Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 23
22 Þjóðmál SUmAR 2012
Framboð Bjarna kom mjög á óvart, enda
hafði nafn hans ekki verið nefnt í þessu
samhengi fyrr en örfáum dögum áður .
Þjóðviljinn fullyrti að Framsóknarmenn
hefðu stungið upp á Bjarna og Tíminn
taldi aldur hans kost vegna þess að „ekki
þykir heppilegt að sami maður gegni for
setaembættinu lengi“ .20 Þjóðviljinn benti þá
á að traustar ættir úr Vesturbænum stæðu að
Bjarna . „Það fólk verður allt mjög gamalt .“21
Skiptar skoðanir voru um þá ákvörðun
ríkisstjórnarflokkanna að lýsa yfir formleg
um stuðningi við einn frambjóðanda . Sumir
þingmenn flokkanna töldu sig ekki bundna
af þeirri ákvörðun, þar á meðal Bernharð
Stefánsson og Gunnar Thoroddsen .22
Ásgeir var tæplega 58 ára þegar fram
boðið var tilkynnt, guðfræðingur að mennt,
kennari, fræðslumálastjóri, bankastjóri, al
þingis maður í tæp þrjátíu ár og bæði fjár
málaráð herra og forsætisráðherra á fjórða
ára tug alda rinnar .23 Bjarni var 70 ára, hafði
verið skóla stjóri á Ísafirði, dómkirkjuprestur
20 Hugleiðingar Örvarodds . Þjóðviljinn, 16 . maí 1952,
bls . 5–6; Aldur forsetans . Tíminn, 15 . maí 1952, bls . 5 .
21 Lupus: Forsetaraunir . Þjóðviljinn, 21 . júní 1952, bls . 5 .
22 Fólkið velur forsetann . Forsetakjör, 28 . maí 1952, bls . 2 .
23 Jón Guðnason og Pétur Halldórsson: Íslenzkir samtíðar
menn. Bókaútgáfan Samtíðarmenn, 1965, fyrra bindi,
A–J, bls . 46–47 .
í Reykja vík, dómprófastur og vígslubiskup .24
Gísli var 72 ára, hafði verið sýslumaður
Skaftfell inga, alþingismaður í nær tvo áratugi
og sendi herra í Noregi . Á lýðveldishátíðinni
á Þing völlum 17 . júní 1944 var hann þing
forseti .25
Margvísleg kynningarstarfsemi
Kosningabaráttan var bæði hörð og óvægin, að mati Morgunblaðsins .26
Óform legar kannanir bentu til þess að
Ásgeir og Bjarni hefðu mun meira fylgi
en Gísli .27 Blaðagreinar voru skrifaðar til
að mæla með einstökum frambjóðendum .
Stuðn ings menn Ásgeirs gáfu út blað sem
nefnd ist Forsetakjör, kosningaskrifstofur
voru opnaðar og stuðningsmenn Bjarna
boðuðu til funda víða um land .28 Þeir sem
studdu Ásgeir efndu til útifundar við Mið
24 Jón Guðnason og Pétur Halldórsson: Íslenzkir samtíðar
menn. Bókaútgáfan Samtíðarmenn, 1965, fyrra bindi,
A–J, bls . 89 .
25 Jón Guðnason: Íslenzkar æviskrár. Hið íslenzka bók
menntafélag, 1976, VI . bindi, bls . 146 .
26 Þjóðholl einingarstefna – eða þröngir einkahagsmunir .
Morgunblaðið, 29 . júní 1952, bls . 6 .
27 Jóhann Þ . Jósefsson: AB falsar úrslit „prófkosninga“ á
Gullfossi . Morgunblaðið, 26 . júní 1952, bls . 8 .
28 Tvenns konar baráttuaðferðir . Morgunblaðið, 25 . júní
1952, bls . 1 .
Handrit kvöldfrétta
út varps ins 9 . maí
1952, en framboð
allra þriggja forseta
frambjóðendanna
voru til kynnt sama
daginn, aðeins
tveimur vikum
áður en fram boðs
frestur rann út .