gefa kost á sér til framboðs .18 Jafnframt var
tilkynnt um framboð Ásgeirs Ásgeirs sonar,
sem miðstjórn Alþýðuflokksins studdi .19
16 Reykjavíkurbréf . Morgunblaðið, 8 . júní 1952, bls . 9 .
17 Útvarpsfréttir 9 . maí 1952 . Handrit í Þjóðskjalasafni
Íslands . Þrír frambjóðendur líklegir við forsetakjörið þ .
29 . júní . Vísir, 10 . maí 1952, bls . 1 .
18 Þjóðareining nauðsyn um forsetakjör . Framboð séra
Bjarna Jónssonar ákveðið . Sjálfstæðisflokkurinn og
Fram sóknarflokkurinn hafa þegar lýst yfir stuðningi við
kosn ingu hans . Morgunblaðið, 10 . maí 1952, bls . 1 .
19 Ásgeir Ásgeirsson og Gísli Sveinsson verða í kjöri .
Miðstjórn Alþýðuflokksins samþykkir framboð Ásgeirs
Ásgeirssonar . Morgunblaðið, 10 . maí 1952, bls . 16 .